Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Síða 49
BÆKUR
Bókaumfjöllun
Siöfræöi lífs og dauða
Alfræöibókin um golf
Höfundur Ijallar um öll siðferðileg álitamál í
heilbrigðisþjónustu á ýtarlegan en aðgengilegan
hátt. Hann greinir ýmis Iykilhugtök mannlegs
siðferðis og leitast við að jarðtengja þau með um-
fjöllun um einstök vandamál sem upp koma við
umönnun sjúkra og deyjandi, og við mótun heil-
brigðisstefnu. Rætt er um mál á borð við þagnar-
skyldu, réttindi sjúklinga, rannsóknir á fólki,
fósturgreiningu, fóstureyðingar, líffæraflutninga,
líknardráp og réttláta heilbrigðisþjónustu. I
þessari nýju útgáfu tekst höfundur jafnframt á
við nokkrar þeirra spurninga sem erfðarannsókn-
ir hafa vakið á undanförnum árum. Rauði þráð-
urinn í málflutningi Vilhjálms er krafan um að
virða sjúklinginn sem manneskju. I því skyni
þurfi fagfólk í heilbrigðisþjónustu að temja sér
samráð við sjúklinga, ástunda samræður sem
miða að gagnkvæmu trausti.
Siðfræði lífs og dauð var tilnefnd til íslensku
bókmenntaverðlaunanna 1993 og sama ár hlaut
höfundur viðurkenningu Hagþenkis fyrir bókina.
Ný og endurbætt útgáfa af bókinni Siðfræði lífs og
dauða eftir Vilhjálm Arnason prófessor. Vilhjálmur
Árnason er prófessor í heimspeki við Háskóla Is-
lands og formaður stjórnar Siðfræðistofnunar.
Bókin er 379 bls.
Útgefandi: Siðfræðistofnun og Háskólaútgáfan.
Golfáhugahjúkrunarfræðingum er bent á útkomu Alfræðibók-
arinnar um golf. I henni er sagt frá öllum golfklúbbum og
golfvöllum á íslandi, helstu golfmótum á íslandi og erlendis,
helstu reglum íþróttarinnar, 250 íslenskum kylfingum og
frægustu kylfingum heimsins fyrr og síðar. I bókinni eru
teikningar af öllum 18 hola völlum landsins, ljósmyndir af
golfvöllum landsins og þekktustu völlum erlendis og myndir
af fremstu kylfingum landsins og frægustu kylfingum heims.
Alls eru í bókinni um 400 myndir og teikningar af kylfingum,
golfvöllum, golfútbúnaði, listaverkum og öðru er lýtur að
íþróttinni. Ollum helstu heitum og hugtökum eru gerð skil á
íslensku og ensku til að auðvelda byrjendum að komast inn í
hinn sértæka orðaforða sem fylgir íþróttinni.
Höfundur bókarinnar er dr. lngimar Jónsson.
Bókin er 352 bls. Útgefandi: S'portiítgáfan.
Grunnnámskeið í umönnun einstaklinga med
heilabiiunarsjúkdóma.
Dagsetning: Mánudaguriim 15. mars 2004
Tími: kl. 9-15 (6 klukkustimdir/8 kennslustundir)
Staður: Skógarbœr, Árskógar 2. 109 Reykjavík
Helstu efnisatriði: Sjá meðfylgjandi blað
Námskeiðsgiald: d.kr. 950 -
Innifalið: Námskeiðsgögn. léttur hádegisverður og kaffi
Skránlng: Fyrir 1. mars 2004 til svava@nordic-lights.dk
Nordic Lights sendir þátttakendmn staðfestingu á skráningu,
efnisyfirlit og upplýsingar um greiðslufyrirkomulag.
ATH. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004