Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 5
FORMANNSPISTILL
Elsa B. Friöfinnsdóttir
Starfssvið
heilbrigðisstétta
1 áranna rás hafa orðið miklar breytingar á starfs-
og ábyrgðarsviðum heilbrigðisstétta. Aðdragandi
slíkra breytinga hefur verið margvíslegur. ITelst má
nefna breyttar þarfir fyrir heilbrigðisþjónustu,
breytingar á menntun einstakra stétta, tilkomu
nýrra heilbrigðisstétta, tækniframfarir og breyting-
ar á tilskipunum frá stjórnvöldum. Starfssvið
hjúkrunarfræðinga tók t.d. miklum breytingum
með tilkomu sjúkraliða, þegar prestar hófu störf á
sjúkrahúsum, með tilkomu félagsráðgjafa, sjúkra-
þjálfara, iðjuþjálfa og svona mætti áfram telja.
Gera má ráð fyrir að á næstu misserum og árum
verði enn breytingar á starfssviðum heilbrigðis-
stétta vegna fækkunar og hækkandi meðalaldurs í
ákveðnum stéttum og vegna ýmissa tilskipana
sem fslendingar þurfa að gangast undir vegna
Evrópusamvinnu, svo eitthvað sé nefnt.
f nágrannalöndum okkar eiga sér stað um þessar
mundir áhugaverðar breytingar á starfssviði
hjúkrunarfræðinga. Breska ríkisstjórnin gaf út
tilskipun árið 2000 um breytt og aukið hlutverk
hjúkrunarfræðinga í heilbrigðisþjónustunni í
þeirri viðleitni að bæta þjónustuna. I tilskipun
þessari, The NHS plan - a plan for investment, a
plan for reform, eru tilgreindir 10 þættir sem
falla nú undir starfssvið hjúkrunarfræðinga. Þar
má sem dæmi nefna pantanir rannsókna í grein-
ingarskyni s.s. röntgenmyndir og meinafræði-
rannsóknir, að innrita og útskrifa sjúklinga með á-
kveðin vandamál, að ávísa lyfjum og ákveða með-
ferð, að sinna auknum verkefnum á göngudeild-
um og gera minni háttar skurðaðgerðir. I Vestur-
Sjálandssýslu í Danmörku tók nýtt fyrirkomulag á
þjónustu slysamóttaka gildi 1. september 2003.
Reyndir hjúkrunarfræðingar sjá nú alfarið um
þjónustuna á öllum fimm slysastofum sýslunnar,
læknar eru einungis á bakvakt á fjórum þeirra.
Hér á landi stendur fyrir dyrum heildarendurskoð-
un á lögum um heilbrigðisþjónustu þar sem gera
má ráð fyrir að lagðar verði til breytingar á fyrir-
komulagi heilbrigðisþjónustunnar. Þegar hefur
verið unnið frumvarp til laga um heilbrigðisstéttir
þar sem lagt er til að ein lög gildi um allar heil-
Elsa B. Friöfinnsdóttir
brigðisstéttirnar og sérlög eins og hjúkrunar
lög og læknalög falli úr gildi. Þá má nefna að
nefnd, sem ætlað er að skilgreina hlutverk
Landspítala- háskólasjúkrahúss og Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri mun brátt taka til
starfa. Sú nefnd mun að öllum líkindum gera
tillögur um breytta skiptingu verkefna milli hinna einstöku þjón
ustuforma heilbrigðisþjónustunnar. Þá má nefna þá umræðu
sem verið hefur hér á landi um breytt rekstrarform í heilbrigðis-
þjónustunni en gera má ráð fyrir að breytt rekstrarform leiði til
breytinga á innbyrðis verkaskiptingu heilbrigðisstétta. Síðast en
ekki síst mun ný reglugerð um veitingu sérfræðileyfa í hjúkrun
vonandi treysta í sessi og efla störf sérfræðinga í hjúkrun.
ÖIl ofantalin atriði kalla á samræðu og samstarf heilbrigðis-
stétta. Starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar eru þeir aðilar sem
sérþekkinguna hafa og þurfa því að vera í fararbroddi í þeim
breytingum sem fram undan eru. Hjúkrunarfræðingar eiga að
hafa skoðun á þróun heilbrigðisþjónustunnar og taka forystu
um breytingar þegar við á. Sameiginlegt markmið allra heil-
brigðisstétta er að veita eins góða þjónustu og unnt er og hafa
ætíð hagsmuni skjólstæðinganna í fyrirrúmi.
Insúlín dæla
A. KARLSSON hf.
• Sítengd dæla sem skammtar insúlín
eftir þörfum.
• Gerir sykursjúkum kleift að lifa “eðlilegu lífi”.
• Kemur í veg fyrir sveiflur í blóðsykri og hindrar
að of miklu insúlíni sé dælt í líkamann.
Róbert veitir frekari upplýsingar í síma 5 600 900.
A.
Karlsson hf.» Brautarholti 28 «105 Reykjavík • Sími: 5 600 900« Fax: 5 600 901
Heimasíða: www.akarlsson.is* Netfang: ak@akarlsson.is
Tímarit íslenskra hjukrunarfræöinga 4. tbl. 79. árg. 2003 3