Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Qupperneq 7
SiWaBWgiaHaraaBBB^'aBHlBaBigiaBBffiBaMBBWHHgWiWIWiWHWiaBMi
RITSTJORASPJALL
Valgeröur Katrln Jónsdóttir
rniimniMiw—b—É————w—OT'iiMftiMWWWWWffBWWWHHBBB
Frumkvöölar í
hjúkrunarstétt
„Ok skulum vér binda sár þeira manna, er líf-
vænir eru, ór hvárra liði sem eru.“
Þannig mælti Halldóra nokkur Gunnsteinsdóttir
í Víga-Glúms sögu. Bókarkápa hjúkrunarsögu
Maríu Pétursdóttur er skreytt mynd af um-
ræddri Halldóru í miðjum bardaga og taldi Mar-
ía Halldóru fyrstu íslensku hjúkrunarkonuna,
eða svo sagði hún í viðtali sem birtist hér í tíma-
ritinu fyrir fjórum árum. Vinkona Maríu og sam-
herji um margra ára skeið, María Lysnes, var þá
stödd hér á landi og birtist spjall við Maríurnar
tvær í Tímariti hjúkrunarfræðinga.
Eins og kom fram í máli Astu Möller á 30 ára af-
mæli námsbrautar í hjúkrunarfræði var saga
Maríu samofin hjúkrunarsögunni. María var
fædd á öðrum degi jóla og mikil trúkona. Hún
hafði mikil áhrif á samferðamenn sína og, eins
og ein vinkona hennar sagði, gat jafnvel breytt
afstöðu þeirra til ýmissa mála, svo sem sjúk-
dóma. María var sannfærð um samspil hugar og
líkama og með jákvæðu hugarfari og rækt trúar
væri unnt að draga úr sjúkdómum og jafnvel
lækna þá. Þessar skoðanir hafa eflaust þótt rót-
tækar í þá daga þegar vísindahyggjan var í há-
marki þó fleiri hafi í dag opnað augun fyrir hinu
flókna samspili hugar, líkama og umhverfis.
Það er því vel við hæfi að birta í þessu tölublaði
erindi Ragnheiðar Haraldsdóttur, sem hún flutti
á 30 ára afmælinu, og samantekt Erlu Dorisar
Halldórsdóttur um brautryðjendur í hjúkrunar-
stétt sem flutt var við sama tækifæri. Á hjúkrun-
arþingi, sem haldið var um hjúkrunarmeðferð og
rannsóknir í hjúkrun frá ýmsum sjónarhornum
árið 2000, en þar var m.a. fjallað um sértæka
meðferð í hjúkrun, flutti Margrét Hákonardóttir
erindi um áhrifamátt trúarinnar sem vakti at-
hygli margra viðstaddra. Þar kom meðal annars
fram að merkjanlegur munur var á líðan tveggja
hópa kransæðasjúklinga þar sem beðið var fyrir
öðrum hópnum en hinum ekki, án þess að hóp-
arnir vissu af því. Hún er hér með hugleiðingu
um áhrifamátt bænarinnar.
Valgeröur Katrín
Jónsdóttir
Gréta Berg er höfundur forsíðumyndarinn-
ar en hún segir frá sjálfri sér sem myndlist-
arkonu í pistlinum Hin hliðin, en hún er
Iíka jólabarn eins og María, fædd 26.
desember. Ingibjörg R. Magnúsdóttir segir
frá árum í ráðuneytinu og þeirri setningu sem sett var í lög um
heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi 20. maí 1978, en 29. grein-
in hljóðar svo: „Hjúkrunarstjóri skipuleggur hjúkrun á deild-
inni í samráði við hjúkrunarforstjóra og ber ábyrgð á henni.“
Þetta ákvæði hefur gert hjúkrunarfræðinga að sjálfstæðri
starfsstétt innan heilbrigðisþjónustunnar.
Ekki má gleyma Suzanne Gordon, femínista sem kom hingað
til lands að kenna hjúkrunarfræðingum að vekja athygli á
störfum sínum og meta sig á nýjan og framsækinn hátt. Og
Auðna Ágústsdóttir segir frá hvernig hún sjái fyrir sér að
hjúkrunarfræðingar geti nýtt sé boðskap Suzanne.
Og þá er ekkert annað eftir en að bjóða
GLEÐILEG JÓL.
TenderWeU
sáraumbúðir
Hreinsa Næra • Græöa
Veita sárinu
hreinsimeðferð í
allt að 24 klst.
Henta m.a. vel á;
• gömul/ ný sár
• fótasár
• sýkt sár
• dauðan vef
• fibrin í sári
• brunasár
BEDC0 & MATHIESEN EHF
Bæjarhraun 10» sími 565 1000 • bedco@bedco.is
Tímarit íslenskra hjúkrunarfræðinga 5. tbl. 79. árg. 2003 5