Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Síða 15
Laura Sch. Thorsteinsson
Maria ásamt starfsfólki Nýja hjúkrunarskólans. Frá vinstri: Lára
Scheving, Birna Flygenring, Bryndís Halldórsdóttir, Jóhanna
Bernharösdóttir, Soffía Siguröardóttir og Sigriöur Halldórsdóttir
María Pétursdóttir
Eg var svo lánsöm að fá tækifæri til að starfa
undir stjórn Maríu Pétursdóttur í tæpan áratug í
Nýja hjúkrunarskólanum og kynntist þar hinum
mörgu mannkostum hennar. Töluverður aldurs-
munur var á okkur Maríu en það var eins og það
skipti aldrei máli. Henni tókst að varðveita barn-
ið í sér með hrifnæmi og hressileika en hafði
jafnframt til að bera visku þess sem hefur lifað
margt á langri ævi. Hún hafði óbilandi trú á sam-
starfsfólki sínu, treysti því og leyfði hverjum og
einum að njóta sín í starfi.
María var frumkvöðuli og framsýn kona og langt á
undan sinni samtíð í ýmsum málefnum, ekki hvað
síst á sviði menntunarmála hjúkrunarfræðinga.
Hún var eldhugi og hugsjónamanneskja. Sterka
framtíðarsýn hafði hún fyrir hjúkrun og vildi veg
hennar sem mestan. Var hún tilbúin að fórna því
sem þurfti til að sjá framtíðardraumana rætast og
horfði ekki í kostnaðinn þegar því var að skipta.
María var hnyttin í tilsvörum, fyndin og
skemmtileg. Hún var fljót að koma auga á hið
spaugilega í tilverunni og gerði óspart grín að
sjálfri sér. Jafnframt var hún einstaklega Ijúf og
elskuleg, ekki síst þegar eitthvað bjátaði á, og
vildi öllum gott gjöra. Hún átti líka einlæga trú
og talaði um Guð sem vin sem stóð við hliðina á
henni.
Minningar mínar um Maríu eru stórbrotnar og
hlýjar eins og hún sjálf og þær munu halda áfram
að lifa í huga mér þótt hún hafi horfið af sjónar-
sviðinu. Eg minnist hennar með djúpri virðingu
og þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir hjúkrun
og fyrir mig persónulega.
Fréttamolar...
mHHnBBBBBBflnBnHMHHn
Útgáfa afmælisrits til heiðurs Ólafi Ólafssyni,
fyrrverandi landlækni, 75 ára
11. nóvember sl. varö Ólafur Ólafsson, fyrrverandi land-
læknir og núverandi forystumaður í samtökum eldri
borgara, 75 ára. Af því tilefni hafa nokkrir vinir hans og
velunnarar ákveöiö aö efna til útgáfu, honum til heiðurs,
á völdu efni úr handraöa afmælisbarnsins. Þar er fjallað
um heilbrigöismál í víöum skilningi, margs konar þjóðfé-
lags- og réttindamál, alþjóöamálefni og málefni eldri
borgara. Frásagnirnar eru fjölbreyttar og fróðlegar og
allar í anda Ólafs, hnitmiöaöar og hispurslausar og siðast en ekki síst
eru þær bráðskemmtilegar - þar sem þaö á viö.
Áætlað er aö afmælisritið komi út í maí á næsta ári, en Bókaútgáfan
Hólar hefur tekiö að sér útgáfu þess og er ritnefndin skipuö þeim Sig-
uröi Guömundssyni, landlækni, Benedikt Davíössyni, formanni Lands-
sambands eldri borgara, og Vilhelm G. Kristinssyni, rithöfundi sem jafn-
framt er ritstjóri verksins.
Afmælisritið veröur selt i áskrift og greiðist það fyrir fram 4.900 kr. og
er sendingargjald innifalið. í ritinu veröur heiilaóskaskrá (tabula gratu-
latoria) og er það von ritnefndarmanna að hún veröi sem lengst og
glæsilegust. Þeir velunnarar Ólafs, sem áhuga hafa á því aö senda hon-
um afmæliskveðju og eignast um leiö bókina, eru hér með hvattir til
þess aö hafa samband I síma 557-9310/557-9215 eöa senda rafpóst i
netfangið holar@simnet.is.
Breytingar á reglum styrktarsjóðs BHM
Eftirfarandi breytingar hafa veriö geröar á starfsreglum styrktarsjóðs
BHM:
Liður 1: Bætt er viö nýjum lið sem er c) liður en þar segir:
Sjóöfélagi nýtur réttinda i sjóöinn i tvö ár eftir aö hafa fullnýtt
réttinn til dagpeninga vegna veikinda.
Liður 6: Fjárhæð dagpeninga hækkar úr 6.000 kr. í 7.000 kr. og í b) lið
er fellt út orðið langtíma í setningunni „í kjölfar langtíma
veikinda barns1'
Liður 7: Útfararstyrkur hækkar úr 200.000 kr. í 250.000 kr.
Liður 10: a) Styrkur vegna „laser" aögeröa á augum er hækkaður úr
25.000 kr. 30.000 kr. fyrir hvort auga. b) Á þriggja ára fresti eru greidd
30% af veröi gleraugna sem kosta meira en 10.000 kr. Áöur voru greidd
30% af verði sjóngleranna og 5.000 kr. vegna umgjarða.
Liður 11: Greidd eru 30% af tannlæknakostnaöi, sé hann umfram
50.000 kr. á einu ári.
Breytingarnar tóku gildi 29. september 2003.
Reglurnar i heild má finna undir styrkir og sjóöir á heimasíðu félagsins,
www.hjukrun.is. Bryndís Jónsdóttir, deildarstjóri styrkveitinga hjá BHM,
sér um afgreiðslu styrkjanna og veitir nánari upplýsingar á skrifstofu
BHM eöa i síma 5812090.