Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Síða 46
Helgarblað 11.–14. nóvember 201630 Menning
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...
B
rot úr hjónabandi eftir Ing
mar Bergman, var upphaf
lega sex þátta sjónvarps
sería sem frumsýnd var
árið 1973 og naut strax
gríðarlegra vinsælda. Ingmar lét
ekki þar við sitja heldur hélt áfram
að vinna með handritið, hann stytti
sjónvarpsþættina til sýninga í kvik
myndahúsum og skrifaði að lokum
leikgerð verksins sem hann leik
stýrði sjálfur, árið 1981. Ólafur Egill
Egilsson hefur samið nýja leikgerð
upp úr öllu þessu efni og fært til nú
tímans. Ekki verður annað sagt en
að honum takist vel upp, handritið
er feikilega þétt, ekki síst framan af
og þýðandinn, Þórdís Gísladóttir,
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Brot úr hjónabandi
Höfundur: Ingmar Bergman
Þýðandi: Þórdís Gísladóttir
Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Ólafur
Egill Egilsson
Leikendur: Unnur Ösp Stefánsdóttir og
Björn Thors
Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir
Lýsing: Kjartan Þórisson
Tónlist: Barði Jóhannsson
Sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins
Mögnuð
brotlending
hjónabands
Að skilja Leikritið fjallar um
ástina í hjónabandi tveggja
einstaklinga og samskipti
þeirra við sambandsslit.
Aldarafmæli dadaismans fagnað með fyrirlestri og nýrri danssýningu
D
ada er hundrað ára, ein öld
frá því að ein áhrifamesta
listhreyfing 20. aldarinnar
spratt upp úr brjálæði fyrri
heimsstyrjaldarinnar, í al
gjörri andstöðu við stríðið, borgara
legt samfélag og gjörvalla rökhyggju
nútímans. Heimurinn var á heljar
þröm og svarið var dada – merk
ingarlaust frumöskur: Dada!
Íslenskir listamenn og stofn
anir hafa lagt sitt af mörkum til að
minnast aldarafmælis hreyfingar
innar, fyrr á árinu hélt hópur dada
áhugafólks gjörningapartí á Gaukn
um, um helgina heldur dr. Benedikt
Hjartarson fyrirlestur um hreyf
inguna í Listasafni Reykjavíkur og
Íslenski dansflokkurinn frumflytur
nýtt dansverk eftir Ingu Huld
Hákonardóttur og Rósu Ómars
dóttur sem unnið er út frá hug
myndum dadaismans. DV heyrði
í bókmenntafræðingnum og
öðrum danshöfundinum
og forvitnaðist um dada
ismann.
Fáránleiki og galsa-
kennt niðurrif
Dada var framúrstefnu
hreyfing sem fæddist í
Zürich árið 1916. Þar sem
Sviss var hlutlaust ríki í heims
styrjöldinni söfnuðust þar friðar
sinnar víðs vegar að úr Evrópu.
Fjölþjóðlegur hópur listamanna úr
ýmsum greinum sem hafði kom
ið sér fyrir í borginni hóf að halda
einhvers konar gjörningakvöld eða
uppákomur undir heitinu Cabaret
Voltaire. Varð það vettvangur fyrir
nýstárlega og framsækna list, gjörn
inga og sviðslistir, upplestur, mani
festóyfirlýsingar, tónlist og hvers
kyns performansa. Búningarnir
voru fáránlegir, ljóðin óskiljanleg
og yfirlýsingarnar herskáar. Smám
saman fæddist nafnið dada, fjöl
þjóðlegt og margrætt orð en kannski
fyrst og fremst bara merkingarlaust
hljóð.
„Það sem einkenndi dada
ismann var gagnrýni á hefð
bundna listsköpun. Þetta
var svolítið galsakennd og
„súbversíf“ listsköpun, leik
ur með þversagnir, fagurfræði
sem byggði á ákveðnum fá
ránleika, niðurrifi á hefðum og
gagnrýni á ríkjandi smekkvísi,“
útskýrir Benedikt Hjart
arson bókmennta
fræðingur.
„Seinna varð
svo gagnrýni á rök
hyggjuna og skyn
semishyggjuna
meira áberandi.
Þetta þarf að skoðast
í samhengi stríðsins
enda, var þetta gagnrýni
á nútímamenninguna og þá
skynsemishyggju sem dadaist
arnir töldu að hefði leitt mann
kynið inn í stríðið,“ segir hann.
„Grunnþátturinn í dadainu
var niðurrifið og áherslan á nýtt
upphaf. Þetta byggði á þeirri
hugmynd að hin vestræna
þjóðfélagsgerð og borgara lega
menning væri komin í þrot og
það þyrfti að byrja upp á nýtt.
Það var engin skýr sýn um hvað
skyldi taka við, engin skýr fram
tíðarsýn, en það voru ákveðin gildi
sem voru lögð til grundvallar og
það fór fram leit að þessu gildum
og þeim þáttum sem hægt væri að
byggja á,“ segir Benedikt og bend
ir á að þetta sjáist meðal annars í
hugmyndum og nálgun dadaista á
tungumálið.
„Tungumálið var álitið vera sjúkt
og sýkt, enda hafði því verið slitið út
í áróðri stríðsins, notað sem verk
færi til að knýja áfram ákveðnar
pólitískar, þjóðfélagslegar og fagur
fræðilegar hugmyndir. Þetta var
tungumál sem ekki var hægt að
vinna með lengur, það var í ein
hverjum skilningi ónýtt. Það sem
þurfti því að gera var að hverfa til
einhvers kjarna tungumálsins, byrja
upp á nýtt. Það var í þessu samhengi
sem þeir fóru að vinna með það
fyrst og fremst út frá hljóðum, útliti
bókstafa og svo framvegis. Þeir fóru
í grunnþætti tungumálsins, leystu
Heimurinn er á heljarþröm, hvað er til ráða? DADA!
„Þetta var svo-
lítið galsa-
kennd og „súbversíf“
listsköpun, leikur
með þversagnir,
fagurfræði sem
byggði á ákveðnum
fáránleika, niðurrifi á
hefðum og gagnrýni
á ríkjandi smekkvísi.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Dada Einn af frumkvöðlum dadaismans Hugo Ball
les upp ljóð á Cabaret Voltaire í Zürich í júní 1916.
Metsölulisti
Eymundsson
2.– 8. nóvember 2016
Allar bækur
1 PetsamoArnaldur Indriðason
2 DrungiRagnar Jónasson
3 Þín eigin hrollvekja Ævar Þór Benediktsson
4 Pabbi prófessor Gunnar Helgason
5 TvísagaÁsdís Halla Bragadóttir
6 SvartalognKristín Marja Baldursdóttir
7 Elsku Drauma mínVigdís Grímsdóttir
8 Máttur matarins Unnur Guðrún Pálsdóttir /
Þórunn Steinsdóttir
9 Harry Potter og bölvun barnsin
J.K. Rowling
10 Ljóð muna rödd Sigurður Pálsson
Arnaldur Indriðason