Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Qupperneq 54
Helga Birna Ingimundardóttir, hagfræöingur
BHMHnm
Fleiri stofnanasamningar
Enn bætast við nýir stofnanasamningar og eru þeir birtir að
venju hér í Tímariti hjúkrunarfræðinga. Hægt er að nálgast þá
í heilu lagi á heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
www.hjukrun.is, undir kjaramál/stofnanasamningar. Þá er
einnig vakin athygli á því að undir liðinn kjaramál á heimasíðu
félagsins hefur verið bætt við nýjum undirflokki er nefnist al-
gengar spurningar og svör. Þar er hægt að fá svör við algeng-
um spurningum er varða veikindi, orlof, frítökurétt, fæðingar-
orlof, vaktavinnu og annað. Þessi undirflokkur er í stöðugri
skoðun og mun reglulega verða bætt inn á hann nýjum spurn-
ingum er upp kunna að koma.
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ:
Lágmarksrööun:
Hjúkrunarfræðingur 1 A12
Hjúkrunarfræðingur 2 A16
Sérfræðingur 1 BIO
Sérfræðingur 2 B15
Verkefnastjóri CIO
Forstöðumaður C13
Yfirhjúkrunarfræðingur C17
Starfslýsingar:
Við röðun verði miðað við starfslýsingar starfsmanna. Starfslýs-
ingar verði endurskoðaðar við allar varanlegar breytingar á verk-
sviði starfsmanna og/eða skipulagi stofnunar.
Viðurkennd námskeiö:
Vegna viðbótarmenntunar og endur- og símenntunar bætist við
grunnröðun með eftirfarandi hætti:
Viðbótarmenntun á háskólastigi, 1 launaflokkur.
Endur- og símenntun, sem nýtist í starfi, skal metin til allt að 3
launaflokka.
Námskeið vegur minnst 1/2 einingu og mest 5 einingar. Námskeið
séu haldin af viðurkenndum aðilum. Onnur skipulögð menntun á há-
skólastigi svo og námsdvöl við innlendar og erlendar stofnanir getur
gefið allt að 10 einingar. Þátttaka í fagráðstefnum og námstefnum
getur gefið allt að 3 einingar, mest ef þátttakandi er sjálfur fyrirlesari.
Starfsreynsla:
Eftir tólf mánaða starfsreynslu hjá Landlæknisembættinu hækl<a
starfsmenn, sem grunnraðað er í B- og C-ramma, um einn launaflokk.
Endurmat starfskjara:
Einu sinni á ári skulu störf starfsmanna og starfskjör metin og þeir
þættir endurmetnir sem hafa áhrif til hækkunar á röðun starfsmanna
innan ramma svo og með tilliti til þess hvort starf skuli fært til ann-
ars starfsflokks. Stefnt er að því, að þessu endurmati ljúki fyrir 1.
nóvember og aldrei sfðar en 31. desember ár hvert.
Tímabundiö frávik frá verksviði:
Sé starfsmanni falið tímabundið verkefni sem felur
í sér meiri ábyrgð en gert er ráð fyrir í starfslýsingu
skal hann fá hækkun launa meðan á því stendur.
Greitt skal samkvæmt þeirri ábyrgð sem starfið fel-
ur í sér. Hafi starfsmaður starfað lengur en 13 mán-
uði samfleytt á þessum kjörum verða þau varanleg.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI:
Launarammar:
Almennur hjúkrunarfræðingur B5
Verkefnisstjóri B5
Deildarstjóri B8
Hjúkrunarforstjóri C12
Mat á einstökum þáttum:
Formlegt 15 eininga viðbótarnám skal meta til
hækkunar um 1 launaflokk.
MS-próf skal meta til 1 launaflokks hækkunar.
Doktorspróf skal meta til 1 launaflokks hækkunar.
Vegna óvenjulega umfangsmikillar þjónustu er
starf deildarstjóra heimahjúkrunar metið til 2
launaflokka hækkunar.
Eftir samtals 4 ára starf hjá Akureyrarbæ sem
hjúkrunarfræðingur skal starfsmaður hækka um 1
launaflokk.
Virkni framgangskerfis:
: Framgangskerfi hjúkrunarfræðinga við heilsugæslu-
I stöðina veitir hjúkrunarfræðingum möguleika á að fá
| viðurkenningu sem m.a. leiðir til launalegs ávinnings.
Almennur hjúkrunarfræðingur með grunnröðun B5
getur hækkað um allt að 2 launaflokka vegna fram-
gangs.
Verkefnisstjóri með grunnröðun B8 getur hækkað
um allt að 2 launaflokka vegna framgangs.
Deildarstjóri með grunnröðun B8 getur hækkað
um allt að 2 launaflokka vegna framgangs.
Hjúkrunarforstjóri er ekki metinn í framgangskerfi.
HEILBRIGÐISSTOFUNIN, SAUÐÁRKRÓKI
Launarammar:
Hjúkrunarfræðingur I
er byrjandi í starfi: B5-B6
Hjúkrunarfræðingur II
er byrjandi kominn vel á veg í starfi B6-B7
52
Tímarit islenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003