Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Blaðsíða 42
Útdrættir úr meistaraverkefnum í hjúkrunarfræði Meistaraverkefni í hjúkrunarfræöi vorið 2003 Þrír luku meistaranámi frá hjúkrunarfræöideild Háskóla Is- lands voriö 2003. Þeir eru: Bergþóra Reynisdóttir en heiti ritgeröar hennar er Þöggun þunglyndra kvenna. Hlíf Guö- mundsdóttir lauk ritgeröinni Óformlegur og formlegur stuðningur sem langlífir Islendingar, sem búa á eigin heim- ilum, njóta meö hliðsjón af færni og Sigríður Magnúsdótt- ir lauk ritgeröinni Upplifun fjarstaddra feöra á fööurhlut- verki sínu. Hér á eftir fara útdrættir úr verkefnum þeirra: Sigríður Magnúsdóttir Upplifun fjarstaddra feöra á föðurhlutverki sínu Tilgangur þessarar rannsóknar er að öðlast innsýn og skilning á því hvernig fjarstaddir feður, feður sem aldrei hafa rekið heimili og búið með barnsmæðrum sínum og börn- um, skynja föðurhlutverk sitt. Tilgangurinn er einnig að öðlast innsýn inn í hvað gæti sigríöur Magnúsdóttir stuðlað að auknum samskiptum feðra við börn sín. Rannsóknir á tengslamyndun barna og foreldra hafa leitt í ljós að skortur á afskiptum föður í uppeldi barns eykur líkurnar á að barninu vegni almennt verr en ella í lífinu. Leit- ast er við að gera sýnilega merkingarbæra veröld feðra í þess- ari aðstöðu, skilning þeirra og reynslu. Rannsóknin er eigindleg og var aðferð túlkandi fyrirbærafræði notuð. Tekin voru viðtöl við sex fjarstadda feður 27 til 39 ára gamla sem áttu börn á aldrinum eins til tólf ára. Rætt var við hvern föður tvisvar. Flest viðtölin fóru fram á heimilum viðmælendanna. Þau voru hljóðrituð og síðan skráð til að gera textann aðgengilegan til túlkandi greiningar. Heimilisumhverfi þátttakenda gaf rann- sakandanum einnig tilefni til túlkunar á reynslu viðmælenda af föðurhlutverkinu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að reynsla fjarstaddra feðra af föðurhlutverki sínu sé flókin, sérstök og margbreytileg reynsla af for- eldrahlutverki. Tvö meginþemu birtust: „Að vaxa inn í föðurhlutverkið“ og „Hindranir" Fyrra meginþemað, „Að vaxa inn í föðurhlutverk- ið“, sýnir hvernig feðurnir axla ábyrgð, gangast við börnum sínum og sýna vilja og löngun til að vera þátttakendur í lífi barnanna og hafa áhrif á uppeldi þeirra og framtíð, á svipaðan hátt og aðr- ir feður í samfélagi nútímans. Stuðningur vina, vandamanna og samfélagsins í heild stuðlar að farsælum samskiptum þeirra við börn sín. Seinna þemað, „Hindranir", sýnir hvernig utan- aðkomandi öfl geta hindrað fjarstadda feður í að vaxa inn í föðurhlutverkið og hindrað þá í að mynda tilfinningabönd við börn sín. Þögn og tví- skinnungur samfélagsins um hlutskipti þeirra, erfiðleikar í samskiptum við barnsmóður, erfið- leikar vegna aðgengis að börnunum, skortur á samfélagsþjónustu og opinber lög og reglugerðir fæla fjarstadda feður frá nánum samskiptum við börn sín og gerir þeim erfitt fyrir að vera það for- eldri sem þeir vilja og telja sig eiga rétt á að vera. Rætt er um breytingar sem gera þarf í opinberri þjónustu til handa fjarstöddum feðrum sem auð- velda myndi þeim og börnum þeirra að mynda eðlileg, nærandi og farsæl tilfinningatengsl. Bergþóra Reynisdóttir Þöggun þunglyndra kvenna Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða reynslu kvenna, sem greindar hafa verið með þunglyndi, af samskiptum við heilbrigðisfagfólk. Tekin voru óstöðluð viðtöl við níu konur á aldrinum 39-68 ára sem greindar hafa verið með sjúkdóminn þunglyndi og notið meðferðar. Not- uð var eigindleg rannsóknaraðferð sem byggir á túlkunarfyrirbærafræði sem lýsir og skýrir reynsluheim fólks og beinir athygli að því hvern- ig maðurinn túlkar og gefur atburðum í lífi sínu Bergþóra Reynisdóttir 40 Tímarit íslenskra hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 79. árg. 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.