Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Síða 39
Helgarblað 23.–26. september 2016 Menning 31
nýjar
vörur
í hverri viku
alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
Sími: 571-5464
Sjáðu úrvalið á
www.tiskuhus.is
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin
mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
Potað í fyrirframgefnar hugmyndir
n Textaverk um þrjátíu listamanna sýnd í Listasafni Íslands n Verk úr einkasafni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur
hefur unnið töluvert á Íslandi. Það
á við um verk hans og fleiri lista-
manna á sýningunni að þau taka
mið af staðsetningu og samhengi.
Við komum með tillögu að upp-
setningu á verki hans utan á safn-
bygginguna sem hann samþykkti
og sagðist vera sérstaklega ánægð-
ur að geta með verki sínu glatt
endurnar og svanina á tjörninni.“ n
Birta Guðjónsdóttir, sýningastjóri í
Listasafni Íslands Við verkið Welttheater
eftir Hanne Darboven. Mynd SiGtryGGur Ari
L
eikritaskáldið Edward Albee
lést nýlega, 88 ára að aldri.
Hann hlaut Pulitzer-verð-
launin þrisvar sinnum, fyrir
leikritin A Delicate Balance, Sea-
scape og Three Tall Women.
Frægasta leikrit hans er Hver
er hræddur við Virginiu Woolf?
sem hlaut Tony-verðlaunin og
þau verðlaun fékk hann einnig
fyrir The Goat. Albee hlaut ýmiss
konar heiðursverðlaun á löngum
ferli. Albee var samkynhneigður.
Sambýlis maður hans til margra ára
lést úr krabbameini árið 2005.
Albee var ættleiddur átján daga
gamall og ólst upp hjá ríkri, hægri
sinnaðri fjölskyldu og honum
samdi aldrei við fósturforeldra
sína. „Ég varð ekki það sem þau
vildu. Þau vildu fá lögfræðing eða
lækni, ekki rithöfund,“ sagði Al-
bee. Hann sagðist ekki skrifa um
sjálfan sig. „Mér finnst heimsku-
legt af leikritaskáldi að skrifa um
sjálft sig. Fólk veit ekkert um sjálft
sig.“ Hann viðurkenndi þó að hafa
gert undantekningu á þessu í leik-
ritinu A Delicate Balance þar sem
hann fjallaði um æsku sína. n
kolbrun@dv.is
Edward Albee látinn
Edward Albee
Ein elsta
tónlistarhátíð
heims í Hörpu
Nordic Music Days á Íslandi
T
ónlistarhátíðin Nordic Music
Days verður haldin í Hörpu,
dagana 29. september til 1.
október. Hátíðin var stofnuð
árið 1888 og er ein elsta tónlistarhá-
tíð heims. Hún er haldin árlega til
skiptis í höfuðborgum Norðurland-
anna. Fram koma hljómsveitir og
einleikarar sem eru leiðandi í flutn-
ingi á samtímatónlist og flutt verða
tónverk eftir tónskáld sem kalla má
frumkvöðla þegar kemur að nor-
rænni samtímatónlist. Frítt er inn á
alla viðburði hátíðarinnar að tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands
frátöldum.
Á tónleikadagskránni koma fram
kammersveitir, einleikarar, tónskáld,
hljóðlistafólk og Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Fjöldi verka verður frum-
fluttur á hátíðinni. Lokahnykkur
hátíðarinnar verður í formi langra
tónleika í Silfurbergi þar sem kamm-
ersveitirnar Scenatet frá Danmörku,
Curious Chamber Players frá Sví-
þjóð, hin íslensk-þýska Adapter
ásamt Nordic Affect koma fram.
Hið svokallaða Pavilion Nor-
rænna músíkdaga verður haldið í
fyrsta sinn á hátíðinni í ár. Pavilionið
verður vettvangur tilrauna, rann-
sókna, umræðu, fyrirlestra, pall-
borðsumræðna og vinnustofa. Unnið
verður með þema hátíðarinnar sem
er að þessu sinni „Integration“ eða
sameining með áherslu á nýjar leið-
ir til að skrásetja samtímatónlist, á
tónlist Norrænu landanna til vest-
urs; Grænlands, Færeyja og Íslands
ásamt viðfangsefninu tónskáld sem
flytjandi. n
kolbrun@dv.is
Mynd SiGtryGGur Ari