Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Qupperneq 10
Helgarblað 28.–31. október 201610 Fréttir
V
iðskiptafélagarnir Sigur-
björn Þorkelsson, Árni
Hauksson og Hallbjörn
Karlsson eiga 48 prósent í
eignarhaldsfélaginu sem
keypti hlutabréf í Símanum í um-
deildri sölu Arion banka í ágúst í
fyrra. Þeir eignuðust þá 2,4 prósenta
hlut í fjarskiptafélaginu og greiddu
585 milljónir fyrir bréfin sem eru nú
metin á 692 milljónir. Félag í helm-
ingseigu Orra Haukssonar, forstjóra
Símans, fékk lánaðar 200 milljónir
króna fyrir kaupum á 0,83 pró-
senta hlut í fyrirtækinu. Fjár-
festahópur sem fjórmenn-
ingarnir tilheyra keypti
alls fimm prósent í Sím-
anum á 1.215 milljónir
eða rúmlega 115 milljón-
um minna en haldið hefur
verið fram.
Fékk lánað
Hópurinn keypti bréfin af Arion
banka í gegnum eignarhaldsfélagið
L1088 ehf. Samkvæmt nýbirtum
ársreikningi þess áttu Sigurbjörn,
Árni og Hallbjörn alls 48,15 pró-
senta hlut í því í árslok 2015 en eign-
in er skráð á félag þeirra Æðarnes
ehf. Orri Hauksson, sem leiddi fjár-
festahópinn saman fyrri hluta 2015,
og Gunnar Fjalar Helgason, yfir-
maður stefnumótunar og stjórnun-
ar hjá Símanum, áttu 16,5 prósent
í gegnum Frost Capital ehf. Gunn-
ar hefur ekki áður verið nefndur
í tengslum við kaupin en aðrir ís-
lenskir hluthafar L1088 voru nafn-
greindir þegar þau voru í hámæli
fyrir ári. Félag hans og Orra tók
samkvæmt ársreikningi Frost Capi-
tal lán í fyrra upp á 200 milljónir
króna, eða fyrir öllum hlutnum sem
þeir keyptu í Símanum, en í árslok
2015 nam hlutafé þess 120 þúsund
krónum.
Félagið Íshóll ehf. er þriðji stærsti
eigandi L1088 með 15,63 prósenta
hlut. Það er í eigu Stefáns Áka-
sonar, fyrrverandi forstöðumanns
skuldabréfamiðlunar Kaupþings.
Bertrand Kan, hollenskur fjárfestir
og stjórnar maður í Símanum, átti
6,38%. Önnur bréf félagsins voru í
eigu innlendra og erlendra fjárfesta
sem tóku þátt í kaupunum.
Hækkað um 20%
LH1088 keypti alls 482.500.000 hluti
í Símanum á genginu 2,518. Kaup-
verðið var því 1.215 milljónir króna
en ekki rúmlega 1.330 milljónir líkt
og fullyrt hefur verið í fjölmiðlum.
Þetta staðfestir Sigurbjörn Þorkels-
son, stjórnarformaður Fossa mark-
aða, í samtali við DV. Skýringuna á
hærri upphæðinni má að öllum lík-
indum rekja til þess að stjórnendur
hjá Símanum keyptu til viðbótar 0,5
prósenta hlut í fjarskiptafélaginu
af Arion banka með beinum hætti.
Þegar sá eignarhlutur er lagður
saman við bréf L1088 í Símanum
nemur heildarkaupverðið 1.336
milljónum.
Eigendur L1088 mega ekki selja
bréfin fyrr en í janúar á næsta ári.
Gengi hlutabréfa fjarskiptafélags-
ins var við lokun markaða í gær,
fimmtudag, 18 prósentum hærra
en verðið sem Arion banki fór fram
á. Bréf Símans voru þá metin á 2,98
krónur á hlut og fimm prósenta
eignarhlutur L1088 því 1.437 millj-
óna króna virði. Í árslok 2015 var
hann metinn á 1.746 milljónir í bók-
um félagsins en gengið var þá 3,62
krónur á hlut.
Meðlimir hópsins keyptu bréfin
tæpum tveimur mánuðum áður
en almennt hlutafjárútboð á eign
Aron banka í Símanum fór fram.
Bankinn seldi þá 21 prósent í fé-
laginu og var útboðsgengi Símans
3,33 krónur á hlut. Salan til L1088
vakti mikla athygli en einnig kaup
valinna vildarviðskiptavina bank-
ans á öðrum fimm prósentum í fjar-
skiptafyrirtækinu. Bjarni Benedikts-
son, fjármála- og efnahagsráðherra,
sagði viðskiptin hafa rýrt traust al-
mennings á fjármálamarkaði. Arion
banki viðurkenndi að salan til
vildarvinanna hefði verið misráðin
en taldi viðskiptin við L1088 hafa
verið réttmæt. Álitsgjafar Markaðar-
ins, fylgirits Fréttablaðsins um við-
skipti og efnahagsmál, völdu söluna
á eignarhlut Arion í Símanum verstu
viðskipti ársins 2015. n
Keyptu helminginn
af Símabréfunum
Fjárfestarnir Sigurbjörn, Árni og Hallbjörn greiddu Arion banka 585 milljónir fyrir 2,4% í Símanum
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Eiga 2,4% í Símanum Sigurbjörn
Þorkelsson, fjárfestir og stjórnarformaður
Fossa markaða, átti frumkvæði að aðkomu
fjárfestanna Árna Haukssonar og Hallbjörns
Karlssonar að hópnum sem keypti 5% hlut
í Símanum af Arion banka í ágúst 2015.
Þremenningarnir eiga allir þriðjungshlut í
Æðarnesi ehf. Mynd SiGtryGGur Ari
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus
Bláuhúsin v. Faxafen
s: 568 1800 s: 588 9988 s: 511 2500
Kringlunni Skólavördustíg 2
Bestir í sjónmælingum
Tímapantanir í síma