Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Side 41
Fréttamolar...
ing fylgikvilla sparar mikið), að árangur aukist
(með markvissri fræðslu má auka þátttöku sjúkl-
inga) að dregið sé úr líkum á mistökum, að þver-
fagleg samvinna sé til staðar og að gagnreyndum
starfsháttum (evidence-based practice) sé beitt.
Einnig brýndi Suzanne okkur til að nota hvert
tækifæri til að kveða goðsagnir í kútinn. Sérstak-
lega nefndi hún að hjúkrunarfræðingar þurfi að
undirstrika að þeir hafi menntað sig til þessara
starfa en séu ekki bara fæddir hjartahlýir og með
kvenlegt innsæi, þeir eru ekki handlangarar fyrir
lækna og vinna ekki sem þjónustustúlkur. Þvert
á móti þarf að koma fram að hjúkrunarfræðingar
tilheyra fagstétt sem er byggð á vísindalegum
grunni, búa yfir tækniþekkingu og hafa lært að
sýna faglega hlýju.
Hjúkrunarfræðingar þurfa ekki að bíða eftir að
verða sóttir í viðtöl. Við getum líka komið okkur
á framfæri sjálfir ef við erum vakandi fyrir hverju
tækifæri. Það er hægt að brydda upp á samræð-
um í boði (t.d. við frænku fermingarbarnsins
sem vinnur í heilbrigðisráðuneytinu), það má
senda tölvupóst eða bréf með upplýsingum,
bregðast við fréttum í fjölmiðlum sem ekki sýna
hjúkrunarfræðinga í réttu ljósi eða hafa samband
við þingmann vegna frumvarps til laga um heil-
brigðismál. Flest af þessu fólki fagnar að hafa
samband við einhvern sem þekkir til og getur
veitt upplýsingar. Þá sakar ekki heldur að hjúkr-
unarfræðingar hafi æft sig að koma á framfæri á
skýran og skilmerkilegan hátt aðalatriðum máls-
ins.
Félagsráðsfundur
Félagsráðsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn föstu-
daginn 10. október 2003 að Suðurlandsbraut 22. Suzanne Gordon flut-
ti erindi sem nefndist „Að
brjóta niðurveggi þagnarinn-
ar. Moving from Virtue to
Knowledge in Explaining
Nursing Critical Work to the
Public". Ingunn Sigurgeirs-
dóttir kynnti rekstrarreikning
janúar - september 2003 og
breytingar á starfsreglum
styrktarsjóös BHM. Elsa B.
Friðfinnsdóttir kynnti starfsáætlun stjórnar 2003-2005 sem samþykkt
var á fulitrúaþingi í maí sl. Fundargerð fundarins er að finna á heima-
siðu félagsins www.hjukrun.is.
Bókin um bakið
Bókin um bakið kom nýlega út hjá landlæknisembættinu í prentútgáfu.
Hún hefur að geyma ráð um það hvernig best er að bregöast viö og
hafa stjórn á bakverkjum, hvernig hægt er að ná sér tiltöluiega fljótt og
halda sér gangandi með þvi hreyfa sig eftir getu og lifa sem eðiilegustu
lífi þrátt fyrir verki. Bakverkir eru mjög algengir
og valda mikilli vanliðan og vinnutapi og má
fullyrða að mikil þörf sé fyrir ráð af þessu tagi.
Landlæknisembættið vill með útgáfunni koma
þessum ráðleggingum á framfæri við þá sem
þjást af bakverkjum og hefur mælst til þess að
læknar, sjúkraþjálfarar og kírópraktorar afhendi
sjúklingum sínum bæklinginn til að hjálpa þeim
að ráða við bakverkina strax á bráðastiginu.
. <• { Bókin um BAKIÐ
B«sta leióin til oð stjórno bakveiljum
i ~~JT
jjL • pW iL Ea
1 P’ ’ j jl*-' jog hal^g ú' )goftgandi f '■ X
R,
Bókin um bakiö, sem á frummáiinu nefnist The
Back Book, er samin af hópi breskra sérfræðinga úr mörgum sérgrein-
um, bæklunarlækningum, heimilislækningum, sjúkraþjálfun, hnykking-
um og sálfræði, og styöst við áreiöanlegustu rannsóknir á þessu sviði.
Magnús Ólason, yfirlæknir á Reykjalundi, þýddi bókina, en hann stýrði
einnig vinnuhópi um klínískar leiðbeiningar um bráða bakverki sem
landlæknisembættið gaf út í árslok 2002. Hefur bæklingurinn verið
þýddur á 16 tungumál og rannsóknir á gagnsemi hans hafa leitt í Ijós
jákvæö áhrif á viðhorf jafnt sjúklinga og lækna.
Bæklingurinn er 21 bls. og er prentaöur I Prentsmiðjunni Odda sem sér
um dreifingu til stofnana, lækna og annarra meðferöaraöila gegn
greiðslu sendingarkostnaöar. Einstaklingar, sem vilja náigast bækling-
inn, geta fengið hann á skrifstofu landlæknisembættisins og hjá heilsu-
gæslustöðvum.
Einnig er hægt aö nálgast vefútgáfu bæklingsins á vefsetri landlæknis-
embættisins: www.landlaeknir.is.
Timarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003
39