Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 28
punktastöðu sína og fá upplýsingar um hina ýmsu orlofskosti.
Reiknað er með að þessi þjónusta geti dregið verulega úr um-
fangi þeirrar handvirku þjónustu sem fram fer á skrifstofu fé-
Iagsins.
Tímarit hjúkrunarfræðinga á rafrænu formi er í mótun en
tímarit síðasta árs hefur þó verið gert aðgengilegt þannig að
hægt er að fá fram stakar greinar og prenta þær út. Unnið er
að tillögum um tímaritið á rafrænu formi og gert er ráð fyrir í
fjárhagsáætlun ársins að tölublöð síðustu 3 ára verði gerð að-
gengileg rafrænt.
Með nýju Ieitarkerfi er nú hægt að leita að efnisorðum og skil-
ar leitin svörum bæði um síðuinnihald sem og einstakar tfma-
ritsgreinar sem innihalda efnisorðið sem leitað er að.
Spjallrás hjúkrunarfræðinga virðist vera að skapa sér sess sem
vettvangur hjúkrunarfræðinga til að láta skoðanir sínar í Ijós um
hin margvíslegu málefni er varða hjúkrunarfræðinga. Nú þegar
er hafin nokkur umræða um aðgerðirnar á LSH, komandi kjara-
samninga og margt fleira spennandi sem vert er að skoða með
því að skrá sig inn á spjallið á www.hjukrun.is.
Spjallsvæði hafa náð ótrúlegum vinsældum um allan heim og
það er því að þakka að við eigum nú einnig kost á að nýta okkur
þessa tækni til skoðanaskipta. Fjölmiðlar hafa undanfarið beint
ljósi sínu að spjallrásum ýmiss konar varðandi nafnleynd og að-
gengi að upplýsingum um notendur spjallrásanna. Vandlega hef-
ur verið farið yfir verklag á spjallrás félagsins og skal það áréttað
að spjallsvæðið okkar er lokað öðrum en hjúkrunarfræðingum
sem eru félagar í Fíh. Vefstjóri hefur yfir að ráða upplýsingum
um hvaða notendur standa að baki notendanöfnum.
Einn hornsteinn þessara spjallsamskipta er réttur einstaklings-
ins til efnisvals og þess hvort hann/hún vill koma fram undir
eigin nafni. Annar hornsteinn samkiptanna er einmitt réttur
spjallenda til að velja hvort þeir lesa spjallþræði þeirra sem
ákveða að koma einungis fram undir notendanafni. Af vali fólks
á notendanöfnum má ljóst vera að þeim mundi snarfækka sem
tækju þátt í þessum skoðanaskiptum ef þeim væri gert að skrifa
undir eigin nafni.
Það er vissulega gild skoðun að spjallnotendum beri að koma
fram undir eigin nafni þegar efni er sett inn á spjallsvæðið, en
margar ástæður geta þó Iegið að baki að fólk kýs að skrifa undir
notendanafni. Þetta á ekki síst við nú þegar atvinnumál alls
starfsfólks á stærsta vinnustað hjúkrunarfræðinga eru í uppnámi
og fólk býr við öryggisleysi, þá verða hjúkrunarfræðingar að hafa
möguleika á skoðanaskiptum um það ástand án þess að eiga á
hættu að skoðunum þeirra verði snúið gegn þeim.
Fimmtudagspistill formanns félagsins hefur vakið mikla athygli
og m.a. er ljóst að fjölmiðlafólk er farið að veita
skoðunum formannsins athygli. Fimmtudag-
spistillinn eykur stöðugt vinsældir sfnar og um
600 gestir skoðuðu hann í síðasta mánuði. Pistl-
arnir eru allir vistaðir á vefþjóni þannig að hægt er
að skoða þá eitt ár aftur í tímann.
Fram undan er frekari uppbygging á vefsvæðinu
þar sem stefnt er að aukningu á þeirri þjónustu
sem félagsmenn geta sótt á vefinn. A teikniborð-
inu er uppsetning dagbókar eða vefdagatals þar
sem lesa má hvaða viðburðir eru á döfinni hjá
félaginu, deildum þess eða ef sérstök ástæða er
til að benda á uppákomur eða dagskrárliði. Unn-
ið er að uppsetningu dagbókarinnar um þessar
mundir.
Eins og hjúkrunarfræðingar vita er nú afmælisár
hjá okkur þar sem við höldum upp á 85 ára félags-
sögu hjúkrunarfræðinga á Islandi. Þessa verður
minnst með ýmsum hætti en afmælisnefndin hef-
ur fengið til afnota sérstakt vefsvæði til að koma á
framfæri upplýsingum til félagsmanna. Unnið er
að samantekt um sögu félagsstarfsins.
Í athugun er að setja upp fyrirspurnakerfi,
„quick vote“, þar sem á einfaldan hátt er hægt að
leita til vefnotenda um hug þeirra til ákveðinna
málefna. Kerfið gefur stjórnendum Fíh mögu-
leika á að kanna afstöðu félagsmanna í einstök-
um málum þannig að fyrir liggi meginlínur um
skoðun þeirra.
Kjarasamningar eru fram undan og af þeim sökum
verður að gera kröfu um að vefsvæðið geti verið
virkur upplýsingamiðill til hjúkrunarfræðinga þar
sem þeir geta fylgst með þróun mála og fengið
stöðugt uppfærðar upplýsingar. Vefumsjónarkerfið
býður upp á möguleika á að nýta vefinn og hafa á
honum afmarkað læst svæði fyrir kjaranefndina,
samninganefndina og trúnaðarmenn. Þessi hluti
er nú í fýsileikakönnun og ekki ljóst hvort ávinn-
ingur er af slíku læstu svæði.
Félagið er aðili að miklu erlendu samstarfi og mik-
ið magn upplýsinga berst félaginu af þeim sökum.
I undirbúningi er framsetning á þessu efni á vef-
svæðinu en alþjóðanefnd félagsins mun taka þetta
fyrir og leggja línurnar hvernig staðið skuli að
þessu. Reiknað er með að erlend samskipti muni
prýða vefsvæðið fyrir komandi sumar.
Tímarit hjjkrunarfræðinga 1. tbl. 80. árg. 2004