Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Page 53
Fréttamolar...
Brautskráðir nemendur í hjúkr-
unarfræði frá Háskólanum á
Akureyri með BS- próf og heiti
lokaverkefna
María B. Guöjónsdóttir, Helena Eydal og Hildur Hauks-
dóttir. Upplifun skólahjúkrunarfrœðinga af hlutverki
sínu í úrvinnslu tilfinningalegra þátta hjá unglingum.
Anna Lilja Björnsdóttir og Edda B. Sverrisdóttir. Erþörf
fyrir heimahjúkrun barna á Akureyri?
Kamilla Hansen, Jón Garöar Viðarsson, Nína Brá Þórar-
insdóttir og Kolbrún Jónsdóttir. Frœðsla til foreldra sem
eru að fara með börn sín í ferliaðgerð.
Ingibjörg Jónsdóttir. Einmanaleiki aldraðra: Upprifjun
minninga sem hjúkrunarmeðferð.
Heiða Hauksdóttir, Sólveig Tryggvadóttir og Þórdís R.
Sigurðardóttir. Heilsa og líðan nemenda við Háskólann á
Akureyri.
Eydís Ingvarsdóttir, Ingibjörg Jóhannesdóttir, Jónína
Pálsdóttir og Jóhanna Margrét Ingvarsdóttir. Þvagleki á
meðgöngu og eftir fœðingu: Forprófun á spurningalista.
Berglind Kristinsdóttir, Ingibjörg Lára Símonardóttir og
Sandra Hrönn Sveinsdóttir. Aö sinna sálfélagslegum
þörfum einstaklinga meö krabbamein og aðstandenda
þeirra. Könnun meðal hjúkrunarfrœðinga á mikilvœgi,
fœrni og framkvœmd.
Ann-Merethe Jakobsen, Charlotta M. Evensen og S. Þyri
Stefánsdóttir. Algengi lyfjamistaka meðal hjúkrunar-
frœðinga á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Fanney Maríasdóttir, Heiðdís Karlsdóttir, Helga Hákon-
ardóttir og Soffía B. Sigurjónsdóttir. Lífmeð insúlínháöa
sykursýki. Áhrif aðlögunar og andlegrar líðanar á blóð-
sykurstjórn.
Björk Jóhannsdóttir og Edda Guðrún Kristinsdóttir. Upp-
lifun einstaklinga með sáraristilbólgu (ulcerative colitis)
á eigin heilbrigði og velliöan.
Vinnufundur ritnefndar í Kvennabrekku
Vinnufundur ritnefndar var að þessu sinni haldinn í
Kvennabrekku 24. október sl. Fyrst var haldið að
Reykjalundi og Lára M. Sigurðardóttir, hjúkrunarfor-
stjóri, sagði frá stofnun, uppbyggingu og starfsemi
stofnunarinnar. Að loknum hádegisverði i matsal
Reykjalundar var haldið í Kvennabrekku og línur lagð-
ar varðandi efni tölublaða næsta árs.
Nýr bæklingur um HIV og alnæmi
Út er kominn bæklingurinn Staðreyndir um HIV og alnæmi hjá sótt-
varnasviði Landlæknisembættisins. Hann leysir af hólmi bækling um
sama efni sem út kom árið 1996. Nýi bæklingurinn hefur verið endur-
saminn frá grunni og verður hann innan skamms einnig gefinn út á sex
erlendum tungumálum, ensku, pólsku, rússnesku, serbó-króatísku, ta-
galónsku og thailensku. Er það nýlunda i útgáfustarfi embættisins og er
með því vonast til að bæklingurinn nái til alls þorra fólks í landinu.
Meðal efnis í bæklingnum eru skilgreiningar á HlV-smiti og alnæmi,
umfjöllun um smitleiðir, hvenær HIV smitast ekki og hvernig er hægt aö
koma í veg fyrir smit. Mikið hefur verið lagt í útlit bæklingsins sem er
iitríkur og prýddur fjölda mynda.
Fyrstu eintök bæklingsins voru afhent 10. október sl. þeim Davið Gunn-
arssyni, formanni Stúdentaráðs Háskóla íslands, og Jórunni Ásmunds-
dóttur sem á sæti í Stúdentaráði H.Í.. Þau tóku við eintökunum á skrif-
stofu Landlæknisembættisins úr hendi Sigurlaugar Hauksdóttur, yfirfé-
lagsráðgjafa og verkefnisstjóra um HlV/al-
næmisforvarnir, og Haraldar Briem sótt-
varnalæknis. Við það tækifæri var farið yfir
stöðu mála varðandi HlV-smit og alnæmi hér
á landi um leið og þeim var falið það verkefni
aö koma bæklingnum á framfæri við sam-
nemendur sína í Háskóla íslands.
Flestir sem greinast með HlV-smit eru ungt
fólk á aldrinum 25-30 ára. Því þótti við hæfi
að fulltrúar ungs fólks tækju við fyrstu ein-
tökunum. Fyrirhugað er að koma bæklingn-
um á framfæri sem víðast meðal ungs fólks
auk þess sem honum verður dreift hjá heilsugæslunni, í apótekum og
viðar.
Þótt ekki hafi heyrst mikið talað um HlV/alnæmi hér á landi að undan-
förnu þýðir það ekki að smitunartíðnin sé í rénum. Fólk um heim allan
smitast í gríðarlega miklum mæli og er nú svo komið að 1,2°/o mann-
kyns 15 ára og eldri er meö HlV-smit eöa alnæmi. Tæplega helmingur
þeirra sem greinast með HlV/alnæmi hér á landi smitast i útlöndum en
hinir hér heima. Þótt smitunartíðnin sé hæst meðal ungs fólks, jafnt hér
á landi og í heiminum öllum, er mikilvægt að hafa hugfast að fólk smit-
ast á öllum aldri.
Hægt er aö fá bæklinginn á skrifstofu landlæknisembættisins að Austurströnd 5, Sel-
tjarnarnesi. Auk þess er hægt að nálgast hann á vefsetri landlæknisembættisins,
www.landlaeknir.is.
Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003
51