Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Page 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Page 21
PiSTILL Gréta Berg, hjúkrunarfræö- ingur og myndlistakona Vornótt Óskasteinn Unglingurinn í skóginum Óskasteinn Óskasteinn næstum loftkennd, og hérumbil einginn veruleiki framar, aðeins leiðslukent ástand vornæturinnar, fjarri svefni, ofar vöku, ver- öld, vitund. Hann hafði lagt andlit sitt á öxl hennar. Guð, hvíslaði hann, því nú heyrði hann aft- ur kraftbirtíng guðdómsins. Eg er þess ekki verður! Hún strauk lófa sínum yndislega um gullna lokka hans. Guð, stundi hann, já ég hef altaf vitað það. Honum fanst hann stæði nú eftir lángar villur við brunn lífsins sjálfs og þyrfti ekkert að óttast framar að eilífu. Gréta er í hálfri stöðu sem hjúkrunarfræðingur á geðsviði Reykjalundar. Hvernig semur hjúkrun- arfræðingnum og myndlistarmanninum? „Ég hef oft brugðið mér í listina þegar ég er á vakt en alltaf fundið hve stirt það er,“ segir Gréta, „það er eins og að fara yfir í annað land en vera þó á sama stað. Skjólstæðingum mínum hefur þótt gaman að sjá hvernig andlit þeirra kemur smám saman á pappírinn eða þegar ég hef farið út í að teikna kletta og brim. Sköpun er slökun og mál- verk er olía og strigi þangað til sérstök hug- myndafræði tengist því, þá er það orðið manni hjartfólgið. Oft hef ég leitt hugann að því að hætta að vinna við hjúkrun því þá myndi allt verða auðveldara varðandi myndlistina. Nú sem miðaldra öldungur hef ég komist að því að skjól- stæðingar mínir eru mér uppsprettur nýrra hugmynda. Allar myndir, sem ég geri, verða að tákna eitthvað sem mér er kært þá stundina, tengt huglægum gildum lífsins, ljóðum eða sög- um. Ég hef þá vissu að allar myndir, sem ég geri, hver og ein sé tileinkuð einhverri sérstakri mannveru sem af tilviljun rekst inn á sýningu eða á einhvern hátt annan fær myndina og þessi tilfinning hefur styrkst með árunum." Fram undan eru nokkrar helgar sem hún ætlar að tileinka list- gyðjunni, búin að baka smákökur í byrjun nóvember til að geta óskipt helgað sig Iistgyðjunni. Hún er enn að bæta við sig, nú í námi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í listadeild. Hún segist ekki hafa tölu á því hvað hún hafi gert myndverk sem eru unnin með ýmsu móti, teiknuð með blýanti, koli eða máluð með akrýllitum, vatnslitum og olfulitum en mörg verka hennar eru í eigu stofnana, eitt verk, sem heitir Florence Nightingale, er í eigu hjúkrunarfræðideildar Háskóla Islands. Að auki hefur hún sinnt hjúkrunarstarfinu, lengst af í fullu starfi á Akureyri, og komið upp fjórum börnum með eigin- manni sínum, „því hann hefur sannarlega stutt mig með því að gefa mér friðarstundir með listgyðjunni þegar fjörugu stúlkurnar okkar voru að alast upp.“ Hún segir að lokum að hana langi til að læra myndterapíu og sameina þannig tvær Iistgreinar, nefnilega hjúkrun og mynd- listina. Tímarit islenskra hjúkrunarfræðinga 5. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.