Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Side 56
Helgarblað 28.–31. október 2016
85. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Pattaralegir
Píratar!
Ástir í Efstaleiti?
n Fréttakonan Viktoría
Hermannsdóttir á RÚV og út-
varpsmaðurinn og skemmtikraft-
urinn Sólmundur Hólm eru farin
að stinga saman nefjum. Þau hafa
undanfarið sést saman við hin
ýmsu tækifæri og hefur vinskap-
ur þeirra vakið athygli. Viktoría
hóf nýverið störf á RÚV, eftir tvö
ár hjá 365 miðlum. Sóli hefur ver-
ið viðloðandi RÚV undanfarin ár
en hann starfar þar við dagskrár-
gerð. Meðfylgjandi mynd af þeim
var tekin á forsýningu
kvikmyndarinnar
Grimmdar.
Fituprósenta
Pírata
n „Píratar byrjuðu í fituprósent-
unni hans Rikka G., 35%. Tálg-
uðu sig svo niður í skólaost, 26%.
Sýnist að þeir endi í Ívari Guð-
munds!“ skrifar Egill Einarsson
á Twitter-síðu sína og beinir þar
spjótum sínum að bæði Pírötum
og Ríkharði Óskari Ríkharðssyni,
Rikka G., dagskrárstjóra FM 957.
Egill skýtur reglulega á holda-
far Rikka, sem bregst ókvæða við
dylgjum Egils um ástand hans
að þessu sinni. „Titlar þú þig ekki
sem einkaþjálfara? Heldurðu að
ég sé 35% fita?? Segðu upp sauð-
nautið þitt!“ seg-
ir Rikki í ansi
kostulegum
samskiptum.
Ívar Guðmunds
leggur síðan
orð í belg og
upplýsir að fitu-
prósenta hans
sé 10% og það
væru góðar frétt-
ir ef fylgi Pírata
færi sömu
leið.
Ó
hætt er að segja að íslenskir
Marvel-aðdáendur hafi fagnað
þegar Tómas Lemarquis
hreppti hlutverk Caliban í stór-
myndinni X-men: Apocalypse sem
kom út fyrr á árinu. „Það var ótrúleg
lífsreynsla að taka þátt í þessu stóra
verkefni með Bryan Singer,“ sagði
Tómas í samtali við DV á sínum tíma.
Hlutverk Tómasar var ekki stórt en
veigamikið í framvindu myndarinn-
ar. Kvikmyndirnar úr smiðju Marvel
hala iðulega inn mestar tekjur í kvik-
myndahúsum ár hvert og hafa leik-
ararnir oft verið nokkuð fast-
heldnir á hlutverk sín.
Það voru því nokkur
vonbrigði þegar tilkynnt
var að leikarinn Stephen
Merchant, sem er þekkt-
astur fyrir hlutverk sitt úr
bresku Office-þáttunum,
myndi fara með hlutverk
Caliban í nýrri mynd úr
smiðju Marvel sem ber
heitið Logan. Eins og nafnið gefur til
kynna þá snýst myndin um Jarfann
vígalega sem stórleikarinn Hugh
Jackman hefur ósjaldan
leikið.
Myndin gerist 50
árum eftir atburðina
í X-men: Apocalypse
og herma heimildir
DV að framleiðendur
myndarinnar hafi
ákveðið að láta Caliban
þróast í útliti frá fyrri
myndinni. Búast má
við að Tómas hafi tekið fréttunum
af æðruleysi. „Á hverju ári er ég
viðriðinn einhverjar myndir sem
verða ekki að
veruleika. Maður
lærir með tíman-
um að brynja sig
og hætta að vera
vonsvikinn. Þetta
er rosalega brot-
hættur heimur,“
sagði Tómas í áð-
urnefndu sam-
tali við DV. Hann
mun fara með
eitt aðalhlutverkanna í rúmensku
myndinni „Touch me not“. n
Merchant inn fyrir Lemarquis
Tómas fær ekki að fara með hlutverk sitt í framhaldsmyndinni
Tómas Lemarquis Lék lítið en veiga
mikið hlutverk Caliban í Xmen: Apocalypse.
Stephen Merchant
Officestjarnan tekur við
kyndlinum af Tómasi.
M
y
n
d
Þ
o
R
G
Ei
R
Ó
La
fS