Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Síða 25
Ferðalok
Kynningarblað
Áby rgðarmaður og umsjón:
Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is
28. október 2016
Fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar
Ú
tfararþjónusta Rúnars
Geirmundssonar er elsta
starfandi útfararþjónust-
an á höfuðborgarsvæðinu.
Rúnar hefur alla tíð veitt
fyrirtækinu forstöðu sem fram-
kvæmdastjóri þess og útfararstjóri.
Útfararþjónustan er í eigu Rúnars
og eiginkonu hans, Kristínar Sig-
urðardóttur, og starfa synir þeirra,
Elís og Sigurður, þar ásamt föður
sínum.
Orðsporið skiptir útfararþjón-
ustu miklu. „Ef maður sinnir sínu
starfi vel er það fljótt að spyrjast út,“
segir Rúnar sem hefur þrjátíu ára
reynslu af útfararþjónustu. „Fyrst
og fremst þarf að taka tillit til þess
að fólk er í sárum eftir ástvinamissi.
Við þurfum að gæta að því sem við
gerum og segjum og eins að nálg-
ast fólk með hlýju og auðmýkt. Það
getur verið mjög erfitt að bjóða
fólki við þessar aðstæður þjónustu
gegn greiðslu en þetta hefur lærst
í gegnum árin og við tökum mikið
tillit til þess hvernig aðstæður eru
hverju sinni,“ segir hann.
Formaður Félags íslenskra
útfararstjóra
Ásamt daglegum störfum við hefð-
bundna útfararþjónustu er Rúnar
Geirmundsson formaður Félags ís-
lenskra útfararstjóra. Félagið hefur
verið starfrækt í yfir áratug og hef-
ur Rúnar verið formaður þess allt
frá upphafi. Aðaltilgangur félags-
ins er skapa vettvang til að halda
utan um siðareglur útfararstjóra.
„Starf mitt sem formaður felst aðal-
lega í því að halda utan um funda-
starf og framfylgja reglum og sam-
þykktum aðalfunda. Ég sæki einnig
fundi erlendis enda á félagið í tals-
verðum erlendum samskiptum.
Siðareglur evrópskra útfararstjóra
eru til að mynda grunnur íslensku
siðareglnanna,“ segir Rúnar. Ekki
er lagaleg skylda að útfararstjóra
séu í félaginu en nánast allir starf-
andi útfararstjórar eru þó félags-
menn og hafa undirritað siðareglur
félagsins.
Virðingin og alúð
Rúnar hefur unnið við útfarar-
þjónustu frá því 1983, fyrst hjá
Kirkjugörðunum og síðan í eigin
fyrirtæki. Aðspurður segist hann
hafa lært það á löngum ferli að það
skipti ekki höfuðmáli hvaða trú fólk
aðhyllist eða hvort það aðhyllist trú
yfirleitt, virðingin fyrir hinum látna
sé alltaf í forgrunni. „Og það þurf-
um við alltaf að hafa í huga, án þess
að taka afstöðu til trúmála. Hlýja,
auðmýkt og virðing er það leiðar-
ljós sem við fylgjum alltaf.
Þegar andlát ber að garði er
mikil vægt að hafa samband við
útfararþjónustu sem fyrst,“ segir
Rúnar. „Í fyrsta lagi þarf að flytja
hinn látna af dánarstað og í lík-
hús og síðan að byrja að undirbúa
kistulagninguna. Útfararstjórinn
heimsækir yfirleitt aðstandendur
daginn eftir og þeir leggja þá fram
óskir sínar varðandi framkvæmd
kistulagningar og síðan jarðarfarar.
Í því felst í flestum tilfellum að velja
prest eða athafnarstjóra og síð-
an að tímasetja allar athafnir og
bóka grafartöku eða bálför. Næsta
skref er svo að ákveða hvað kemur
í okkar hlut að sinna en við sjáum
um allt er lýtur að undirbúningi og
framkvæmd útfara. Til að mynda
höldum við utan um öll samskipti
við aðstandendur, tónlistarfólk,
kirkjur, blómabúðir, kirkjugarða og
alla þá sem koma að útför.“
Íslensk hönnun og handverk
Útfararþjónusta Rúnars Geir-
mundssonar leggur mikið upp úr
því að vera með fallegar kistur á
góðu verði sem standast ströng-
ustu kröfur um umhverfisvernd.
Algengastar eru hinar hefðbundnu
hvítu kistur en alltaf er eitthvað
um að fólk vilji harðviðar kistur,
til dæmis eik eða mahóní. Val á
kistum getur vafist fyrir aðstand-
endum enda úrvalið nokkuð. „Við
eigum umhverfisvænar og fallegar
hefðbundnar hvítar kistur, sem
eru algengastar, en einnig töluvert
úrval af viðarkistum.“ Í fyrsta sinn
á Íslandi hefur Útfararþjónusta
Rúnars Geirmundssonar nú látið
hanna og smíða íslenskar kistur úr
íslenskum við í samstarfi við Þor-
stein B. Jónmundsson trésmið. „Við
höfum hannað sérstaka kistu og
duftker út frá hugmyndinni um ís-
lenska kistu úr alíslenskum við til
brennslu og jarðsetningar,“ útskýrir
Rúnar. Kisturnar eru úr við sem er
unninn og þurrkaður í Hallorms-
staðarskógi. „Þessi kista er mjög
falleg, úr grófum við og ólökkuð
eða máluð á náttúrulegan máta.“ n
Nánari upplýsingar er að finna á
utfarir.is eða í síma 567-9110 allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
Mynd Sigtryggur ari