Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Síða 4
Helgarblað 28.–31. október 20164 Fréttir
Bandarískur
sjóður í hópi stærstu
hluthafa í sex félögum
T
veir fjárfestingarsjóðir á veg
um bandaríska sjóðastýr
ingarfyrirtækisins Eaton
Vance, sem er jafnframt einn
umsvifamesti aflandskrónu
eigandi landsins, eru komnir í hóp
tuttugu stærstu hluthafa í samtals sex
félögum sem eru skráð í Kauphöll Ís
lands. Markaðsvirði eignarhluta
sjóðanna í þessum íslensku fyrir
tækjum, meðal annars Símanum og
Högum, nemur hátt í sjö milljörð
um króna. Meira en ár er liðið síð
an sjóðirnir – Global Macro Portfolio
og Global Macro Absolute Return
Advantage – hófu fyrst innreið sína á
íslenskan hlutabréfamarkað, eins og
áður hefur verið fjallað um á síðum
DV, og frá þeim tíma hafa þeir reglu
lega komið með fjármagn til lands
ins í því skyni að fjárfesta í fjölmörg
um skráðum félögum hér á landi.
Þannig komst sjóðurinn Global
Macro Portfolio, sem er stýrt af Boston
Research Management, dótturfélagi
Eaton Vance, fyrr í þessum mánuði á
lista yfir tuttugu stærstu hluthafa Sím
ans og fasteignafélagsins Regins. Fjár
festingarsjóðurinn hefur sömuleiðis,
ásamt Global Macro Absolute Return
Advantage, aukið nokkuð við hlut sinn
í Högum að undanförnu en í lok síð
ustu viku áttu sjóðirnir tveir saman
lagt 2,54% hlut í smásölurisanum sem
gerir þá að tíunda stærsta hluthafa fé
lagsins. Markaðsvirði þess eignarhlut
ar er um 1.660 milljónir króna.
Hóf innreið sína í fyrra
Sjóðirnir byrjuðu að fjárfesta á ís
lenskum hlutabréfamarkaði í kjöl
far þess að íslensk stjórnvöld kynntu
aðgerðaáætlun sína um losun fjár
magnshafta í júní árið 2015. Eaton
Vance, sem er eitt af stærstu sjóða
stýringarfyrirtækjum heims, er í
reynd fyrsti erlendi fjárfestirinn
sem gerir sig gildandi á hlutabréfa
markaði hérlendis eftir fjármálaá
fallið haustið 2008. Auk þess að vera
á meðal stærstu eigenda í Högum
eru sjóðir Eaton Vance einnig sam
anlagt áttundi stærsti hluthafi Reita
fasteignafélags og þá eiga þeir 2,56%
hlut í Eimskipum sem þýðir að sjóð
irnir eru tíundi stærsti hluthafi flutn
ingafyrirtækisins. Þá eiga sjóðirnir
tveir einnig, líkt og áður hefur verið
greint frá í DV, samanlagt 1,7%
eignarhlut í HB Granda sem ger
ir þá að tólfta stærsta hluthafanum í
þessu eina skráða sjávarútvegsfyrir
tæki landsins.
Skilað ágætis ávöxtun
Miðað við núverandi gengi bréfa
í félögunum sex í Kauphöllinni er
eignarhlutur sjóða Eaton Vance met
inn á um 6,6 milljarða króna. Það jafn
gildir tæplega 0,7% af markaðsvirði
þeirra sextán félaga sem eru skráð á
markað á Íslandi. Sjóðir bandaríska fé
lagsins hafa hins vegar jafnframt stað
ið að kaupum í öðrum fyrirtækjum í
Kauphöll Íslands á síðustu mánuð
um og misserum, meðal annars í
Icelandair Group, en þær fjárfestingar
hafa verið hlutfallslega smærri í snið
um og því ekki skilað þeim hingað
til á lista yfir tuttugu stærstu hlut
hafa þeirra félaga. Þegar tekið er tillit
til þeirra fjárfestinga má því varlega
áætla að bandarísku sjóðirnir tveir eigi
samtals í kringum 1% af heildarhlutafé
á íslenskum hlutabréfamarkaði.
Þrátt fyrir erfitt árferði á markaði
það sem af er þessu ári – úrvalsvísi
tala Kauphallarinnar hefur lækkað
um nærri 9% frá áramótum – þá veg
ur á móti að gengi krónunnar hefur
styrkst um 15% gagnvart Banda
ríkjadal yfir sama tímabil. Fjár
festing sjóða Eaton Vance á íslensk
um hlutabréfamarkaði hefur því að
óbreyttu skilað þeim ágætis ávöxtun.
Þá hafa sjóðir á vegum fyrirtækisins
einnig verið í hópi þeirra erlendu að
ila sem hófu um mitt síðasta ár að
kaupa íslensk ríkisskuldabréf – fyrir
samtals 80 milljarða króna – í gegn
um nýfjárfestingaleið Seðlabank
ans. Eftir að Seðlabanki Íslands kom
fram með nýtt fjárstreymistæki til að
sporna við óhóflegu fjármagnsinn
flæði hafa slík vaxtamunarviðskipti
hins vegar nánast alfarið stöðvast.
Hótar ríkinu málsókn
Kaup sjóðanna í skráðum íslenskum
félögum eru ekki síst áhugaverð fyrir
þær sakir að Eaton Vance er á meðal
þeirra bandarísku fjárfestingarsjóða
sem kanna núna þann möguleika
að höfða málsókn á hendur íslenska
ríkinu vegna frumvarps fjármála
ráðherra um meðferð aflandskrónu
eigna. Telur sjóðurinn frumvarpið
fela í sér ólögmæta eignaupptöku og
brjóta á jafnræðisreglu stjórnarskrár
innar. Eaton Vance er sem kunnugt er
á meðal stærstu aflandskrónueigenda
– sjóðurinn á aflandskrónur fyrir
meira en 30 milljarða – og féllst ekki á
þau skilyrði sem voru sett í gjaldeyris
útboði Seðlabanka Íslands í sumar
til að leysa út aflandskrónueignir að
fjárhæð samtals 320 milljarða. Í út
boðinu gafst aflandskrónueigendum
á borð við Eaton Vance færi á að selja
eignir sínar á genginu 190 krónur
fyrir hverja evru – um 27% lægra verð
miðað við þáverandi skráð gengi – og
bárust tilboð fyrir alls 188 milljarða.
Fjárhæð samþykktra tilboða nam að
eins 83 milljörðum og minnkaði forði
Seðlabankans um rúmlega 54 millj
arða í kjölfar útboðsins. n
Breytt afstaða
með nýrri stjórn
Fulltrúar stærstu eigenda aflandskróna –
Eaton Vance, Discovery Capital, Autonomy
Capital og Loomis Sayles – gera sér vonir
um að íslensk stjórnvöld verði reiðubúin að
hleypa þeim úr landi á hagstæðara gengi
en þeim bauðst í gjaldeyrisútboði Seðla
bankans verði niðurstaða alþingiskosn
inga sú að ný ríkisstjórn taki við völdum.
Þetta kom fram í frétt Financial Times
síðastliðinn þriðjudag en þar er meðal
annars haft eftir Pétri Erni Sverrissyni,
lögmanni Eaton Vance og Autonomy
Capital, að hann telji að þegar nýtt fólk
tekur sæti í ríkisstjórn þá muni það líta
öðrum augum á málið. „Að mínu viti þá er
glórulaust fyrir stjórnvöld að hafa þetta
mál hangandi yfir sér,“ segir Pétur Örn.
Aflandskrónueigendur og hagsmuna
verðir þeirra hafa að undanförnu beitt
ýmsum úrræðum til að koma á framfæri
þeirri skoðun sinni að stjórnvöld séu
með aðgerðum sínum til að leysa
aflandskrónuvandann að mismuna fjár
festum eftir þjóðerni þeirra. Þannig birti
bandaríska hugveitan Institute of Liberty
heilsíðuauglýsingu í íslenskum, dönskum
og bandarískum fjölmiðlum fyrr í þessum
mánuði þar sem því var haldið fram að
frumvarp fjármálaráðherra um meðferð
aflandskrónueigna mismuni „alþjóð
legum fjárfestum“ og „neyði þá til að selja
skuldabréf sem tryggð eru í krónum með
miklum afslætti, eða til að láta eignir
sínar á reikninga sem bera enga vexti.“
Í gær, fimmtudag, birti sama hugveita,
sem rekur verkefni sem kallast Iceland
Watch.org, heilsíðuauglýsingu í Morgun
blaðinu þar sem ákvarðanir Seðlabanka
Íslands eru gagnrýndar. Varpað er fram
þeirri spurningu „hver greiði fyrir opinbera
spillingu og mismunarreglur á Íslandi.“
Þar segir að „mismunarstefna íslensku
gjaldeyrishaftanna“ kosti þjóðina á milli 5
til 9 milljarða Bandaríkjadala í landsfram
leiðslu árlega, samkvæmt nýrri breskri
rannsókn. Þá er fullyrt í auglýsingunni að
verið sé að rannsaka innanhúss Sturlu
Pálsson, háttsettan aðila Seðlabankans,
vegna meintra innherjaupplýsinga. Sturla
svari beint til Más Guðmundssonar seðla
bankastjóra og „mun hafa haft aðgang
að öllum þessum upplýsingum.“
Auglýsing samtakanna, sem flest
bendir til að sé runnin undan rifjum
aflandskrónueigenda, vakti hörð
viðbrögð á samfélagsmiðlum og þannig
skrifaði Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráð
herra á Facebooksíðu sína: „Þessi aðför
að íslenskum hagsmunum er ólíðandi og
hvað gengur þessum aðilum til?“
n Aflandskrónueigandi á sjö milljarða í hlutabréfum n Meðal stærstu hluthafa Símans og Regins
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Fjárfest í Símanum
Sjóður Eaton Vance komst
nýlega á lista yfir tuttugu
stærstu hluthafa Símans
með tæplega 1,5% hlut.
Mynd Sigtryggur Ari
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira