Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Page 16
Helgarblað 23.–26. september 201616 Umræða Ástir, slagsmál og vín Ofbeldið í menningu Íslendinga É g hef stundum velt því fyrir mér hvernig áflog og ofbeldi virðist í fljótu bragði setja mjög sterkan svip á menningu okkar þjóðar að fornu að nýju, og eitt sinn var ég beðinn um að setja á blað hugleiðingu um sjálfa „karlmennsk- una“ í okkar kúltúr, og þá í tengslum við að sjálfur þáverandi biskupinn yfir Íslandi hafði í útvarps prédikun mælt með því að menn reyndu að rækta sín karlmennskugildi, samfé- laginu til heilla. Ollu þau ummæli eins og við mátti búast nokkurri úlfúð, vegna eðlilegra kvenfrelsis- og jafnréttissjónarmiða. En ég held að við ættum ekki að vera að dæma gamalreynd og sígild orð og hugtök úr leik þótt tímarnir breytist; „dreng- skapur“ er til að mynda fyrirbæri sem stundum vill gleymast en er eigi að síður brýnt þótt upp séu runnir nýir tímar. Ég man að fyrir nokkrum árum barst í tal að ljóð Jóhannesar úr Kötl- um „Land míns föður“ gæti þénað vel fyrir þjóðsöng, í stað þeirra geim- ferðalegu kveinstafa sem við nú höf- um fyrir slíkt, en þá upphófust þær mótbárur að Ísland væri ekki bara „land míns föður“ líka land mæðra vorra. Sem er auðvitað satt og rétt, en ég mun eigi að síður halda áfram að líta á eyju vora sem mitt föður- land, rétt eins og íslenskan verður áfram móðurmálið. Og svo er rétt að minna á að ýmis kynjatengd hug- tök virðast að fornu hafa gilt jafnt um allt fólk; má þar nefna að Bergþóra okkar í Njálu var ekkert minna en „drengur góður“ samkvæmt þeirri ágætu bók. „Höggva mann og annan“ En nóg um það. Við vorum að tala um karlmennsku. Auðvitað er erfitt að skilgreina hvað átt er við og eflaust er það eitthvað sem breytist með tíman- um. Hugmyndir Íslendinga um karl- mennsku eru eins og margt annað sóttar mjög í fornsögurnar, og loddi þá vilji og hæfileiki til að drepa aðra menn og limlesta allmjög við hugtak- ið; einhver frægasta karlmennsku- hvöt bókmenntanna er vísan sem Egill Skallagrímsson orti á unglingsaldri fyrir móður sína og nær hámarki í lokaorðum þar sem hann heitir því að „halda svo til hafnar / höggva mann og annan“. Að tengja slagsmál og limlestingar við karlmennsku virðist reyndar hafa verið lífseigt til skamms tíma, ekki síst ef maður skoðar gamlar frásagn- ir um sveitaböll og gleðskap fram yfir miðja síðustu öld, því þar er því oft lýst að fjörið hafi fyrst náð hámarki þegar menn brettu upp skyrtuermar og létu hendur skipta; hnefar smullu á kjálk- um og menn voru látnir snýta rauðu; tennur fuku og nef brotnuðu og menn lágu í öngviti; ég man eftir sjóara sem ég hitti fyrir þrjátíu árum og gumaði af því að vera „alltaf fyrstur úr skyrtunni eftir böll“ (menn sviptu sér úr jakkan- um þegar hnefar áttu að tala) – hans hugmynd um fullkomna sælu var á sinn hátt eitthvað í ætt við lýsingar Ásatrúar á eilífri vist í Valhöll þar sem menn eru drepnir á hverjum degi en rísa til nýrra bardaga næsta morgun. Sígild íslensk dægurlög enduróma þennan hugmyndaheim: um gaman- ið á vertíð í Eyjum var sungið um 1960: „Er mæta þeir margir þá er slegist þar það er mest gaman segja stelpurnar.“ Og í lofsöng um karlmennið Gústa í Hruna söng sjálfur Haukur Morthens: „Það var karl sem að kunni að kyssa, drekka og slást! Enda sagð’ann það oft: Það er ánægjan mín; ástir, slagsmál og vín.“ „En hvað er þá karl- mennska í nú- tímaskilningi? Kannski má þar til dæmis nefna hæfileikann til að láta ekki koma sér úr jafn- vægi, taka því sem dynur yfir án þess að tapa skýrri hugsun. Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS www.ledljos.com * www.ledljós.is * ludviksson@ludviksson.com S; 565 8911 - 867 8911 V I Ð E R U M Ó D Ý R A R I E N Þ I G G R U N A R INNFELLD LEDLJÓS UTANÁLIGGJANDI LEDLJÓS FLURLAMPAR - GÖTULÝSING - KASTARAR - TURNAR - SKIPAKASTARAR LED ljós - spara 80-92% orku LED ljós spara 80-92% orku LUDVIKSSON EHF - LEDLJÓS www.ledljos.com * www.ledljós.is * ludviksson@ludviksson.com S; 565 8911 - 867 8911 V I Ð E R U M Ó D Ý R A R I E N Þ I G G R U N A R INNFELLD LEDLJÓS UTANÁLIGGJANDI LEDLJÓS FLURLAMPAR - GÖTULÝSING - KASTARAR - TURNAR - SKIPAKASTARAR LED ljós - spara 80-92% orku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.