Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Blaðsíða 2
Helgarblað 28.–31. október 20162 Fréttir Hefur þú prófað blómadropa? Blómadropar tilheyra nýrri grein meðferða sem öðlast krafta sína frá lífskröftum blóma og jurta. Þeir eru fullkomlega öruggir, náttúrulegir og framleiddir við bestu hugsanlegu aðstæður af alúð, kærleika og vandvirkni. Gleði - Friður - Hamingja Nýjaland Sími: 517 4290 • nyjaland@gmail.com • www.nyjaland.is • Erum á Facebook Sölustaðir: Heilsuhúsin í Rvk, Akureyri og Selfossi, Snyrtihofið Vestmanneyjum, Gló Fákafeni Á fimmtudagsmorgun fund­ ust líkamsleifar í fjörunni við Selatanga austan við Grinda­ vík sem og brak úr skútu. Líkur eru á að þar sé fundinn hinn 63 ára gamli Joseph Le Goff, sem lagði af stað frá Portúgal til Azoreyja, þann 7. júlí síðastliðinn. Áætlað var að sigl­ ingin tæki rúma viku en ekkert hefur spurst til Josephs síðan, eins og DV greindi frá á miðvikudag. Samkvæmt heimildum DV var líkið illa farið, en fyrst fundu björg­ unarsveitarmenn útlim af manni í fjörunni. Skammt frá fannst síðan brak úr skútu. Það var hópur björg­ unarsveitarmanna úr Grindavík sem fann brak úr skútunni og lík í fjöruborðinu við Selatanga eftir um korters göngu. Þegar mest var voru 30 björg­ unarsveitarmenn á vettvangi sem og fulltrúar Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar á Suðurnesjunum. Franskir fjölmiðlar hafa fjallað um málið nokkuð reglulega síðustu vikur og mánuði og í byrjun septem­ ber var greint frá því að skipverjar á flutningaskipi hefðu komið auga á skútuna þar sem hún var á reki um 900 sjómílur austur af Nýfundna­ landi. Veðurskilyrði voru slæm svo ekki tókst að athuga nánar ástand skútunnar. Líkfundur í Grindavík Björgunarsveit fann brak skútu og lík í fjörunni Red Heol Ekkert hefur spurst til Joseph Le Goff síðan í júlíbyrjun. Danir áhugasamir um Sigga hakkara n Skoða að gera heimildamynd um hakkarann n Siggi hakkari að losna við ökklabandið T veir danskir kvikmynda­ gerðarmenn eru staddir hér á landi, áhugasamir um að framleiða heimildarmynd um Sigurð Inga Þórðarson, betur þekktan sem Siggi hakkari. Danirnir, Ole Bendtzen og Christoffer Dreyer, eru þekktir í heimalandi sínu fyrir vandaðar heimildamyndir og hafa starfað við kvikmyndagerð frá árinu 2003. Síð­ ustu daga hafa þeir félagar rætt við Sigurð Inga og Dan Somers sem titlar sig sálgæslumann en hann var Sig­ urði innan handar sem sálfræðingur þegar hann sat af sér fangelsisdóm fyrir að misnota níu drengi. Sigurður Ingi og Dan hafa þekkst lengi og var Dan lífvörður hans árið 2013. Dan hefur ýmis starfsheiti; sálgæslu­ maður, lífvörður og prestur. Fundur Sigga og FBI í Kaupmannahöfn Það sem vakti fyrst athygli Ole og Christoffer varðandi Sigurð Inga var viðtal Politiken við hakkar­ ann. Þar var einnig fjallað um leynifundi Sigurðar ásamt útsend­ urum FBI. Í ítarlegri umfjöllun Eyjunnar segir að Sigurður hafi að­ eins verið 17 ára þegar hann komst í innsta hring Wikileaks. Tveim­ ur árum síðar var staðan gjörbreytt en starfsmenn Wikileaks, með Juli­ an Assange í broddi fylkingar, sögðu hann svikara vegna þess að hann veitti FBI innherja upplýsingar. Var Sigurður sagður hafa afhent á ein­ um fundinum átta harða diska með innri skjölum frá Wikileaks. Krist­ inn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, sagði í samtali við Politiken að Siggi væri sjúklegur lygari og hlutverk hans ekki verið eins stórt og hann vildi vera láta. Þá sagði Sigurður Ingi í samtali við Vísi að hann hefði stolið 46 þúsund dollurum af Wikileaks. Í frétt Eyjunnar frá 2014 er Dan Somers titlaður vinur Sigurðar Inga og var hann viðstaddur fundina með FBI. Dan er einnig prestur og sam­ kvæmt upplýsingum DV eru um 20 skráðir félagar í söfnuði hans. DV greindi frá því í ágúst að Sig­ urður Ingi væri laus úr fangelsi og hefði verið með ökklaband frá jún­ íbyrjun. Til að fá leyfi yfirvalda til rafrænnar afplánunar þarf fangi að stunda vinnu eða sinna samfélags­ þjónustu. Það vakti athygli blaða­ manns að fangelsismálayfirvöld skyldu láta Sigurð Inga í umsjá vin­ ar hans, Dan Somers. Þegar DV leit­ aði viðbragða fangelsismálayfirvalda varðandi þá staðreynd að Sigurður fór í samfélagsþjónustu til vinar síns og hafði þar lítið fyrir stafni, kom í ljós að yfirvöldum var ekki kunnugt um fortíð þeirra. Í samtali við DV fyrr á árinu sagð­ ist Dan telja sig hafa tekist að lækna Sigurð af siðblindu og það hefði tek­ ið hann tvö ár að fá hann til að sjá og skilja að það sem hann gerði var rangt. Í niðurstöðum geðrannsóknar á Sigurði, sem kom fram í gæsluvarð­ haldsúrskurði undir lok árs 2014, kom fram að hann væri siðblind­ ur og að vandi hans fælist í hömlu­ leysi og erfiðleikum við að fresta full­ nægingu hvata. Þá iðrist hann ekki gjörða sinna og geti ekki sýnt merki um djúpa sektar kennd. Leynifundur kveikti áhugann Eftir að Ole og Christoffer lásu um fund Sigurðar og FBI í Kaupmanna­ höfn kviknaði áhugi á að fjalla með einhverjum hætti um Sigurð. Blaða­ maður átti stuttan fund með kvik­ myndagerðarmönnunum sem hafa ekki enn fengið vilyrði frá danska kvikmyndasjóðnum. Þá eru þeir ekki vissir hvaða saga það verði sem þeir enda á að kvikmynda. Tvímenn­ ingarnir vinna fyrir danska fyrirtækið Plus Pictures sem hefur framleitt fjöl­ margar eftirtektarverðar heimilda­ myndir, nú síðast kvikmynd um mál Amöndu Knox. Í samtali við blaðamann DV sögðu Danirnir leynifundinn í Danmörku hafa kveikt áhuga þeirra, en frá ár­ inu 2013 hafi ýmislegt gerst sem hafi breytt sjónarhorni þeirra. Þar spilaði helst inn í, líkt og ítrekað hefur kom­ ið fram, að Sigurður var dæmdur fyrir brjóta kynferðislega á níu piltum. Laus í nóvember Sigurður Ingi starfar nú hjá Rauða krossinum við fataflokkun. Stendur hann vaktina frá klukkan 9.00 til 15.00. Þar mun Sigurður starfa til 6. nóvember. Þann dag losnar Sigurður Ingi við ökklabandið og þarf ekki að lengur að skila sér heim klukkan ellefu á kvöldin. n Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is Laus á ökklabandi Frétt DV um að Sigurður Ingi afplánaði eftirstöðvar dómsins undir rafrænu eftirliti vakti mikla athygli. Hann má taka af sér bandið 6. nóvember. Lífvörður Sigga hakkara og Julian Assange Dan Somers og Sigurður Ingi hafa þekkst lengi. Seinna var Dan látinn bera ábyrgð á vini sínum þegar hann var látinn laus á ökklabandi. Var Fangelsismálastofnun ekki kunnugt um vinskap þeirra til nokkurra ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.