Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Page 36
Erlín Óskarsdóttir, hjúkrunarfæðingur
wÉmmmmmmamaamammmmmmmm
Aðalfundur CNR og
ráðstefna ICN 2003
Ráðstefna Alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga (ICN) og að-
alfundur Council of National Representatives (CNR) voru
haldin í Genf í Sviss dagana 26. júní til 2. júlí 2003. í fyrstu
var áætlað að halda þessa ráðstefnu og fundinn í Marra-
kech í Marokkó, en vegna hryðjuverka þar í vor var fund-
urinn fluttur til Genfar. Af hálfu Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga sátu ráðstefnuna og fundinn Elsa Friðfinns-
dóttir, formaður félagsins, og Erlín Óskarsdóttir, 1. varafor-
maður.
Ráðstefna ICN „Building excellence through evidence"
í tengslum við CNR-fundinn, sem haldinn er á 2ja ára fresti,
var haldin ráðstefna á vegum ÍCN sem bar heitið „Building
excellence through evidence" eða aukin gæði þjónustunnar
byggð á gagnreyndri þekkingu. Meginþemu ráðstefnunnar voru:
gagnreynd þekking, leiðtogahlutverkið, gæði umönnunar og
mannauður en það eru þau viðfangsefni sem alls staðar er ver-
ið að takast á við innan heilbrigðisþjónustunnar í dag.
Tveir íslenskir fyrirlesar-
ar voru með erindi á ráð-
stefnunni. Auðna
Agústsdóttir flutti fyrir-
lestur sem bar yfirskrift-
ina „Kynning á gagn-
reyndri þekkingu í
hjúkrunarstarfi: Fimm Frá opnunarathöfninni
ára reynsla" og Christer Magnússon flutti fyrirlesturinn „Að
standa staðfastur á tímum breytinga-leiðtoganámskeið fyrir
deildarstjóra" og byggðist á verkefni sem unnið var í samvinnu
hans og Lauru Sch. Thorsteinsson. Auk þess tók Auðna þátt í
rökræðum um leitina að gæðaumönnun eða „I Ieit að gæðum
þjónustunnar: Skiptir ánægja sjúklinga einhverju máli?" Nánari
upplýsingar um ráðstefnuna ásamt glærum frá mörgum fyrir-
lestrum er að finna á heimasíðu ICN, http://www.icn.ch.
Aðalfundur CNR
Aðalfundur CNR var síðan haldinn í framhaldi
af ráðstefnunni. Stjórnarkjör eða stjórnarskipti
voru ekki á þessum fundi, en þau fara'fram á 4ra
ára fresti. Eitt af fyrstu málefnum fundarins var
að bjóða hjúkrunarfélag Indónesíu velkomið í
hópinn sem 125. aðildarfélagið í samtökunum.
Síðan voru hefðbundin aðalfundarstörf, eins og
skýrslur stjórnar og nefnda samtakanna.
Vinnuhópar störfuðu fyrsta daginn og skiptu full-
trúar sér í hópana. Málefni sem tekin voru fyrir:
Hvernig er unnt að styrkja stöðu sérhæfðra hjúkr-
unarfræðinga til framtíðar? Flutningur hjúkrunar-
fræðinga milli landa, ávinningur eða valkostur?
Vinnuálag með
tilliti til fjölda
starfsfólks og
gæði hjúkrunar
og áhrif kyn-
ferðis og fá-
tæktar á heilsu-
Vinnuhópur
34
Tímarit islenskra hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 79. árg. 2003