Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Síða 13
Helgarblað 28.–31. október 2016 Kosningaumfjöllun 13 Þess vegna ættir þú að kjósa þetta fólk Píratar vilja tryggja breytingar Ásta Guðrún Helgadóttir, oddviti Pírata í Reykjavík suður Í þessum kosningum gefst okkur einstakt tækifæri til að breyta Íslandi varanlega til hins betra, vegna þess að fólk er komið með nóg. Það sem við þurfum að gera er að beina þeirri tilfinningu í gagnlegan farveg og tryggja raun­ verulegar breytingar. Sjálfstæðis­ menn eru farnir að segja að val­ kostirnir í þessum kosningum séu skýrir; umbótastjórn undir forystu Pírata eða áframhaldandi stjórn Sjálfstæðisflokksins. Við erum sammála þessu! Viltu áfram sömu gömlu spillinguna, svikin kosningalof­ orð, valdhroka og andlýðræðis­ lega stjórnarhætti? Eða viltu breytingar? Við Píratar erum stofnuð fyrir lýðræði, gagnsæi, pólitíska ábyrgð og borgararéttindi og við höfum staðið fyrir þessa hluti alla okk­ ar tíð, bæði innan þings og utan. Svo við spyrjum eins og Sjálfstæðis­ flokkurinn, viltu nýja stjórnarskrá og ný stjórnmál með bættu samfé­ lagi og réttlátri dreifingu auðlinda til framtíðar? Eða viltu áfram sama, gamla, spillta draslið um ókomna tíð? Um það snúast þessar kosningar. Tækifærið er raunverulegt og við Píratar viljum tryggja breytingar.“ Kjósum uppbyggingu Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og oddviti í Reykjavík norður Við Vinstri græn viljum að allir hafi jöfn tækifæri. Það á ekki að skipta máli hver fæðist inn í ríka eða fátæka fjölskyldu og það er stjórnvalda að tryggja að það skipti ekki máli. Við teljum ójöfnuð því miður hafa aukist í tíð núverandi ríkisstjórnar. Skattabreytingar hafa nýst hinum tekjuhæstu og eignamestu. Ekki hefur verið ráðist í nauðsynlega upp­ byggingu innviða í heilbrigðis­ og menntakerfi. Hér þarf nýja sýn. Við leggjum til raunhæfa tekjuöflun þar sem til dæmis tekið verður á skattundanskot­ um með markvissum aðgerðum og sanngjarnt gjald tekið af auðlindarentunni. Við viljum nýta þessa fjármuni í að byggja upp heilbrigðis­ og menntakerfið því að í velferðinni felast raunveruleg verðmæti fyrir venjulegt fólk. Við viljum létta gjaldtöku af sjúklingum í áföngum, styrkja rekstur sjúkrahúsa, heilbrigðisstofnana og heilsugæslunnar og efla forvarnir með langtímahugsun að leiðarljósi. Við viljum breytta forgangsröðun í þágu hins félagslega rekna heilbrigðiskerfis. Við viljum bæta kjör aldraðra og öryrkja sem hafa setið eftir. Við viljum sókn í skólamálum. Þar þarf að styrkja rekstur framhaldsskóla og háskóla og bregðast við yfirvofandi kennaraskorti. Við viljum aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í breiðri samstöðu og tryggja þannig lífskjör komandi kynslóða. Við viljum réttlátt samfélag þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri.“ Þess vegna eigið þið að kjósa Alþýðufylkinguna Vésteinn Valgarðsson, oddviti Alþýðufylkingarinnar í Reykjavík norður Alþýðufylkingin boðar jöfnuð og fé­lagslegt réttlæti, fullveldi og velferð og hefur skýra sýn á hvernig þessum markmiðum verði náð: Með félagsvæð­ ingu. Með því að félagsvæða fjármála­ kerfið (banka, lífeyrissjóði og trygginga­ félög) og reka það sem samfélagslega þjónustu en ekki í gróðaskyni, getum við sem samfélag sleppt því að borga nokkur hundruð milljarða á ári í vexti. Og með því að félagsvæða aðra innviði samfélags­ ins, þannig að enginn geti makað krókinn með dýrum einkarekstri sem ríkið borgar að mestu fyrir, getum við nýtt peningana betur í velferð, í heilbrigðisþjónustu, í sjálf markmiðin með innviðunum. En þetta er ekki allt: Þessi markmið munu því aðeins nást, að fólk­ ið í landinu berjist fyrir þeim með virkum hætti. Við verðum í þeirri bar­ áttu, hvort sem við verðum innan eða utan Alþingis. Við eigum ekki að trúa stjórnmálamönnum sem lofa okkur öllu fögru, að gera allt fyrir okkur. Það er ekki hægt að stytta sér leið. Framfarir kosta baráttu. Þá baráttu boðum við. Þið eigið ekki bara að kjósa Alþýðufylkinguna, það er góð byrjun en ekki nóg. Þið eigið að ganga til liðs við hana og gera ykkur gildandi í baráttunni fyrir framtíð okkar allra.“ Kjóstu með þínum hagsmunum Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Fram- sóknarflokksins og oddviti í Suðurkjördæmi Undanfarin ár hafa verið viðburðarík. Margt hefur breyst til hins betra í samfélaginu vegna róttækra aðgerða sem ráðist var í á kjörtímabilinu, heimilum og þjóð til heilla. Þar fóru saman orð og athafnir okkar Framsóknar­ manna. Nú taka við ný verkefni. Við þurfum að efla enn frekar mátt hins al­ menna launamanns með því að lækka skatta á meðaltekjur. Við þurfum að endurskoða pen­ ingamálastefnuna því vextir eru of háir á Ís­ landi. Þeir voru háir í aðdraganda bankahruns­ ins, rétt eftir það og eru enn. Þessi tvö mál munu skila heimilum og atvinnulífi miklum ávinningi. En til þess að koma þeim á rekspöl þurfum við að halda áfram á braut framfara og ábyrgrar stjórnunar í efnahagsmálum og með því tryggja stöðugleika. Það gengur vel og nú er ekki rétti tíminn fyrir kollsteypu. Val kjósenda stendur um áframhaldandi trausta efnahagsstjórn og kraft­ mikið efnahagslíf öllum til heilla, eða endurnýjaða vinstri stjórn með stuðn­ ingi Pírata. Fyrsta hreina vinstri stjórnin klauf þjóðina í herðar niður með umsókn að Evrópusambandinu og fátt bendir til annars og fróðlegt verður að sjá hvort það sama verði uppi á teningnum að þessu sinni. Manngildi ofar auðgildi er leiðarstef Framsóknarflokksins. Því verður haldið til haga. Ég hvet alla til að kjósa með sínum hagsmunum.“ Björt framtíð gefur ekki afslátt Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar og oddviti í Suðvesturkjördæmi Björt framtíð leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, breitt samráð og baráttu gegn fúski og sérhagsmunagæslu. Okkar hlutverk er að hafa góð áhrif og auka samvinnu í íslensku samfélagi. Miðjuflokkur eins og Björt framtíð getur haft góð áhrif bæði til hægri og vinstri. Björt framtíð vill t.d. umbætur í landbúnaði, sjávarútvegi og auðlindamálum. Við leggjum áherslu á frjálst samkeppnisumhverfi, langtímastöðugleika, frjálslyndi og leggjum áherslu á að kosið verði um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Við viljum axla ábyrgð á loftslagsmálum í anda frjálslyndisstefnunnar sem segir að við fjöl­ þjóðlegum vandamálum verði að bregðast með lausnum. Við köllum eftir heildrænni stefnumörkun í ferðamálum og að snúið verði frá stóriðjustefnu sem byggir á nýtingu takmarkaðra auðlinda. Björt framtíð styður við að menntun og menning verði nýja stóriðjan. Þannig byggjum við upp fjölbreyttara og sterkara atvinnulíf þar sem allir fá notið sín. Fólk þarf að hafa trú og traust á að þetta sé öruggt og skemmtilegt samfélag til að búa og starfa í, að hér sé gott að alast upp og ala upp. Það er engin hætta á því að Björt framtíð gefi afslátt af þessum grunnprinsippum. Það er engin hætta á því að Björt framtíð taki ekki afstöðu. Við erum ekki í stjórnmálum til að búa til valdastofnun heldur til þess að hafa góð áhrif á íslenskt samfélag.“ Flokkur fólksins er flokkurinn þinn Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og oddviti í Reykjavík suður É g er lögblindur, 75% öryrki og þekki það á eigin skinni hvernig er að þiggja ölmusuna sem hrynur af allsnægtaborði auðvaldsins. Með því að setja X við F hefur þú valið að eiga þína rödd á Alþingi, rödd sem mun berjast af alefli gegn fátækt og spillingu. Þú munt hjálpa mér í baráttunni gegn græðgisvæðingu sérhagsmunaaflanna og berjast með mér að almannahag. Við búum við gríðarlega misskiptingu þar sem 9,1 % barnanna okkar líður hér mismikinn skort, þar sem hluta eldri borgara, öryrkja og verka­ fólks er haldið við og undir fátæktarmörkum. Við þurfum að horfa á mannauðinn okkar flæða úr landi og heilbrigðiskerfið okkar í molum. Við njótum ekki fullra renta af auðlindunum. Við erum tvær þjóðir í landinu okkar, þ.e. sérhagsmunaöflun og svo við hin. Hjálpaðu mér að gera landið okkar betra fyrir okkur öll, að landi þar sem býr ein samhent þjóð. Þar sem ekk­ ert barn er svangt vegna fátæktar, þar sem unga fólkið okkar getur komið sér upp heimili, þar sem allir geta leit­ að sér lækninga án þess að það sé flokkað sem forréttindi. Ég vil berjast með þér til að gera landið okkar farsælla og betra fyrir okkur öll, ég vil stokka spilin upp á nýtt, því þau hafa alltof lengi verið vitlaust gefin.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.