Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Qupperneq 22
Valgerður Katrín Jónsdóttir, ritstjóri
Sjálfsbjargarheimiliö 30 ára
Frá 30 ára afmælinu
'J
~'98He3l f >
-xé \ y' ' ^(r ly
'w Jwc
. •• v) . / \ jpEm \ , J||k ifWfj ítm
kmk ■ n
ÆMtn. kJ
/■ m
Sjálfsbjargarheimilið varð 30 ára í sumar. Af því tilefni
sótti ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga heimilið heim.
Þar er starfandi framkvæmdateymi en í því eru Guðrún Erla
Gunnarsdóttir, hjúkrunarforstjóri, Erla Jónsdóttir, félags-
ráðgjafi, Valerie Harris, iðjuþjálfi, og Tryggvi Friðjónsson,
framkvæmdastjóri. Fyrst liggur leiðin inn á skrifstofu Erlu
Jónsdóttur en hún segir frá hinum fjölmörgu hlutverkum
heimilisins. Sjálfsbjargarheimilið er heimili 39 mikið
hreyfihamlaðra einstaklinga, þar af eru tvö skammtíma-
rými. Eitt rými er fyrir sjálfstæða búsetu með stuðningi. Þá
er í húsinu endurhæfingaríbúð. í þriðja lagi er þjónustu-
miðstöð í húsinu og svo síðast en ekki síst sundlaug.
að auðvelda íbúanum, sem þarf að nota lyftara,
að komast um. „Þetta er tilraunaverkefni sem
samþykkt hefur verið af heilbrigðisráðherra,"
segir Erla og bætir við að allir íbúar heimilisins
geti sótt um stóra herbergið.
Endurhæfingaríbúðin var tekin í notkun fyrir tíu
árum og er hún sérstaklega útbúin með þarfir
hreyfihamlaðra í huga. Markmiðið með endur-
hæfingaríbúðinni er að íbúinn geti lifað sjálf-
stæðara og innihaldsríkara lífi og metin er þörf
fyrir hjálpartæki og annan stuðning.
Stöðug þróunarvinna er í gangi og er sjálfstæð búseta með
stuðningi það nýjasta. Erla segir að núna á þessum tímamót-
um sé slík búseta að verða að raunveruleika. I þessu felst að
íbúi flytur yfir í íbúðaálmu en nýtur áfram þjónustu heimilis-
ins. Sá sem flutti hefur búið á heimilinu frá stofnun þess eða
frá 1973. I framhaldi af því hafi tvö herbergi verið sameinuð í
eitt stórt herbergi með salerni og baði, og sett braut í loftið til
Félagsráðgjafi, hjúkrunarforstjóri ogiðjuþjálfi fara
yfir allar umsóknir sem berast og meta þörf fyrir
þessa þjónustu og sjá um þjálfun og stuðning.
Þjálfunin nýtist til dæmis fólki sem hefur fatlast
vegna veikinda og slysa og þarf að takast á við líf-
ið á breyttum forsendum, einnig ungu hreyfi-
hömluðu fólki sem er að flytjast úr heimahúsum
sem og þeim sem hafa ekki treyst sér eða fengið
stuðning til að búa einir. Tveir þeir fyrstu sem
Tímarit islenskra hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 79. árg. 2003