Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Qupperneq 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2003, Qupperneq 53
STOFNANASAMNINGAR Hjúkrunarfræðingur með átta ára starfsreynslu við hjúkr- un raðast þremur launaflokkum hærra en við grunnröðun Starfsreynsla við hjúkrun innan stofnunar: Eftir tvo ár í starfi á Heilsugæslustöðinni í Borgarnési skulu hjúkrunarfræðingar hækka um a.m.k. einn launa- flokk Eftir fimm ár í starfi á Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi skuiu hjúkrunarfræðingar hækka um a.m.k. einn launa- flokk Eftir tíu ár í starfi á Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi skulu hjúkrunarfræðingar hækka um a.m.k. einn launa- flokk Menntun: Viðbótarnám í stjórnun veitir einn launaflokk Heilsugæslunám veitir einn launaflokk Nám í uppeldis- og kennslufræði, 15 einingar, veitir einn launaflokk en 30 einingar veita tvo launaflokka Annað sambærilegt nám veitir einn launaflokk Heimilt er að raða hjúkrunarfræðingi með doktorspróf í hjúkrun a.m.k. þremur launaflokkum ofar en ella ef nám- ið nýtist í starfi Viðtöl: Viðtöl við hjúkrunarforstjóra um mat og þróun starfs og starfsmanns. Fyrstu tvö árin á 6 mánaða fresti síðan einu sinni á ári. Sérstakt tímabundið álag/verkefni: Heimilt er að gera samning við starfsmann um að taka að sér sérstakt verkefni sem felur í sér tfmabundið álag. I slíkum tilvikum skal gera skriflegan viðbótarsamning við starfsmann um tímabundna hækkun launa. Samningar sem þessir taka til tímabundinna verkefna, t.d. ákveðna verkefnastjórnun, þátttöku í nefndum, tímabundið aukið stjórnunarálag umfram stjórnunarskyldu. Launaviðbót, sem byggist á tímabundnum verkefnasamningi, fellur nið- ur við lok samningstíma án sérstakrar uppsagnar að hálfu stofnunarinnar. Ef tímabundið verkefni hefur staðið leng- ur en í tvö ár skal tímabundinn samningur verða ótíma- bundinn. Um uppsögn á slfkum ráðningarkjörum gilda á- kvæði laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins. Fatnaður: Fatapeningar fyrir 100% starf 30.000 kr. eða skv. starfs- hlutfalli, skór 8.000 kr. annað hvert ár fyrir 100% starf en þriðja hvert ár fyrir 60-80% starf. Stofnunin útvegar úlpu með flíspeysu á 10 ára fresti til nota á vinnutíma. mmmmmmmmm HJÚKRUNARHEIMILIÐ SUNNUHLÍÐ Launarammar: B2 Almennur hjúkrunarfræðingur fyrstu 2 árin í starfi B3 Almennur hjúkrunarfræðingur eftir 2 ár í starfi B6 Aðstoðardeildarstjóri B10 Deildarstjóri Starfshlutfall 80% eða meira, 1 lfl. (á ekki við deildar- stjóra) Kvöld- og helgarvaktir 50% eða meira starfshlutfall af fullu starfi, 1 lfl. Hjúkrunarforstjóri raðast í C-ramma að teknu tilliti til umfangs starfs og ábyrgðar (semur sér). Menntun: Sérnám, sérleyfi eða 20 eininga formlegt viðbótarnám, einn launaflokkur í ramma A og B. Meistaranám, 2 lfl. í B-ramma og 1 lfl. í C-ramma Doktorsnám, 3 lfl. í B-ramma og 2 lfl. í C-ramma Tryggð við stofnun: Eftir 2 ár, 1 lfl. Eftir 5 ár, 1 Ifl. Þá verður sérstök áhersla lögð á að tryggja að starfsmenn, sem eru í starfi hjá Sunnuhlíð, dragist ekki aftur úr í laun- um samanborið við þá sem eru að hefja störf hjá heimilinu. Einnig verður í framgangskerfinu tekið sérstakt tillit til þeirra sem hafa 8 ára starfsaldur eða meira hjá Sunnuhlíð. Næturvakt: Grunnröðun fyrir næturvinnu, sem nemur 50% af fullu starfi eða meira, er B9 en hæsta röðun fyrir næturvinnu verður aldrei hærri en B14 hvað sem framgangi líður. Taka skal fram í ráðningarsamningi ef um fast nætur- vinnuhlutfall er að ræða. Þessi röðun á aðeins við þegar einn hjúkrunarfræðingur er á vakt. Fyrir næturvinnu, sem nemur 50% af fullu starfi, bætast 3 flokkar ofan á framgangsmat. Fyrir næturvinnu, sem nemur 60% eða meira af fullu starfi, bætast 4 flokkar ofan á framgangsmat. Framgangskerfið: Áfram skal unnið að því að framgangskerfið þróist með hag starfsmanna og stofnunar að leiðarljósi. Framgangs- kerfið skal endurmetið og yfirfarið árlega og hjúkrunar- fræðingar skulu metnir árlega samkvæmt framgangskerf- inu. I framgangskerfinu skal jafnframt tekið sérstaklega tillit til deildarstjóra. Einnig skal taka tillit til almennra hjúkrunarfræðinga sem ráðnir eru ótímabundið á allar vaktir í 50% stöðugildi eða meira. Timarit íslenskra hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.