Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 37

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 37
Að lokinni vinnu í umræðuhópunum héldu á- fram hefðbundin fundarstörf. Hædd var áætlun fyrir væntanleg aðildarfélög að ICN sem eiga í erfiðleikum með að takast á við skuldbindingar sem fylgja aðild. Samþykkt var að viðkomandi fé- lög fái sjö aðlögunarár til greiðslu á félagsgjöld- um. Fari félagsgjöldin stighækkandi á þessum sjö árum en eftir það greiði félögin félagsgjöldin að fullu. Á síðasta degi fundarins voru kynnt samstarfs- verkefni ICN og annarra samtaka. Þar má nefna Alþjóðasamtök Iyfjafræðinga, (FIP) sem kynntu eitt af þeim vandamálum sem lyfjaiðnað- urinn tekst á við, s.s. fölsun eða lélegar eftir- líkingar af lyfj- um, „counterfeit medicines" sem seld eru víða um heim en þó sér- staklega til fátækari landa og landa þar sem eft- irlit með lyfjainnflutningi eða framleiðslu er á- bótavant eða takmarkað. Einnig var bent á hætt- Elsa Friöfinnsdóttir og Erlín Óskarsdóttir, sátu ráðstefnuna fyrir hönd Félags islen- skra hjúkrunarfræðinga Ráðstefna alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga una sem felst í sölu og kaupum á lyfjum á netinu. Hvatt var til aðgæslu og talið mikilvægt að hjúkrunarfræðingar þekktu vel vörumerki viðurkenndra lyfjaframleiðenda. Þá var kynning frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO, um alþjóðasamninga um viðskipti með þjónustu milli landa, áhrif þeirra og ekki síður tækifæri fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Kom fram í fyrirspurnum eftir kynninguna að fulltrúar frá Suður-Ameríku og Afríku hafa verulegar áhyggjur af þróuninni innan sinna landa, bæði vegna áhrifa á launakjör í löndunum og hve lítil áhrif félög hjúkrunarfræðinga hafa heima fyrir á samninga um kjararéttindi almennt og h'ka þegar um alþjóðleg fyrirtæki er að ræða. Eitt af samstarfsverkefnum ICN og WHO og Alþjóðasamtaka Ijósmæðra var kynnt, en það er skráning allra nýbura í heim- inum en UNICEF styður verkefnið og voru fulltrúar þessara aðila á fundinum og kynntu stöðu verkefnis- ins. Skortur á skráningu nýbura er vaxandi vandamál alls staðar í heiminum. I hinum vestræna heimi er það meðal innflytjenda, þá einkum ólöglegra inn- flytjenda, en er almennt Christer Magnússon og Auðna Ágústsdóttir fluttu , ,, , , , fyrirlestra á ráðstefnunni vandamal i þrounar- löndunum. I stuttu máli kemur vandamálið þannig fram að þeir sem ekki eru skráðir og til á pappír eiga m.a. ekki rétt á menntun, samfélagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu og hafa ekki kosningarétt. Þeir eru með öðrum orðum ekki til. Því er nauðsynlegt að takast sameiginlega á við vandann. Að lokum kynnti Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) sína starf- semi. Þessi samtök reyna að tryggja aðstæður um hollustu og vinnuvernd í vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga. Settir hafa verið staðlar í samstarfi við WHO til að tryggja vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga. Félag fslenskra hjúkrunarfræðinga er ekki aðili að ILO. Næsti fundnr og ráðstefna verður haldinn í Taipei á Taiwan dagana 20.-27. maí 2005. Tímarit íslenskra hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 79. árg. 2003 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.