Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Síða 32
Hringborðsumræður:
Mistök í heilbrigðisþjónustunni
Hjúkrunarfræöingar settust niöur til hringborösumræöna í
Sigríðarstofu ásamt ritstjóra og fulltrúa Lífsvogar til aö
ræöa mistök í heilbrigðisþjónustunni, en samnefnd grein
eftir Lovlsu Baldursdóttur birtist í fyrsta tölublaði á liönu
ári. Miklar breytingar eru aö veröa á heilbrigðisþjónustunni
og þvi ástæöa til aö beina sjónum aö öryggi og réttindum
starfsfólks og sjúklinga. Þátttakendur eru auk ritstjóra,
Valgerðar Katrínar Jónsdóttur: Þorbjörg Guömundsdóttir,
verkefnastjóri hjá landlæknisembættinu, Lovísa Baldurs-
dóttir, en hún hefur unniö sem hjúkrunarfræöingur á gjör-
gæslunni viö Hringbraut sl. 26 ár, Svava Jónsdóttir, eftir-
litsmaöur hjá Vinnueftirlitinu en frá því í haust hefur hún
unniö á rannsókna- og heilbrigöisdeildinni aö verkefnum í
sambandi viö heilsuvernd starfsmanna, Elsa B. Friöfinns-
dóttir, formaöur Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga frá því
í maí á sl. ári, Jórunn Sigurðardóttir, varaformaöur samtak-
anna Lífsvog - gegn læknamistökum og hefur starfaö þar í
9 ár og Katrín Pálsdóttir, hjúkrunarfræöingur á slysa- og
bráöamóttökunni í Fossvogi.
Valgerður: Lovísa, í grein þinni um Mistök í heil-
brigðisþjónustu, sem birtist í I tbl. Tímarits
hjúkrunarfræðinga á síðasta ári, segir þú að sam-
kvæmt niðurstöðum erlendra rannsókna látist
fleiri vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu en þeir
sem látast af völdum umferðarslysa. Veistu hvern-
ig staðan er hér á landi?
Lovísa: Þetta eru tölur frá Bandaríkjunum og það
hefur orðið mikil vakning í Bandaríkjunum sl.
fimm ár varðandi mistök á sjúkrahúsum og í heil-
brigðisþjónustu yfirieitt. Samkvæmt íslenskum
tölum, sem ég hef frá landlæknisembættinu og
fram komu í blöðunum fyrir rúmu ári, er þessi
tala, ef hún er heimfærð upp á Island, fimm
manns á ári en því var haldið fram að það væru
ekki nema tvö dauðsföll sem rekja mætti til
læknamistaka hér á landi árlega. Mjög margir
segja að mistök í heilbrigðisþjónustunni séu mjög
Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004