Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Side 16
Sigrún K. Barkardóttir og Anna Eyjólfsdóttir
Samnorræn ráöstefna barna- og heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
„Börnin í dag: Umönnun án veggja"
Helgina 3.-5. október 2003 var haldin samnorræn ráöstefna barna- og heilsugæsluhjúkrunarfræöinga í Há-
skólabíói. Þetta var í þriðja sinn sem þessi samtök, NoSB, (Nordiska Sjuksköterskors samarbete om Barn), héldu
slíka ráöstefnu en þær hafa verið haldnar annaö hvert ár, fyrst í Stokkhólmi 1999, síðan í Bergen 2001 og nú
í Reykjavík. Þessi samtök hafa starfað síöan 1994 og eru haldnir stjórnarfundir árlega þar sem mæta yfirleitt
tveir fulltrúar frá hverju landi, þ.e. einn frá fagdeild barnahjúkrunarfræöinga og einn frá fagdeild heilsugæslu-
hjúkrunarfræöinga.
í undirbúningsnefndinni fyrir ráöstefnuna voru tveir hjúkrunarfræðingar úr fagdeild barnahjúkrunarfræöinga,
þær Guörún Kristjánsdóttir og Helga Lára Helgadóttir, og síðan Anna Eyjólfsdóttir og Sigrún K. Barkardóttir
úr fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga.
Nefndin hóf störf árið 2001, fyrir ráðstefnuna í Bergen og
dreifði þar blöðum með fyrstu tilkynningu um ráðstefnuna
hérlendis. Hjá nefndinni var frá upphafi mikill metnaður til
að gera þessa ráðstefnu sem alþjóðlegasta og fá góða fyrirles-
ara jafnt frá Norðurlöndunum sem annars staðar úr heimin-
um. Þetta har góðan árangur og fengum við fyrirlesara frá
Bandaríkjunum, Astralíu, Kanada, Stóra-Bretlandi, Irlandi og
Japan í viðbót við góðan hóp íslenskra og norrænna fyrirlesara.
Á dagskránni voru 62 fyrirlesarar og 22 veggspjaldakynningar.
Töluverð skipulagning lá að baki að koma þessu öllu fyrir á
tveimur dögum og þvf varð að nýta dagana vel. Ekki var þó
annað að heyra á fólki en það hafi tekist vel þótt einstaka gesti
hafi þótt framboðið heldur mikið og erfitt að velja á milli.
Föstudagurinn 3. október
Undirbúningsnefnd ráöstefnunnar, Guörún Kristjánsdóttir, Sigrún
Barkardóttir og Anna Eyjólfsdóttir (á myndina vantar Helgu Láru
Helgadóttur).
Stjórnarfundur NoSB var haldinn í Eirbergi á föstudeginum.
Á hann mættu fulltrúar frá íslandi, Svíþjóð, Danmörku,
Noregi og Færeyjum. Ekki hefur enn tekist að fá Finnland
með í samstarfið. Gestafyrirlesari á (undinum var Erla Kol-
brún Svavarsdóttir en hún hélt erindi um fjölskyldur með
langveik börn.
Móttaka og skráning á ráðstefnuna var síðan í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu milli kl. 17 og 19. Stefán Jón
Hafstein borgarfulltrúi bauð gesti velkomna fyrir hönd
Reykjavíkurborgar og boðið var upp á léttar veitingar.
Laugardagurinn 4. október
Ráðstefnan hófst formlega á laugardagsmorgninum ki. 8:30
með því að formenn beggja fagdeilda buðu gesti velkomna,
barnakór Dómkirkjunnar flutti nokkur lög og Guðrún Helga-
dóttir rithöfundur hélt opnunarræðu. Eftir það
var erindi aðalfyrirlesara ráðstefnunnar, Páls
Bierings. Það fjallaði um aukna þörf fyrir hjúkr-
un barna og unglinga sem hafa geðræn vandamál
því fjöldi þessara barna hefur stóraukist undan-
farin ár á Vesturlöndum. Hann velti fyrir sér efn-
inu út frá tveim hliðum. I fyrsta lagi þeim sið-
ferðilegu og meðferðarlegu spurningum sem
vakna þegar rekja má hluta orsaka versnandi
geðheilsu barna og unglinga til umhverfisþátta,
hvort heldur þeir þættir liggja í fjölskyldunni eða
í samfélaginu í heild. I öðru Iagi þeim spurning-
um sem varða það agavald sem læknisfræðin
hefur, í krafti sjúkdómsgreininga, yfir sjúkling-
um. Þetta erindi mæltist vel fyrir hjá þátttöku-
Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004