Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Qupperneq 51

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Qupperneq 51
frædideild Uaskola íslands LJÓSMÓÐURFRÆÐI 3. Diplomanám í krabbameinshjúkrunarfræði Tilgangur námsins er að auka fræðilega þekkingu og klíníska fasrni í krabbameinshjúkrun. Fjallað verður um faraldsfræði og orsök krabbameina, forvarnir, erfðir og erfðaráðgjöf, lífeðlisfræði og frumulíffræði krabbameina, umönnun einstaklinga með krabbamein og flölskyldna þeirra og umönnun einstaklinga við lok lífs. Auk þess verður fjallað um helstu siðferðileg álitamál sem upp koma í tengslum við forvarnir, erfðir og erfðaráðgjöf, umönnun einstaklinga með krabbamein og við lok lífs. Sérhæfð námskeið í Faraldsfræði og forvörnum krabbameina sem og í “Líknandi meðferð og umönnun í lok lífs” geta nýst fleirum en þeim sem innritaðir eru í diplomanám í krabbameins- hjúkrun og standa þau námskeið opin bæði hjúkrunar- fræðingum með B.S.-próf sem og öðrum nemum í framhaldsnámi. Nemendur sem þegar eru innritaðir í meistaranám í hjúkrunarfræði eru hvattir til að taka þessi námskeið. Haust 2004 Aðferðir (2e) Heilsufarsmat (2e) Vor 2005 Faraldsfræði og forvarnir krabbameina (3e) Haust 2005 Krabbameinshjúkrunarfræði (5e) Vor 2006 Líknandi meðferð og umönnun við lok lífs (4e) Valnámskeið (4e) Nám í Ijósmóðurfræði er 60 eininga nám sem felur í sér vísindalega starfsþjálfun sem lýkur með embættisprófi (candidata obstetriciorum) er tryggir starfsréttindi eftir að sótt hefur verið um Ijósmóðurleyfi til heilbrigðis- og tryggingamáiaráðuneytis. Inntökuskilyrði: er B.S.-próf í hjúkrunarfræði og íslenskt hjúkrunarleyfi. Hjúkrunarfræðingar sem ekki hafa lokið B.S.-prófi þurfa að Ijúka 16 eininga fornámi. Nánari upplýsingar um fornám, reglur um val nemanda og skipulag námsins er að finna í kennsluskrá Háskóla íslands. Haustið 2004 er gert ráð fyrir að taka 10 nemendur inn í námið. Umsókn um nám skulu fylgja upplýsingar um námsferil og fyrri störf, meðmæli, afrit af prófskírteinum, hjúkrunarleyfi og greinargerð umsækjanda um áhuga á námi í Ijósmóðurfræði og hvernig sá áhugi þróaðist. Umsóknarfrestur um nám er til 15. mars næst komandi og skal umsóknum skilað á skrifstofu hjúkrunarfræðideildar, Eirbergi, Eiríksgötu 34, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu hjúkrunarfræðideildar. Nemendur eru einnig hvattir til að kynna sér heimasíðu deildarinnar: www.hi.is/nam/hjukrun/ Ragný Þóra Guðjohnsen, verkefnastjóri framhaldsnáms veitir ráðgjöf um framhalds- nám. Netfang hennar er ragny@hi.is og sími 525-5204 j # Þessi auglýsing heldur áfram á næstu opnu

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.