Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Qupperneq 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Qupperneq 9
Foucault og skilgreiningu hans á valdi. Frábær greining hans á Foucault (1979, 1980, 1990) og verkum hans, sem birtist í bók hans „Punishment and Modern Society: A Study in Social Theory' hjálpaði mér mikið. Skilningur minn er sá að fyrir Foucault sé vald ekki eign einhverrar stéttar eða einhverra einstaklinga sem „hafa valdið“, né heldur sé það tæki til þess að nota að vild. Fyrir honum er vald eingöngu til í misbeitingu valds, í yfirráðum, undirgefni og ójöfnu jafnvægi sem fyrirfinnst í öllum félagslegum tengslum. Garland (1993) bendir á að Foucault skrifi „eins og eina markmið valds sé meira vald og enn meira vald, stjórn og enn meiri stjórn“(bls. 169). Foucault skrifi þannig eins og sá sem er algjör- lega „á móti“ valdi, gagnrýni hans beinist í raun ekki að einu formi af valdi í stað annars heldur séu skrif hans í raun gagnrýni á vald í sjálfu sér. Garland sér hins vegar vald sem tengslahugtak og skrifar: „Grundvallarspurningin, sem við þurfum að svara ..., er ekki um vald eða ekki vald heldur það hvernig vald skuli notað og það gildismat sem gilda ætti í tengslum við vald og þau mark- mið sem vald ætti að vera notað til að ná“ (1993, bls. 174). Eg tek undir með Garland og út frá eigin rannsóknum fullyrði ég að valdi er ekki ein- ungis hægt að misbeita eins og Foucoult virðist telja heldur er einnig hægt að nota vald öðrum til góðs. Foucault skrifar í anda Nietzsches og Webers og verk hans hafa verið mörgum innblástur, m.a. þeim sem kalla sig „póststrúktúralista". Marcus (1998) vísar í grein sinni „What comes (just) af- ter “post“?: The case of ethnography“ til „póststrúktúralisma" og „póstmódernisma" sem hinna ónefnanlegu orða sem flestir hafi óefað orðið fyrir áhrifum af í eigin hugsun en vilja samt ekki leggja nafn sitt við í dag. Megingagn- rýnin á „póststrúktúralisk" viðhorf er að í þeim felist engar leiðbeiningar um breytingar og þau geti því leitt til þess að fólk horfi aðgerðalaust upp á óréttlæti. Ef við lítum á vald og umhyggju út frá samfélagslegu viðhorfi tek ég undir með mörgum femínistum sem sjá „póstmódernisma" og „póststrúktural kenningar" „sverfa að siðferði- legum grunni mannréttinda" svo notað sé orða- lag McCormick og Roussy (1997) sem benda á að „póstmódernismi" og „póststrúktúralismi" hafa valdið miklum og neikvæðum viðbrögðum meðal hópa sem telja hættu á að þessi viðhorf muni leysa upp þann hugmyndafræðilega grunn sem réttindi einstaklinga byggjast á. Ef við segjum að allt sé afstætt segjum við líka að jafnrétti og réttlæti séu í raun afstæð og þá vantar allt púður í viðleitni til félagslegra breytinga sem miða að því að auka jafnrétti og réttlæti. Það eru til fræðikonur og -menn innan hjúkrunar sem hafa rannsakað eflingu (empowerment) og hvernig vald er notað eða misnotað í mannlegum tengslum. Rafael (1996) notaði díalektíska aðferð og komst að þeirri niðurstöðu að það séu þrjú lög í tengslunum milli valds og umhyggju. Fyrsta lagið kallar hún „fyrirskipaða umhyggju" og vísar þar m.a. til Rever- by (1987), sem skrifaði bókina „Ordered to Care“ eða „F.yrir- skipað að sýna umhyggju". Annað lagið nefnir hún „samlagaða umhyggju" sem er umhyggja sem byggð er á svokallaðri „karlasiðfræði" og þriðja lagið nefnir hún „eflandi umhyggju" þar sem unnið er markvisst að því að eyða öllu ranglæti sem skapast af valdaójöfnuði í samskiptum fólks. Rafael (1996) heldur því fram að eflandi hjúkrun (sem hún reyndar nefnir „empowered caring nursing expertise") feli í sér vald sem fær- ist frá því að hafa „vald yfir“ til þess að nota vald til að efla aðra. Rafael fullyrðir að eflandi vald sé byggt á virðingu fyrir og tengingu við aðra og að sá sem valdið hefur leiti fremur eft- ir jöfnuði og virkri þátttöku hins aðilans en að beita valdi sínu. Þannig vald eflir fremur en minnkar persónulega stjórn hins aðilans og felur í sér viðleitni til að breyta til hins betra félags- legum og menningarlegum aðstæðum þar sem ójöfnuður ríkir. Rafael skrifar: „Eflandi vald er byggt á virðingu fyrir marg- breytileika mannanna fremur en að búast við einsleitni þeirra. Eflandi vald er andstætt stjórnandi valdi sem oft einkennist af valdbeitingu. Eflandi vald snýst um að næra aðra vegna þeirrar tilfinningar að allir séu mikilvægir." (Rafael, 1996, bls. 14). Fyrir Rafael er eflandi umhyggja byggð á tengslasiðfræði, en samkvæmt henni er ætíð tekið tillit til þeirra aðstæðna sem einstaklingurinn býr við. Rafael kemst að þeirri niðurstöðu að eflandi umhyggja feli í sér einingu milli valds og umhyggju. Eg sé sterka tengingu milli „eflandi samskiptaháttar" eins og ég lýsi honum og „eflandi umhyggju“ eins og Rafael (1996) lýsir henni. Rödd eða raddleysi I kenningu minni legg ég áherslu á hvernig samskipti geta ým- ist eflt rödd þess sem fyrir verður eða þaggað niður í viðkom- andi. I hinu klassíska verki eftir Belenky, Clinchy, Goldberger og Tarule (1986) vöktu þær lesendur til meðvitundar um hve sjálfskilningur kvenna er samofinn þekkingarleiðum þeirra. Oflug líking þeirra um „rödd“ og „raddleysi" opnaði augu margra fyrir því hvað þeir sem valdið hafa geta þaggað niður í fólki. En fólk, sem hefur vald, getur líka „gefið" öðrum „rödd“. I eflandi samræðum öðlast hinn aðilinn fullan raddstyrk (ef Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 79. árg. 2003 7

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.