Ráðunautafundur - 15.02.2003, Qupperneq 116
114
ISL STN SFR NF JER NRF AYR HF BV
1. mynd. Tíðni P-kasein arfgerða í ýmsum kúakynjum.
íslenskar kýr (ISL), Norður-norskar (STN), Norður-
sænskar (SFR), Norður-fmnskar (NF), Danskar Jersey
(JER), Norskar NRF, Finnskar Ayrshire (AYR), Holstein
Friesian (HF), Braunvieh (BV).
2. mynd. Tíðni K-kasein arfgerða í ýmsum kúakynjum.
3. mynd. Tíðni asl-kasein arfgerða í ýmsum kúakynjum.
4. tafla. Tíðni erfðavísa fyrir mjólkur-
próteini í íslenskum kúm.
MjóUcurprótein Eríðavísir Tíðni
P-kasein A1 0,32
A2 0,68
K-kasein A 0,24
B 0,76
asl-kasein B 0,68
C 0,29
D/A 0,03
aS2-kasein A 0,79
D 0,21
p-laktóglóbúlin A 0,22
B 0,78
Á 1. mynd er tíðni erfðavísa
fyrir P-kasein hjá islensku kúnum
borin saman við tíðni sömu erfða-
vísa hjá kúm af þremum gömlum
norrænum kynjum, NRF, fmnskum
Ayrshire, Jersey, Holstein Friesian
og brúnum svissneskum kúm. Tíðni
A2 gerðar af (5-kaseini hjá íslensku
kúnum (0,68) er áþekk og hjá Jersey
og brúnum svissneskum kúm, en
hærri en hjá NRF, Ayrshire og Hols-
tein Friesian kúm, þar sem tíðni A1
og A2 gerðanna af p-kaseini er um
0,50. Tíðni A2 gerðar af p-kaseini
hjá gömlu norrænu kynjunum liggur
þama á milli.
Á 2. mynd er sýndur saman-
burður milli sömu kynja fyrir K-kas-
ein. Tíðni B gerðar K-kaseins, 0,76,
er hæst hjá íslensku kúnni, nokkru
lægri hjá gömlu sænsku og finnsku
kúnum og um 0,59 hjá brúnum
svissneskum kúm. Það vekur athygli
hversu lág tíðnin fyrir B gerðina er
hjá NRF og finnsku Ayrshire kúnum
(0,09 og 0,08). Að auki er tíðni E
gerðar K-kaseins um 0,32 hjá finnsku
kúnum og þessi erfðavísir finnst
einnig hjá NRF (0,07). Eins og sagði
að ofan tengist þessi erfðavísir
ystingargöllum í mjólk.
Á 3. mynd er borin saman tíðni
erfðavísa fyrir asi-kasein. Hjá ís-
lensku kúnni er tíðni B-gerðar 0,68,