FLE blaðið - 01.07.2010, Side 20
Nardlska Rövisorsförbundet
Nordlsk Ravlsortorbund
Norræna EndurskoÖendasamband ð
Pohjolsmainen TlUntarkaatajaUltto
NRF, merki sambandsins
1958
Aðalfundur samþykkti „Reglur um samskipti félagsmanna í
Félagi löggiltra endurskoðenda". Samskiptareglumar verða þar
með hluti félagslaga.
1960
Félagið hélt afmælishátíð 16. júlí í tilefni 25 ára afmælis
félagsins. Flátíðarfundur var haldinn í Háskóla íslands og
kvöldveisla í Oddfellowhúsinu í Reykjavík. Fundur NRF var
haldinn í fyrsta sinn á íslandi í tengslum við 25 ára afmæli
félagsins.
1961
I janúar var haldinn hádegisverðarfundur félagsmanna með
utanaðkomandi fyrirlesara og er það fyrsta skráða heimild um
slíkan fund á vegum félagsins.
1964
Fyrsta sumarráðstefna félagsins var haldin að Bifröst í
Föngulegur hópur endurskoðenda og maka á Bifröst
Borgarfirði.
1965
Félagsfundur samþykkti að félagsmenn komi saman einu
sinni í mánuði, nema yfir sumarmánuðina til hádegisverðar
„hvort sem sérstakt tilefni væri til eða ekki". Þessi siður hefur
haldist síðan og er jafnan reynt að fá utanaðkomandi aðila eða
félagsmann til að halda fræðandi erindi á þessum fundum.
Aðalfundur kaus Björn E. Árnason fyrsta heiðursfélaga
félagsins.
1966
Félagið keypti hlut í húseigninni Hverfisgötu 106A í Reykjavík
og framkvæmdir hófust við nauðsynlegar breytingar til að gera
húsnæðið að félagsheimili.
1967
Stjórnarfundur var haldinn í fyrsta sinn í eigin húsnæði
félagsins í apríl, en formleg opnum félagsheimilisins var í
september. Á aðalfundi var gerð lagabreyting og kosin þriggja
manna fræðslunefnd. Verkefni nefndarinnar var „að sjá um
fræðslustarfsemi innan félagsins í samræði við stjórn þess, svo
og umsjón með skjalasafni, bókasafni og húsnæði félagsins."
Fræðslunefnd var síðar felld niður og stjórn yfirtók verkefni
nefndarinnar til ársins 1978 þegar stjórnin skipaði sérstaka
endurmenntunarnefnd.
Svavar Pátsson
verður formaður NRF
1968
Svavar Pálsson var tilnefndur af félaginu til að taka við
formannsstarfi í Norræna endurskoðunarsambandinu til
tveggja ára. Hádegisverðarfundur var haldinn í fyrsta skipti í
félagsheimilinu við Hverfisgötu í nóvember.
1969
Félagsfundur í mars samþykkti að félagið skyldi ganga í
Evrópusamband endurskoðenda, UEC (Union Européenne Des
Experts Comptables Economiques et Financiers). Af mörgum
erlendum velunnurum félagsins voru sérstaklega nefndir til
sögu þeir Jakob A. Kittelsen, ritari NRF og Bjarne Niemann
Olsen, framkvæmdastjóri danska endurskoðendafélagsins.
Þessir tveir menn áttu mikinn þátt í að aðstoða félagið í
fyrstu sporum þess í erlendu samstarfi og fyrir þann þátt var
þeim báðum veitt heiðursmerki hinnar íslensku Fálkaorðu. Á
stjórnarfundi var rætt um hvort tímabært sé orðið að félagið
fái starfmann sem vinni að undirbúningi mála fyrir stjórnina
o.fl. Aðalfundur samþykkti að kjósa nefnd til að athuga hvort
möguleiki sé fyrir því að félagið beiti sér fyrir útgáfu tímarits er
fjalli um málefni stéttarinnar.
20 • FLE blaðið júlí2010