Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Side 25
Ferðalok Kynningarblað Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 28. október 2016 Fjölskyldufyrirtæki í áratugi Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar Ú tfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar er elsta starfandi útfararþjónust- an á höfuðborgarsvæðinu. Rúnar hefur alla tíð veitt fyrirtækinu forstöðu sem fram- kvæmdastjóri þess og útfararstjóri. Útfararþjónustan er í eigu Rúnars og eiginkonu hans, Kristínar Sig- urðardóttur, og starfa synir þeirra, Elís og Sigurður, þar ásamt föður sínum. Orðsporið skiptir útfararþjón- ustu miklu. „Ef maður sinnir sínu starfi vel er það fljótt að spyrjast út,“ segir Rúnar sem hefur þrjátíu ára reynslu af útfararþjónustu. „Fyrst og fremst þarf að taka tillit til þess að fólk er í sárum eftir ástvinamissi. Við þurfum að gæta að því sem við gerum og segjum og eins að nálg- ast fólk með hlýju og auðmýkt. Það getur verið mjög erfitt að bjóða fólki við þessar aðstæður þjónustu gegn greiðslu en þetta hefur lærst í gegnum árin og við tökum mikið tillit til þess hvernig aðstæður eru hverju sinni,“ segir hann. Formaður Félags íslenskra útfararstjóra Ásamt daglegum störfum við hefð- bundna útfararþjónustu er Rúnar Geirmundsson formaður Félags ís- lenskra útfararstjóra. Félagið hefur verið starfrækt í yfir áratug og hef- ur Rúnar verið formaður þess allt frá upphafi. Aðaltilgangur félags- ins er skapa vettvang til að halda utan um siðareglur útfararstjóra. „Starf mitt sem formaður felst aðal- lega í því að halda utan um funda- starf og framfylgja reglum og sam- þykktum aðalfunda. Ég sæki einnig fundi erlendis enda á félagið í tals- verðum erlendum samskiptum. Siðareglur evrópskra útfararstjóra eru til að mynda grunnur íslensku siðareglnanna,“ segir Rúnar. Ekki er lagaleg skylda að útfararstjóra séu í félaginu en nánast allir starf- andi útfararstjórar eru þó félags- menn og hafa undirritað siðareglur félagsins. Virðingin og alúð Rúnar hefur unnið við útfarar- þjónustu frá því 1983, fyrst hjá Kirkjugörðunum og síðan í eigin fyrirtæki. Aðspurður segist hann hafa lært það á löngum ferli að það skipti ekki höfuðmáli hvaða trú fólk aðhyllist eða hvort það aðhyllist trú yfirleitt, virðingin fyrir hinum látna sé alltaf í forgrunni. „Og það þurf- um við alltaf að hafa í huga, án þess að taka afstöðu til trúmála. Hlýja, auðmýkt og virðing er það leiðar- ljós sem við fylgjum alltaf. Þegar andlát ber að garði er mikil vægt að hafa samband við útfararþjónustu sem fyrst,“ segir Rúnar. „Í fyrsta lagi þarf að flytja hinn látna af dánarstað og í lík- hús og síðan að byrja að undirbúa kistulagninguna. Útfararstjórinn heimsækir yfirleitt aðstandendur daginn eftir og þeir leggja þá fram óskir sínar varðandi framkvæmd kistulagningar og síðan jarðarfarar. Í því felst í flestum tilfellum að velja prest eða athafnarstjóra og síð- an að tímasetja allar athafnir og bóka grafartöku eða bálför. Næsta skref er svo að ákveða hvað kemur í okkar hlut að sinna en við sjáum um allt er lýtur að undirbúningi og framkvæmd útfara. Til að mynda höldum við utan um öll samskipti við aðstandendur, tónlistarfólk, kirkjur, blómabúðir, kirkjugarða og alla þá sem koma að útför.“ Íslensk hönnun og handverk Útfararþjónusta Rúnars Geir- mundssonar leggur mikið upp úr því að vera með fallegar kistur á góðu verði sem standast ströng- ustu kröfur um umhverfisvernd. Algengastar eru hinar hefðbundnu hvítu kistur en alltaf er eitthvað um að fólk vilji harðviðar kistur, til dæmis eik eða mahóní. Val á kistum getur vafist fyrir aðstand- endum enda úrvalið nokkuð. „Við eigum umhverfisvænar og fallegar hefðbundnar hvítar kistur, sem eru algengastar, en einnig töluvert úrval af viðarkistum.“ Í fyrsta sinn á Íslandi hefur Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar nú látið hanna og smíða íslenskar kistur úr íslenskum við í samstarfi við Þor- stein B. Jónmundsson trésmið. „Við höfum hannað sérstaka kistu og duftker út frá hugmyndinni um ís- lenska kistu úr alíslenskum við til brennslu og jarðsetningar,“ útskýrir Rúnar. Kisturnar eru úr við sem er unninn og þurrkaður í Hallorms- staðarskógi. „Þessi kista er mjög falleg, úr grófum við og ólökkuð eða máluð á náttúrulegan máta.“ n Nánari upplýsingar er að finna á utfarir.is eða í síma 567-9110 allan sólarhringinn, alla daga ársins. Mynd Sigtryggur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.