Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 16
Fríöa Proppé, blaðamaður Fagdeild endurhæfingarhjúkrunarfræöinga: Merkimiði vandfundinn á hið fullkomna líf Fagdeild endurhæfingarhjúkrunarfræðinga var stofnuð 13. maí 1995 eftir málþing sem haldið var á Reykjalundi. Fyrsti formaður deildarinnar var Ingibjörg Kolbeins en formaður frá 1999 er Sylvía Ingibergsdóttir, hjúkrunarfræðingur á geðsviði Reykjalundar. í deildinni er 61 hjúkrunarfræðingur. Deildin hefur staðið fyrir málþingi og gefur út fréttabréf sem kemur út u.þ.b. þrisvar á ári. Fyrirhugað er að halda málþing um endurhæfingu vorið 2004 í samvinnu við hjúkrunarfræðinga á Reykjalundi. Endurhæfing fer að stærstum hluta fram á fjórum stöðum, þ.e. Grensásdeild, Landspítala-háskólasjúkrahúsi; Reykjalundi; Heilsuhæli Náttúrulækningafélags Islands í Hveragerði og Kristnesi, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Til að kynnast starfsvett- vangi þessa faghóps mæltum við okkur mót við þær Sylvíu Ingibergsdóttur, Láru M. Sigurðardóttur, hjúkrunarforstjóra á Reykjalundi, Huldu Sigurlínu Þórðardóttur, hjúkrunarfor- stjóra Heilsuhælisins í Hveragerði, og Þórdísi Ingólfsdóttur, sviðsstjóra endurhæfingarsviðs LSH en hún hefur starfað á Grensási frá 1981. Viö nutum í viðtalinu frábærrar gestrisni forráðamanna á Reykjalundi sem hér er þökkuð. I upphafi viðtalsins báöum við þær stöllur að gera grein fyrir starf- semi hvers staðar fyrir sig. Þá voru málefni endurhæfingar og hjúkrunarfræðinga rædd almennt. Að loknu viðtalinu var haft símasamband við Gígju Gunnarsdóttur, deildarstjóra Kristnesspítala sem er endurhæfingardeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Inn í viðtalið hér á eftir er bætt upplýs- ingum hennar um starfsemina fyrir norðan. arfólk, engir hjúkrunarfræðingar,“ sagði Lára enn; fremur. Aðspurð um fyrirkomulag þjónustunnar á Reykja- lundi sagði hún: „Fólk dvelur hérna annaðhvort á fimm daga eða sjö daga deildum eða fær þjónustu allan sólarhringinn fimm daga eða sjö daga vik- unnar. Það fer enn fremur eftir eðli sviða hvernig þjónustan er; hún er miðuð við þörfina hverju j sinni. Sú þörf hefur verið að breytast með breyttu þjóðfélagi. Það fer vaxandi að fólk er hér fimm; daga vikunnar á svokölluðum „dagstatus“. Það erí liður í endurhæfingunni að fólk fer heim til sín og notar það sem það hefur tileinkað sér hér í því! umhverfi sem það býr í. Þróunin í breyttu samfé- lagi er að færa endurhæfinguna í auknum mæli út j í umhverfið og þjóðfélagið." A Reykjalundi eru um 200 stöðugildi, þar af 40; hjúkrunarfræðingar í 29 stöðugildum. „Við berum ábyrgð á eigin heilsu" Hulda Sigurlína Þórðardóttir er hjúkrunarfor- stjóri á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Is- lands í Hveragerði, NLFI, og hefur starfað við það frá 1998. Hún sagði: „Stofnunin okkar er í jaðrinum, ef svo má segja, hvað þyngd meðferð- arinnar varðar. Fyrst kemur Grensás og síðan Reykjalundur. Við erum með léttari sjúklinga heldur en Reykjalundur. I þjónustusamningi er Lára Margrét Sigurðardóttir er hjúkrunarforstjóri á Reykja- lundi. Hún hóf þar störf 1983 og vann við endurhæfingu gigt- j arsjúklinga þar til hún tók við stöðu hjúkrunarforstjóra áriðj 2000. Um starfsemina á Reykjalundi segir hún: „Við erum með 150 rúm á níu sviðum og fyrir nokkrum árum gerðum viði þjónustusamning við heilbrigðisyfirvöld. Þar með gátum við stokkað upp starfsemina og fært saman svið sem okkur fannst að ættu vel saman eins og gigt- og verkjasvið. 1 dag önnumstj við endurhæfingu einstaklinga eftir flest áföll, andleg og lík- amleg, sem fólk lendir í.“ A Reykjalundi eru níu endurhæfingarsvið: lungna-, hjarta-, j gigtar-, verkja-, geð-, næringar- og miðtaugakerfissvið, svið atvinnulegrar endurhæfingar og Hlein sem er sambýli sjö mikið fatlaðra einstaklinga eftir slys. „Á Hlein ríkir heimilis- legur bragur og þar starfa þroskaþjálfar, sjúkraliðar og aðstoð- það flokkað sem meðalléttir og léttir. Við sinnum endurhæfingu og skiptum starfseminni í tvennt, jafnvel þrennt. Annars vegar rekum við endur- hæfingardeild með 40 rúmum og hins vegar al- menna deild með 80 rúmum eða samtals 120 rúm. Sannleikurinn er sá að við sinnum meiri endurhæfingu en sem nemur þessum 40 rúm- um. Þörfin er mikil og vaxandi og við reynum að púsla þessu saman þangað til við gerum breyt- ingar á þjónustusamningi. Þörfin er a.m.k. 50 rúm fyrir endurhæfinguna." NLFI í Hveragerði er nokkuð sérstök stofnun miðað við aðrar sjúkrastofnanir og sagði Sigur- lína: „Þessi stofnun byggir á gömlum grunni og hefðum frá 1955 og jafnvel lengra aftur í tím- Tímarit islenskra hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 79. árg. 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.