Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Síða 18
Helgarblað 28.–31. október 201618 Fréttir
Flokkarnir og fylgið á Facebook
n Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar í sérflokki á samfélagsmiðlunum n Bjarni
S
jálfstæðisflokkurinn hefur
mest fylgi á Facebook af öll-
um þeim flokkum sem bjóða
fram til alþingiskosninganna
sem fram fara á morgun,
laugardag. Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, er
einnig vinsælasti formaðurinn á
Facebook með tæplega 11.800 fylgj-
endur á sinni opinberu síðu. Sjálf-
stæðisflokkurinn og Píratar eru í
sérflokki á samfélagsmiðlunum og
einu tveir flokkarnir með yfir 10 þús-
und fylgjendur. Ljóst er að Facebook
getur reynst flokkum og frambjóð-
endum haukur í horni við að koma
sér og áherslum sínum í kosninga-
baráttunni á framfæri enda mikill
meirihluti Íslendinga á Facebook.
Samfélagsmiðlar hafa aldrei verið
mikilvægari en nú og sést það greini-
lega á auglýsingum flokkanna, líkt og
forsetaframbjóðenda fyrr á árinu, að
þeir virðast nú treysta meira á Face-
book en aðra hefðbundnari auglýs-
ingakosti.
Einn flokkur utan Facebook
Samkvæmt athugun DV eru tíu af
flokkunum tólf sem bjóða fram
að þessu sinni með opinberar
flokkssíður á Facebook, svokall-
aðar like-síður, þar sem notend-
ur geta fylgt flokkunum eftir og
fengið nýjustu tíðindi. Íslenska
þjóðfylkingin er með opinn um-
ræðuhóp en Alþýðufylkingin er
ekki á Facebook. Vakin er athygli
á því að þessi úttekt er aðeins til
gamans gerð og vert að benda á
að almenningur getur „lækað“
við fleiri en einn flokk.
Sjálfstæðisflokkurinn
vinsælastur
Heildarfjöldi fylgjenda stjórnmála-
flokkanna á Facebook er 59.453.
Sjálfstæðisflokkurinn á 12.201
fylgjanda, eða 20,5%, Píratar eiga
10.573 fylgjendur, eða 17,7%, Fram-
sóknarflokkurinn 6.646 fylgjendur,
eða 11% og Björt framtíð 6.409
eða 10,7% prósent. Fjöldi fylgj-
enda tveggja vinsælustu flokkanna
á Facebook helst nokkuð í hend-
ur við stærð þeirra samkvæmt nýj-
ustu skoðanakönnunum. Skortur
Vinstri grænna á fylgjendum er
þó á skjön við gott gengi þeirra í
skoðanakönnunum að undan-
förnu. Af flokkum sem átt hafa erfitt
uppdráttar samkvæmt skoðana-
könnunum gengur Bjartri framtíð
greinilega betur að safna sér fylgj-
endum en atkvæðum. Björt framtíð
er fjórði stærsti flokkurinn á Face-
book en stendur frammi fyrir því
að ná hugsanlega ekki inn manni í
raunheimi.
Fylgi á Facebook
hrekkur skammt
En Facebook-fylgjendur segja auð-
vitað ekki allt. Á kjörskrá vegna al-
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Sjálfstæðisflokkurinn: Hlutfall af
öllum Facebook-fylgjendum: 20,5%
Formaður: Bjarni Benediktsson:
11.789 fylgjendur.
1
12.201
Píratar: Hlutfall af öllum Facebook-
fylgjendum: 17,7%
Eru ekki með formann. Birgitta Jóns-
dóttir er ekki með opinbera síðu en á 5.000
vini á Facebook.
2
10.573
Framsóknarflokkurinn: Hlutfall af
öllum Facebook-fylgjendum: 11%
Formaður: Sigurður Ingi Jóhannsson:
3.865 fylgjendur.
3
6.646
Björt framtíð: Hlutfall af öllum Face-
book-fylgjendum: 10,7%
Formaður: Óttarr Proppé, er ekki með
opinbera síðu en á 5.000 vini á Facebook.
4
6.409
Viðreisn: Hlutfall af öllum Facebook-
fylgjendum: 9,4%
Formaður: Benedikt Jóhannesson, er
ekki með opinbera síðu en á 3.130 vini á
Facebook og 1.116 fylgjendur.
5
5.644
Samfylkingin: Hlutfall af öllum
Facebook-fylgjendum: 8,6%
Formaður: Oddný G. Harðardóttir: 1.415.
6
5.128
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
Skráðu þig í Bed&Breakfast klúbbinn
okkar og fáðu betri kjör
s: 426 5000 — booking@bbkefairport.is — bbkeflavik.com
Ertu á leið í flug?
Við geymum bílinn frítt,
keyrum þig á flugvöllinn og
sækjum þig við heimkomu