Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 47
Fréttamolar...
og mannlegri umhyggju sem er meðfætt að ein-
hverju leyti og félagslegt að öðru leyti.
Hjúkrunarfræðingurinn horfir öðruvísi á aðstæð-
ur en sá sem ekki er hjúkrunarfræðingur, ekki af
því hann sé svo óskaplega góður og yndislegur
heldur af því hann hefur lært að meta h'ðan
fólks, hvernig á að nálgast það, hvaða hættur eru
í umhverfinu, hvað örugg framkoma og rólegt yf-
irbragð hefur góð áhrif á fólk í kreppu, hversu
mikilvægt það er nýbakaðri móður að fá faglega
réttar og hlýlegar Ieiðbeiningar um brjóstagjöf-
ina og svo mætti lengi telja. Að mati Gordon
beita hjúkrunarfræðingar faglegri umhyggju
markvisst til að tryggja öryggi og búa til meðferð-
arsambönd sem miða að því að einstaklingurinn
geti hjálpað sér sjálfur. I vinnunni við að taka
saman þessa bók urðu oft árekstrar milli Gordon
og Benner á þessum hugmyndafræðilega grund-
velli. Það hef ég frá fyrstu hendi.
Það er athyglisvert að íhuga gamla orðtækið
„glöggt er gests augað“ í þessu samhengi því að
mínu mati hefur blaðamaðurinn Gordon lagt
mikilvæg lóð á vogarskálarnar til að toga hjúkrun
upp úr djúpri holu sem er full af ákaflega seigri
og límkenndri umræðu og vangaveltum um eðli
umhyggju út frá heimspeki, stjórnmálafræði og
ótal fleiri fræðigreinunt. Það er því nokkuð víst í
mínum huga að þessi bók hefði orðið allt öðru
vísi ef hugmyndir Benner hefðu einar fengið að
stýra för.
Stærsti kostur þessarar bókar er að hana þarf
ekki að lesa frá orði til orðs heldur standa ein-
stakir kaflar algerlega sjálfstæðir og langflestir
eru þeir listavel skrifaðir.
Námskeið
Námskeiö í geöleik (psýkódrama) á íslandi
Námskeið í geðleik verður haldið í Púlsinum í Sandgerði
5.-7. mars 2004.
Nánari upplýsingar veitir Marta Eiríksdóttir á netfang-
inu pulsinn@pulsinn.is.
Alþjóöadagur hjúkrunarfræöinga 12. maí
Gegn fátækt
Alþjóöadagur hjúkrunarfræöinga, 12. maí, verður á
þessu ári helgaður baráttunni gegn fátækt. Fátækt er
eitt af helstu vandamálum mannkynsins en talið er að
1,2 milljarðar manna búi við sára fátækt og hafi
minna en einn bandaríkjadal til ráðstöfunar dagiega
og skorti þar með nauðsynjar svo sem mat, vatn,
klæði, húsnæði og aðgang að heiibrigðisþjónustu. 2,8
milljarðar til viöbótar eru taldir lifa á minna en tveim-
ur dölum á dag.
Slæmt heilsufar er fylgisystir fátæktarinnar og þeir 1,2 milljarðar, sem
búa við sára fátækt, þjást af mörgum alvarlegustu sjúkdómum sem
herja á mannkyniö svo sem ýmsum kvillum sem stafa af næringarskorti.
Ógn fátæktarinnar felst í þeim vítahring aö hinir fátæku hafa ekki aö-
gang að heilbrigðiskerfinu, menntun sem getur aukið tekjur þeirra eða
ööru sem getur breytt stöðunni. Án góðrar heilsu minnka möguleikarn-
ir á að flýja fátæktina.
Hvað geta hjúkrunarfræöingar gert? Alþjóöasamtökin skora á hjúkrun-
arfræðinga um allan heim að tryggja að hinir fátæku njóti virðingar og
fái góða heilbrigöisþjónustu og að hjúkrunarfræðingar, sem þekkja
tengsl efnahags og heilsufars, hafi áhrif á stjórnmálamenn þannig að
hagsmunum þeirra sem minna mega sín verði sem best borgið. Hjúkr-
unarfræðingar geta lagt áherslu á mikilvægi þess að öryggis sé gætt á
vinnustööum, lagt áherslu á jafna stööu kvenna og karla en um 70°/o
hinna fátækustu eru konur. Þeir geta líka lagt áherslu á mikilvægi þess
að allir hafi jafnan aðgang aö heilbrigðiskerfinu.
Hjúkrunarfræðingar geta unnið mikið fyrir og með fátæku fólki. Þeir
geta tekið þátt í að móta stefnu varöandi fátæka skjólstæðinga, tryggt
að rödd þeirra heyrist. Nánari upplýsingarerað finna á www.inc.ch/
2004
Hjúkrunarnemar í heimsókn
Hjúkrunarnemar á fjórða ári komu í árlega heimsókn í húsakynni Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga 27. janúar sl. Hópi verðandi hjúkrunar-
fræðinga hefur undanfarin ár verið boðið til móttöku þar sem þeim er
kynnt starfsemi féiagsins og réttindi og skyldur félagsmanna. Elsa B.
Friðfinnsdóttir, formaður félagsins, bauð nemana velkomna og kynnti
faglega hluta félagsins. Helga Birna Ingimundardóttir, hagfræðingur, sá
svo um að kynna kjaramál og sýndu nemarnir mikinn áhuga á málefn-
um félagsins.
Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004