Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 25
Sjálfsbjargarheimilið 30 ára
Erla Jónsdóttir segir frá 7 manna nefndinni en í
henni eiga sæti íbúar og starfsmenn. Auk Erlu,
Guðrúnar Eriu
og Tryggva eru í
nefndinni full-
trúi úr eldhúsi
og einn íbúi og
einn starfsmaður
af hverri hæð.
Nefndin fjallar
um það sem er Margs konarstarfssemi ferfram í
að gerast hverju þjónustumiðstöðinni
sinni, skrifar
bréf til stofnana og einstaklinga og fjaliar al-
mennt um starfsemi heimilisins og er ekkert ó-
viðkomandi. Fundir eru haldnir einu sinni í
mánuði. Mörg mál eru tekin fyrir, t.d. var nýlega
Framkvæmdateymið frá vinstri: Erla Jónsdóttir, Tryggvi Friðjónsson,
Valerie Harris og Guðrún Erla Gunnarsdóttir
óskað eftir við yfirkjörstjórn að aðgengi yrði bætt
í kjörklefum á kjörstað.
Við göngum um og fáum að líta inn í herbergi
nokkurra íbúanna. Greinilegt er að íbúarnir eru
margir handlagnir og listrænir, einn íbúanna, Jón
Tryggvason, er til dæmis góður Ijósmyndari og
Þorkell Grímsson myndlistarmaður sýnir margar
myndir sem hann hefur unnið. Auk þeirra eru
margir listamenn meðal íbúanna, svo sem ein
leikkona, rithöfundur og fleiri sem þjóna list-
gyðjunni. Guðrún Erla sýnir breytingar sem
gerðar hafa verið, lagfærð salerni og baðaðstaða
og breytingar gerðar á eldhúsi þannig að unnt er
að hækka og lækka borðplötur eftir því hvort þeir
sem vinna í eldhúsinu eru í hjólastól eða ekki. I
eldhúsinu situr starfsfólk og einn hópstjórinn er
að nudda axlirnar á einum starfsmanninum.
Guðrún Erla segir tvo af þeim þremur sem sitja
í eldhúsinu ætla að fara í hjúkrun í haust, þar af er einn karl-
maður og fjölgar væntanlega þar með körlum í stéttinni.
Við göngum í átt að þjónustumiðstöðinni og á leiðinni segir
Guðrún Erla frá þeirri venju sem viðhöfð hefur verið þegar
íbúi á heimilinu deyr, að hafa minningarstund með íbúum,
starfsmönnum og nánustu aðstandendum. „Þetta er stutt
stund þar sem farið er með bæn og kveikt á kertaljósum og
sögð örfá minningarorð til að ítreka að hver og einn skiptir
okkur máli,“ segir hún. Við kveðjum Guðrúnu Erlu og höldum
inn í þjónustumiðstöðina. Alls staðar er fólk að vinna við fjöl-
mörg verkefni, situr við
tölvuvinnu og hannyrðir af
ýmsu tagi. Þar er Valerie
Harris yfiriðjuþjálfi. Fyrir
rúmu ári var dagvist og
iðjuþjálfadeild sameinuð
og heitir nú þjónustumið-
stöð. Þarna er unnið að
markvissri þjálfun, bæði
með einstaklingum og
hópum. Einnig er fjölbreytt afjTreying í boði. Áhersla er á að
notendur taki þátt í og hafi áhrif á þróun þjónustunnar og eru
reglulegir fundir liður í því. Og þá er komið að því að skoða
sundlaugina en sundþjálfun skiptir hreyfihamlaða miklu máli.
Sundlaugin er opin hreyfihömluðum á tilteknum tímum eins
og fram kemur á heimasíðunni www.sbh.is. Og þá er komið að
afmæliskveðjunni, til hamingju með 30 árin!
Styrkir
frá rannsókna- og vísindasjóöi
hjúkrunarfræöinga
Hér meö eru auglýstir til umsókna styrkir úr rannsókna- og vísindasjóði
hjúkrunarfræðinga fyrir árið 2003. Sjóðurinn hefur til ráöstöfunar allt
að 280.000 kr. Tilgangur sjóösins skv. skipulagsskrá er „að styrkja hjúkr-
unarfræðinga til rannsókna-og visindastarfa í hjúkrunarfræðum, sem
unnin verða hér á landi". Tekjur sjóðsins eru frjáls framlög.
Umsóknir sendist stjórn rannsókna- og vísindasjóðs hjúkrunarfræðinga,
skrifstofu Félags íslenska hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108
Reykjavík, fyrir 31. desember 2003, með sem fullkomnustum upplýsing-
um um hvernig umsækjandinn hyggst nota styrkinn.
Rannsókna- og vísindasjóður hjúkrunarfræðinga var stofnaður 12. maí
1987 af Maríu Finnsdóttur, fyrrverandi fræðslustjóra Hjúkrunarfélags
íslands. Sjóðurinn var stofnaður til að styrkja rannsókna- og vísinda-
starf hjúkrunarfræöinga hér á landi. Frá hausti 2001 hefur stjórn Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga haft umsjón meö sjóðnum.
Sundlaugin
Tímarit islenskra hjukrunarfræöinga 4. tbl. 79. árg. 2003
23