Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Síða 7
RITSTJÓRASPJALL
Valgeröur Katrín Jónsdóttir
Góð heilsa
er gulli betri
„Hjúkrunarkonur voru hin þögla stétt í heil-
brigðisþjónustunni," segir Margrét Guðmunds-
dóttir sem vinnur við að rita sögu hjúkrunar hér
á landi. Hún leitar víða fanga við ritun sögunnar
og segir fáar hjúkrunarkonur hafa ritað ævisögur
sínar. I viðtali hér í þessu tölublaði óskar hún
eftir gögnum fyrir hjúkrunarsöguna, frásögnum,
bréfum, dagbókum og ljósmyndum sem geta
brugðið ljósi á ýmislegt í þessari merkilegu sögu.
Sagan segir okkur oft merkilega hluti og margt
sem við vissum ekki eða áttuðum okkur ekki á.
Þannig bendir Margrét á hve fyrstu hjúkrunar-
konurnar voru áhrifamiklar við uppbyggingu
heilbrigðisþjónustu hér á landi, þær hafi t.d. sett
á fót berklavarnastöð, ungbarnaeftirlit og
mæðravernd í Reykjavík.
Konur á Islandi hafi einnig tekið við hlutverki
útlendinga varðandi uppbyggingu sjúkrahúsa hér
á landi. Þannig ákváðu formæður okkar að minn-
ast þess að þeim var veittur kosningaréttur til Al-
þingis árið 1915 með því að leggja fram 1/3 hluta
af kostnaði við byggingu Landspítala sem nú
heitir Landspítali-háskólasjúkrahús. Með til-
komu alþýðutrygginga árið 1936 var Islending-
um tryggð ókeypis sjúkrahúsvist á opinberan
kostnað. Áður þurfti fólk að segja sig til sveitar
ef það varð fyrir heilsutjóni og hafði ekki efni á
að greiða fyrir dýra læknisþjónustu og legu á
sjúkrahúsum.
Það er vert að hugleiða hvernig staða fólks var
hér áður fyrr þegar fyrir dyrum standa breyting-
ar á heilbrigðisþjónustunni. I hringborðsum-
ræðum hjúkrunarfræðinga hér í blaðinu bendir
Elsa B. Friðfinnsdóttir á hve umræða um heil-
brigðismál hafi einskorðast við fjárlög og kostn-
að við heilbrigðiskerfið en ekki við lög um heil-
brigðisþjónustu og rétt sjúklinga og starfsfólks
til að fá góða þjónustu og búa við góð starfsskil-
yrði. Góð heilsa er gulli betri, stendur einhvers
staðar og eflaust ekki hægt að meta hana til fjár.
Ekki bara fyrir einstaklinginn hcldur samfélagið
Valgeröur Katrín
Jónsdóttir
allt. Eflaust er alltaf hægt að hagræða í
rekstri og endurskipuleggja í heilbrigðis-
kerfinu þó ekki sé alltaf hægt að nota sömu
rekstrarviðmið á sjúkrastofnunum og hjá
fyrirtækjum sem framleiða vöru eða sinna
þjónustu. Mistök, sem verða í heilbrigðiskerfinu, eru þannig
miklu alvarlegri en þau mistök sem verða á öðrum sviðum
þjóðfélagsins.
Eins og fram kemur í hringborðsumræðunum getur skert
þjónusta leitt til þess að meiri líkur verði á mistökum sem eru
óbætanleg fyrir einstaklinginn, fjölskyldu hans eða samfélagið
í heild. Hinn svokallaði sparnaður getur þannig breyst í
mikinn langtímakostnað margra aðila, ekki síst þess heil-
brigðiskerfis sem við höfum búið við í tæpa öld, svo ekki sé
talað um kostnað samfélagsins alls.
BEDCO & MATHIESEN EHF
Bæjarhraun 10 • sími 565 1000 • bedco@bedco.is
TenderWet
sáraumbúðir
Hreinsa Næra • Græöa
Veita sárinu
hreinsimeðferð í
allt að 24 klst.
Henta m.a. vel á;
• gömul/ ný sár
• fótasár
• sýkt sár
• dauðan vef
• fibrin í sári
• brunasár
Timarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004 5