Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Page 37

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Page 37
VIÐTAL Hvers vegna láta hjúkrunar- fræðingar þetta viðgangast? lækna til að fá álit þeirra. Mikil þögn hafi hins vegar umlukið störf hjúkrunarfræðinga og þegar verið sé að taka mikilvægar fjárhagslegar ákvarð- anir skipti oft meginmáli að læknarnir fái ný tæki- eða „leikföng" eins og hún kallar tæknibún- aðinn og til að það sé unnt er lagt til að fækka stöðugildum hjúkrunarfræðinga. Suzanne segir að hjúkrunarfræðingar hafi ekki verið nógu dug- legir að láta umhverfið vita af því að þeir veiti sjúklingum bæði umhyggju og lækningu. „Við getum ekki barist með góðmennskuna að vopni,“ segir hún og bætir við að í Bandaríkjun- um sé talað um að einkunnarorð hjúkrunar séu T.L.C. eða tender, love and care. Hér á íslandi séu einkunnarorðin hugur, hjarta og hönd. „Hjúkrunarfræðingar verða að leggja áherslu á að segja frá störfum sínum og því að hjúkrun er spurning um líf og dauða. Þegar fólk er mikið veikt verður hvert smáatriði varðandi hjúkrunina risastórt og þekkingarskortur getur orðið okkur að fjörtjóni," segir Suzanne. Hún bætir við að öll þurfum við einhvern tíma á þjónustu hjúkrunar- fræðinga að halda ef við lifum nægilega lengi. Umfjöllun fjölmiðla byggist í of mildum mæli á því að læknar hafi gert aðgerðir sem bjarga lífi þeirra sem þurfa á læknunum að halda en í öll-, um tilvikum séu aðgerðirnar gerðar með aðstoð hjúkrunarfræðinga sem séu jafnvel ábyrgir fyrir þvf að allt sé til staðar og réttu tækin notuð. En hvers vegna eru hjúkrunarfræðingar svona ó- duglegir að segja frá störfum sínu? Suzanne rek- ur það til þess að hjúkrunarstéttin á uppruna sinn í kristnum klaustrum, það voru nunnur sem sinntu veikum og sjúkum og samkvæmt þeirra hugmyndafræði áttu þær að láta verkin tala og stæra sig ekki af því sem þær gerðu né ræða um störf sín og fórnarlund. Fyrstu ímyndir almenn- ings um hjúkrunarkonur voru englar, þær höfðu engin formleg völd og hlutverk þeirra var að breyta sjúkrahúsunum úr sársaukastað í sælu- stað. Hjúkrunarfræðingar eru fyrsta kvennastétt- in og hugmyndir um kvenlegar dyggðir eru ríkj- andi enn þann dag í dag. Oft er ekki rætt um hjúkrunarfræðinga, hún nefnir sem dæmi að í samtökunum „Læknar án landamæra'* séu fleiri hjúkrunarfræðingar en læknar og væri í því til- felli eðlilegra að nefna samtökin „Læknar og hjúkrunarfólk án landamæra'' eða einfaldlega „Heilbrigðisstarfsfólk án landamæra". „Þið þurfið að segja almenningi hvernig það er að hugsa eins og hjúkrunarfræðingur." Hvers vegna láta hjúkrunarfræðingar þetta viðgangast? spyr Suzanne. Hvers vegna leggja þeir áherslu á umhyggjuþáttinn í störfum sínum, jafnvel þó þeir hafi mikilvægu hlutverki að gegna í sjúkdómsgreiningum og meðferð? Svarið segir hún fel- ast m.a. í því að margir hjúkrunarfræðingar segjast ekki þurfa að segja frá störfum sínum, sjúklingarnir þekki til þeirra. En sjúklingarnir þekkja ekki til starfa hjúkrunarfræðinga, segir Suzanne nema þeim sé sagt frá þeim. „Þig þurfið að segja almenningi hvernig það er að hugsa eins og hjúkrunarfræðingur, segja frá því þegar þið hafið skoðað sjúkling og segið lækninum að hann hafi þessi og hin sjúk- dómseinkenni," segir hún. Hjúkrunarfræðingar sjá um að sjúkrahús séu öryggir staðir fyrir sjúklinga og með störfum sínum koma þeir í veg fyrir margs konar heilbrigðisvandamál og spara á þann hátt mikið fé. Suzanne segir mikilvægt að til að hjúkrunarfræðingar geti lát- ið rödd sína heyrast í samfélaginu þurfi þeir að skilgreina sig á annan hátt en áður. Þeir þurfi í auknum mæli að leggja á- herslu á þá þekkingu sem liggi að baki störfum þeirra. Þögn- ina, sem umlykur störf hjúkrunarfræðinga, segir hún vera al- heimsvandamál. „Hjúkrunarfræðingar segja gjarnan að ýmis vandamál hjúkrunar séu vegna þess að stéttin sé kvennastétt. En það eru til konur á öllum sviðum samfélagsins sem hafa látið til sín taka. Hjúkrunarfræðingar eiga ekki að sætta sig við annað en fá fulla viðurkenningu á mikilvægi starfa sinna. Það er til athyglisverð saga af ballettmeistaranum Rúdolf Núrejev. Þar sem hann vann í Bandaríkjunum kom hann illa fram við dansara sem unnu með honum, æpti á þá og barði. Dansar- arnir létu sig hafa þetta þó þeir hefðu með sér samtök sem hefðu getað tekið á þessu. Hann fór svo til Svíþjóðar og tók til við að stjórna dönsurum þar. Hann byrjaði á því að haga sér á þann hátt sem hann var vanur, en dansararnir horfðu bara á hann og gengu út og sögðu að þeir kæmu ekki aftur fyrr en Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.