Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Page 43
Helgarblað 28.–31. október 2016 Menning 35 Laugavegur 24 Sími 555 7333 publichouse@publichouse.is publichouse.is BENTO BOX 11.30–14.00 virka daga / LUNCH 11.30–15.00 um helgar / BRUNCH 1.990 kr. HVAR ER SÓSAN? Það má deila um hvort franskar kartöflur komi frá Frakklandi eða Belgíu. En það er óumdeilanlegt að þær eru mun betri með cocktailsósunni okkar. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.  At the Mountains of Madness eftir Guillermo del Toro Um hvað átti myndin að vera? At the Mountains of Madness átti að vera hryllings- mynd, byggð á samnefndri skáldsögu H.P. Lovecraft sem kom út árið 1931. Átti myndin að segja frá voveiflegum atburðum á Suður- skautslandinu. Hvað gerðist? Á árunum 2006 til 2010 fékk del Toro fjármagn frá Universal til að undirbúa myndina; skrifa handrit og teikna ófreskjurnar. Tom Cruise var orðaður við aðalhlutverkið. Del Toro taldi að myndin myndi kosta 150 milljónir dala í framleiðslu og samkvæmt fjárhagsá- ætlun var talið að hún þyrfti að skila 500 milljónum dala í kassann til að standa undir öllum kostnaði. Þar sem myndin átti að vera hryllingsmynd, stranglega bönnuð börnum, var talið að hún myndi ekki höfða til nægjanlegra margra. Er líklegt að hún verði framleidd? Líkurnar eru ekki ýkja miklar. Síðasta mynd del Toro, Crimson Peak, halaði aðeins inn 75 milljónir dala en kostnaður við hana nam 55 milljónum dala. Ólíklegt þykir að stóru kvikmyndaverin séu reiðubúin að leggja fjármagn í verkefnið.  Dune eftir Alejandro Jodorowsky Um hvað átti myndin að vera? Á áttunda áratug liðinnar aldar reyndi kvikmyndaframleiðandinn Arthur Jacobs að fá Alejandro Jodorwski til að taka að sér að leikstýra Dune sem byggð var á vísinda- skáldsögu Franks Herberts. Myndin gerist í fjarlægju stjörnukerfi í framtíðinni og segir frá deilum tveggja fjölskyldna. Hvað gerðist? Verkefnið var of stórt og áhættan of mikil fyrir leikstjóra eins og Jodorowski sem þótti býsna framúrstefnulegur í kvikmyndum sínum. Menn óttuðust að myndin myndi ekki höfða til nógu margra til að borga sig. Svo fór að David Lynch tók verkefnið að sér og kom myndin út árið 1984 í talsvert frábrugðinni útgáfu upphaflega var ætlað. Aðsókn var undir væntingum en myndin er í uppáhaldi hjá mörgum kvikmyndanördum enn þann dag í dag. Er líklegt að hún verði framleidd? Dune, eins og Jodorowsky sá hana fyrir sér, heyrir sögunni til. Megalopolis eftir Francis Ford Coppola Um hvað átti myndin að vera? Höfundur Godfather og Apocalypse Now ætlaði að leikstýra þessu stórvirki á tíunda áratug liðinnar aldar. Myndin átti að segja frá stórhuga arkitekt og tilraunum hans til að byggja útópíska stórborg. Hvað gerðist? Coppola eyddi ófáaum tímum í undirbúning myndarinnar og var til dæmis búinn að skrifa 212 blaðsíðna handrit. Verkefnið var sett á ís eftir hryðjuverka- árásirnar í New York árið 2001 og fljótlega upp úr aldamótum varð ljóst að ekkert yrði úr verkefninu. Er líklegt að hún verði framleidd? Það þykir ólíklegt. Coppola er orðinn 77 ára og sinnir mun minni og færri verkefnum en áður.  Kill Bill 3 eftir Quentin Tarantino Um hvað átti myndin að vera? Eins og nafnið gefur til kynna átti myndin að vera framhald Kill Bill-myndanna frá árunum 2003 og 2004. Myndin átti að segja frá dóttur Brúðarinnar, sem Uma Thurman lék, og viðleitni hennar til að ná fram hefndum á kvölurum móður sinnar. Hvað gerðist? Quentin Tarantino fer sínar eigin leiðir og þessi hugmynd hefur verið á teikni- borðinu í mörg ár, en aldrei orðið meira en hugmynd. Er líklegt að hún verði framleidd? Ef Tarantino vill það mun hann fá til þess fjármagn. En Tarantino hefur sjálfur sagt að hann ætli ekki að leikstýra til dauðadags og hann vilji einnig sinna öðrum verkefnum. Spurningin er aðeins hvort hann hafi nógu mikla ástríðu fyrir verkefninu.  The Conquest of Mexico eftir Werner Herzog Um hvað átti myndin að vera? Myndin átti að segja frá nýlendusigrum Evrópumanna í Mið-Ameríku út frá sjónarhorni Asteka. Hvað gerðist? Francis Ford Coppola reyndi að framleiða myndina á áttunda áratug síðustu aldar. Framleiðslufyrirtæki hans fór þó á hausinn eftir að myndin One From the Heart floppaði. Þar með var fjármögnun myndarinnar fyrir bí. Herzog reyndi skömmu fyrir aldamót að selja stóru kvikmyndaverunum handritið að myndinni en án árangurs. Er líklegt að hún verði framleidd? Það þykir ólíklegt. Herzog hefur átt blóm- legan feril, einkum í heimildamyndagerð, og hefur hans fyrsta og síðasta stórmynd í Hollywood líklega litið dagsins ljós. Það er myndin Rescue Dawn frá árinu 2006.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.