Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 11.–14. október 20162 Bækur
Ný
blóm í
garði
Gyrðis
Í sögum Gyrðis Elíassonar hendir það oft að lesandinn fær ekki þær upplýsingar sem samkvæmt hefðbundnum skilningi teldust mark
verðastar. Við getum til dæmis
kynnst stuttlega manni sem hefur
orðið fyrir áfalli en við fáum aldrei
að vita í hverju áfallið er fólgið en
upplifum þess í stað hvernig mað
urinn bregst við áfallinu og ýmis
sérkennileg smáatriði í tilverunni
taka að stækka og öðlast mikil vægi,
en annað einkenni á sögum Gyrð
is er einmitt að þær fjalla oft um
smámuni sem þykja jafnvel ekki
frásagnarverðir samkvæmt hefð
bundnum skilningi á sögumennsku.
Sumar sögur hans eru mystískar og
yfirnáttúrulegar á meðan aðrar eru
hversdagslegar. Nær allar hafa þær
til að bera einstakt andrúmsloft sem
myndað er í smiðju Gyrðis. Stíllinn er
myndríkur og einkennist af einstakri
tilfinningu fyrir smáatriðum. Margar
sagna hans minna meira á málara
list en frásagnarlist: Frumlega valin
og hárfínt dregin smáatriðin birta
okkur fallega, oft dapurlega, stund
um lúmskt fyndna, einstaka sinnum
hrollvekjandi mynd af stemningu og
hugarástandi.
Gyrðir er einstakur höfundur,
hann líkist engum öðrum – nema
sjálfum sér. Eitt af því fáa sem hægt
hefur verið að finna að bókum
Gyrðis í gegnum tíðina er að sumar
þeirra hafa verið nokkur keimlíkar.
Mörkin milli þess að rækta garðinn
sinn og endurtaka sig kunna að vera
óljós og matsatriði hvers lesanda
fyrir sig. Gríðarlega afkastamikill er
Gyrðir, frá því laust fyrir 1990 hefur
hann gefið út 1–2 bækur á hverju
ári. Stuttar skáldsögur, ljóðabækur
og umfram allt smásagnasöfn, en
ég hef enga tölu á smásagnasöfnum
sem Gyrðir hefur gefið út og hef þó
lesið þau flest.
Nýjasta bók Gyrðis, Langbylgja,
er flokkuð sem safn smáprósa af
hendi útgefanda en eldra heiti
yfir smáprósa er örsögur. Stystu
sögurnar eru um 500 orð en þær
lengstu kannski um 1.500, nokkrar
blaðsíður. Gyrðir hefur oftast nær
skrifað mjög stutt
ar smásögur og því
virkar þessi bók á
mig sem smásagna
safn frekar en eitt
hvað annað. Lang
bylgja sver sig í ætt
við mörg fyrri verk
höfundar, heimur
Gyrðis er alltaf í
senn kunnuglegur
og einstakur.
Langbylgja er
ríkulegri en algengt
er um bækur með
stuttum prósaverk
um, sögurnar eru
rúmlega 100 á ríflega 250 blaðsíðum.
Fjölbreytni sagnanna er meiri en oft
áður í bókum Gyrðis, sumar ger
ast erlendis og sögusviðin eru fjöl
breytt. Eins og í fyrri prósa verkum
hans er athygli lesandans beint að
hinu smáa í tilverunni en stóru at
burðunum í lífi sögupersónanna ýtt
til hliðar. Sem vænta
má eru sögurnar allar
listilega vel skrifaðar
en misjafnlega áhrifa
miklar eins og gengur.
Sumar orka á lesand
ann sem skemmtileg
ur en léttvægur leikur
höfundar, aðrar vekja
sterkar kenndir, sorg
og stundum hrylling.
Töluverð kímni prýðir
margar sagnanna og
kemur fram í orðaleikj
um, hnyttnu sjónar
horni og fyndnum að
stæðum.
Langbylgja er bók sem gott er
að lesa hægt því stuttar sögur kalla
á hægan lestur. Hún er góður föru
nautur inn í skamm degið og örvar
dulúðina sem býr með okkur. n
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Bækur
Langbylgja
Höfundur: Gyrðir Elíasson
Útgefandi: Dimma
270 bls.
„Stíllinn er mynd-
ríkur og einkenn-
ist af einstakri tilfinningu
fyrir smáatriðum.
Gyrðir Elíasson „Gyrðir
er einstakur höfundur, hann
líkist engum öðrum – nema
sjálfum sér.“ Mynd SiGtryGGur Ari
Vögguvísa er sænsk glæpasaga eftir Carin Gerhardsen en áður hafa komið út eftir hana Piparkökuhúsið og
Mamma, pabbi, barn. Þess
ar þrjár bækur fjalla um lög
reglusveitina á Hammarby
stöðinni. Söguþráður er á þá
leið að kona og tvö ung börn
hennar eru myrt. Lögreglu
foringinn Conny Sjöberg og
félagar hans rannsaka glæp
inn en standa einnig frammi
fyrir annarri ráðgátu, því fé
lagi þeirra Einar Eriksson er
horfinn.
Vögguvísa er ekki sérlega vel
skrifuð bók og ekki er hún hörku
spennandi. Hins vegar leynist þar
hliðarsaga sem hlýtur að snerta les
andann en í ljós kemur að löngu
liðinn atburður, dramatískur og harm
rænn, er ástæða morðanna. Einmitt
þarna er sterkasti þáttur verksins. Allt
annað í bókinni er með
hefðbundnum brag. Það
kemur engan veginn á
óvart að hluti bókarinn
ar fjallar um vandamál
í lífi aðalpersónunnar
Sjöbergs, en leyndar
dómur úr æsku hans op
inberast. Þar leggur höf
undur sig fram við að
loka því máli með tilfinn
ingaríku samtali móður
og sonar og þar þarf les
andinn að þola dágóðan
skammt af væmni. Sama hneigð birt
ist í lokin í siðferðilegri vandlætingar
ræðu lögreglumanna yfir morðingjan
um. Þetta er ekki til að bæta söguna.
Vögguvísa er glæpasaga í meðal
lagi. Sterkasti þáttur hennar snýr að
skelfilegum atburði sem gjörbreytir
lífi einstaklinga sem alla tíð lifa með
sektar kennd. Annað í bókinni er alls
ekki jafn vel gert. Unnendur spennu
sagna, fyrir utan þá allra kröfu
hörðustu, ættu þó að una sér þokka
lega við lesturinn. n
Með hefðbundnum brag
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Vögguvísa
Höfundur: Carin Gerhardsen
Þýðandi: Nanna B. Þórsdóttir
Útgefandi: JPV
299 bls.