Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Qupperneq 4
Helgarblað 28.–31. október 20164 Fréttir Bandarískur sjóður í hópi stærstu hluthafa í sex félögum T veir fjárfestingarsjóðir á veg­ um bandaríska sjóðastýr­ ingarfyrirtækisins Eaton Vance, sem er jafnframt einn umsvifamesti aflandskrónu­ eigandi landsins, eru komnir í hóp tuttugu stærstu hluthafa í samtals sex félögum sem eru skráð í Kauphöll Ís­ lands. Markaðsvirði eignarhluta sjóðanna í þessum íslensku fyrir­ tækjum, meðal annars Símanum og Högum, nemur hátt í sjö milljörð­ um króna. Meira en ár er liðið síð­ an sjóðirnir – Global Macro Portfolio og Global Macro Absolute Return Advantage – hófu fyrst innreið sína á íslenskan hlutabréfamarkað, eins og áður hefur verið fjallað um á síðum DV, og frá þeim tíma hafa þeir reglu­ lega komið með fjármagn til lands­ ins í því skyni að fjárfesta í fjölmörg­ um skráðum félögum hér á landi. Þannig komst sjóðurinn Global Macro Portfolio, sem er stýrt af Boston Research Management, dótturfélagi Eaton Vance, fyrr í þessum mánuði á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa Sím­ ans og fasteignafélagsins Regins. Fjár­ festingarsjóðurinn hefur sömuleiðis, ásamt Global Macro Absolute Return Advantage, aukið nokkuð við hlut sinn í Högum að undanförnu en í lok síð­ ustu viku áttu sjóðirnir tveir saman­ lagt 2,54% hlut í smásölurisanum sem gerir þá að tíunda stærsta hluthafa fé­ lagsins. Markaðsvirði þess eignarhlut­ ar er um 1.660 milljónir króna. Hóf innreið sína í fyrra Sjóðirnir byrjuðu að fjárfesta á ís­ lenskum hlutabréfamarkaði í kjöl­ far þess að íslensk stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun sína um losun fjár­ magnshafta í júní árið 2015. Eaton Vance, sem er eitt af stærstu sjóða­ stýringarfyrirtækjum heims, er í reynd fyrsti erlendi fjárfestirinn sem gerir sig gildandi á hlutabréfa­ markaði hérlendis eftir fjármálaá­ fallið haustið 2008. Auk þess að vera á meðal stærstu eigenda í Högum eru sjóðir Eaton Vance einnig sam­ anlagt áttundi stærsti hluthafi Reita fasteignafélags og þá eiga þeir 2,56% hlut í Eimskipum sem þýðir að sjóð­ irnir eru tíundi stærsti hluthafi flutn­ ingafyrirtækisins. Þá eiga sjóðirnir tveir einnig, líkt og áður hefur verið greint frá í DV, samanlagt 1,7% eignarhlut í HB Granda sem ger­ ir þá að tólfta stærsta hluthafanum í þessu eina skráða sjávarútvegsfyrir­ tæki landsins. Skilað ágætis ávöxtun Miðað við núverandi gengi bréfa í félögunum sex í Kauphöllinni er eignarhlutur sjóða Eaton Vance met­ inn á um 6,6 milljarða króna. Það jafn­ gildir tæplega 0,7% af markaðsvirði þeirra sextán félaga sem eru skráð á markað á Íslandi. Sjóðir bandaríska fé­ lagsins hafa hins vegar jafnframt stað­ ið að kaupum í öðrum fyrirtækjum í Kauphöll Íslands á síðustu mánuð­ um og misserum, meðal annars í Icelandair Group, en þær fjárfestingar hafa verið hlutfallslega smærri í snið­ um og því ekki skilað þeim hingað til á lista yfir tuttugu stærstu hlut­ hafa þeirra félaga. Þegar tekið er tillit til þeirra fjárfestinga má því varlega áætla að bandarísku sjóðirnir tveir eigi samtals í kringum 1% af heildarhlutafé á íslenskum hlutabréfamarkaði. Þrátt fyrir erfitt árferði á markaði það sem af er þessu ári – úrvalsvísi­ tala Kauphallarinnar hefur lækkað um nærri 9% frá áramótum – þá veg­ ur á móti að gengi krónunnar hefur styrkst um 15% gagnvart Banda­ ríkjadal yfir sama tímabil. Fjár­ festing sjóða Eaton Vance á íslensk­ um hlutabréfamarkaði hefur því að óbreyttu skilað þeim ágætis ávöxtun. Þá hafa sjóðir á vegum fyrirtækisins einnig verið í hópi þeirra erlendu að­ ila sem hófu um mitt síðasta ár að kaupa íslensk ríkisskuldabréf – fyrir samtals 80 milljarða króna – í gegn­ um nýfjárfestingaleið Seðlabank­ ans. Eftir að Seðlabanki Íslands kom fram með nýtt fjárstreymistæki til að sporna við óhóflegu fjármagnsinn­ flæði hafa slík vaxtamunarviðskipti hins vegar nánast alfarið stöðvast. Hótar ríkinu málsókn Kaup sjóðanna í skráðum íslenskum félögum eru ekki síst áhugaverð fyrir þær sakir að Eaton Vance er á meðal þeirra bandarísku fjárfestingarsjóða sem kanna núna þann möguleika að höfða málsókn á hendur íslenska ríkinu vegna frumvarps fjármála­ ráðherra um meðferð aflandskrónu­ eigna. Telur sjóðurinn frumvarpið fela í sér ólögmæta eignaupptöku og brjóta á jafnræðisreglu stjórnarskrár­ innar. Eaton Vance er sem kunnugt er á meðal stærstu aflandskrónueigenda – sjóðurinn á aflandskrónur fyrir meira en 30 milljarða – og féllst ekki á þau skilyrði sem voru sett í gjaldeyris­ útboði Seðlabanka Íslands í sumar til að leysa út aflandskrónueignir að fjárhæð samtals 320 milljarða. Í út­ boðinu gafst aflandskrónueigendum á borð við Eaton Vance færi á að selja eignir sínar á genginu 190 krónur fyrir hverja evru – um 27% lægra verð miðað við þáverandi skráð gengi – og bárust tilboð fyrir alls 188 milljarða. Fjárhæð samþykktra tilboða nam að­ eins 83 milljörðum og minnkaði forði Seðlabankans um rúmlega 54 millj­ arða í kjölfar útboðsins. n Breytt afstaða með nýrri stjórn Fulltrúar stærstu eigenda aflandskróna – Eaton Vance, Discovery Capital, Autonomy Capital og Loomis Sayles – gera sér vonir um að íslensk stjórnvöld verði reiðubúin að hleypa þeim úr landi á hagstæðara gengi en þeim bauðst í gjaldeyrisútboði Seðla­ bankans verði niðurstaða alþingiskosn­ inga sú að ný ríkisstjórn taki við völdum. Þetta kom fram í frétt Financial Times síðastliðinn þriðjudag en þar er meðal annars haft eftir Pétri Erni Sverrissyni, lögmanni Eaton Vance og Autonomy Capital, að hann telji að þegar nýtt fólk tekur sæti í ríkisstjórn þá muni það líta öðrum augum á málið. „Að mínu viti þá er glórulaust fyrir stjórnvöld að hafa þetta mál hangandi yfir sér,“ segir Pétur Örn. Aflandskrónueigendur og hagsmuna­ verðir þeirra hafa að undanförnu beitt ýmsum úrræðum til að koma á framfæri þeirri skoðun sinni að stjórnvöld séu með aðgerðum sínum til að leysa aflandskrónuvandann að mismuna fjár­ festum eftir þjóðerni þeirra. Þannig birti bandaríska hugveitan Institute of Liberty heilsíðuauglýsingu í íslenskum, dönskum og bandarískum fjölmiðlum fyrr í þessum mánuði þar sem því var haldið fram að frumvarp fjármálaráðherra um meðferð aflandskrónueigna mismuni „alþjóð­ legum fjárfestum“ og „neyði þá til að selja skuldabréf sem tryggð eru í krónum með miklum afslætti, eða til að láta eignir sínar á reikninga sem bera enga vexti.“ Í gær, fimmtudag, birti sama hugveita, sem rekur verkefni sem kallast Iceland­ Watch.org, heilsíðuauglýsingu í Morgun­ blaðinu þar sem ákvarðanir Seðlabanka Íslands eru gagnrýndar. Varpað er fram þeirri spurningu „hver greiði fyrir opinbera spillingu og mismunarreglur á Íslandi.“ Þar segir að „mismunarstefna íslensku gjaldeyrishaftanna“ kosti þjóðina á milli 5 til 9 milljarða Bandaríkjadala í landsfram­ leiðslu árlega, samkvæmt nýrri breskri rannsókn. Þá er fullyrt í auglýsingunni að verið sé að rannsaka innanhúss Sturlu Pálsson, háttsettan aðila Seðlabankans, vegna meintra innherjaupplýsinga. Sturla svari beint til Más Guðmundssonar seðla­ bankastjóra og „mun hafa haft aðgang að öllum þessum upplýsingum.“ Auglýsing samtakanna, sem flest bendir til að sé runnin undan rifjum aflandskrónueigenda, vakti hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum og þannig skrifaði Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráð­ herra á Facebook­síðu sína: „Þessi aðför að íslenskum hagsmunum er ólíðandi og hvað gengur þessum aðilum til?“ n Aflandskrónueigandi á sjö milljarða í hlutabréfum n Meðal stærstu hluthafa Símans og Regins Hörður Ægisson hordur@dv.is Fjárfest í Símanum Sjóður Eaton Vance komst nýlega á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa Símans með tæplega 1,5% hlut. Mynd Sigtryggur Ari Eldbakaðar pizzur hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni salur fyrir hópa sími 557 1007 hamborgarar, salöt, pasta, kjúklingavængir og flEira

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.