Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Blaðsíða 10
Helgarblað 25.–28. nóvember 201610 Fréttir
P
íratar hafna algjörlega
samstarfi við Framsóknar-
flokkinn og því eru hug-
myndir um að Katrín
Jakobs dóttir geti haldið
áfram tilraunum til myndunar
fimm flokka stjórnar óraunhæfar.
„Framsóknarflokkurinn er ekki
til umræðu af okkar hálfu,“ segir
Smári McCarthy í samtali við DV.
Katrín vildi ekki, í samtali við DV,
útiloka að Vinstri græn myndu
ræða við Sjálfstæðisflokkinn um
stjórnarmyndun.
Eftir að upp úr slitnaði í viðræð-
um Vinstri grænna, Pírata, Sam-
fylkingarinnar, Bjartrar framtíðar
og Viðreisnar síðastliðið miðviku-
dagskvöld voru uppi hugmyndir
um að Framsóknarflokkurinn gæti
hugsanlega komið í stað Viðreisnar
í stjórnarmyndunarviðræðum. Til
þess hefði í það minnsta tvennt
þurft að koma til, að Björt framtíð
sliti samfloti sínu með Viðreisn, og
að Píratar féllu frá þeirra afstöðu
sinni að vinna ekki með Fram-
sóknarflokknum. Píratar eru hins
vegar ekki tilbúnir til þess.
Viðreisn sögð hafa siglt undir
fölsku flaggi
Píratar halda fast við að samstarf
með Framsókn eða Sjálfstæðis-
flokki séu út úr myndinni. Þá er
mikill urgur í garð Viðreisnar inn-
an raða Pírata. Mat Pírata er að Við-
reisn sem heild hafi ekki komið að
borðinu af fullum heilindum. Hluti
þingmanna Viðreisnar hafi ekki
komið að borðinu af heilum hug
og aldrei haft hug á að ná lendingu
í viðræðunum. Viðlíka raddir heyr-
ast úr röðum Vinstri grænna.
Mat Pírata mun nú vera að fáir
leikir séu í stöðunni sem inni-
haldi Pírata sem þátttakendur í
ríkisstjórn. Þingmenn flokksins
vilja gjarnan halda áfram samfloti
með Vinstri grænum undir forystu
Katrínar Jakobsdóttur og hrósuðu
þeir verkstjórn Katrínar mjög í við-
tölum eftir að upp úr viðræðunum
slitnaði. Hins vegar sjái þeir ekki
fyrir sér með hvaða hætti það geti
orðið.
VG telur tilgangslaust
að halda áfram
Birgitta Jónsdóttir lýsti því yfir í gær,
fimmtudag, að hún hefði áhuga
á að leiða stjórnarmyndunarvið-
ræður sömu fimm flokka og sigldu
í strand síðastliðinn miðvikudag.
Úr herbúðum Vinstri grænna lýstu
menn þeirri skoðun að tilgangs-
laust væri að hefja viðræður aftur
að nýju milli flokkanna fimm, þær
myndu engu frekar skila undir for-
ystu Birgittu en þær hefðu skilað
undir forystu Katrínar.
Katrín átti í gær í samskiptum
við formenn flokkanna með það
fyrir augum að glöggva sig á stöð-
unni. Innan raða Vinstri grænna var
áhugi á að fá Framsóknarflokkinn
að viðræðuborðinu og sömuleiðis
mun Samfylkingin ekki hafa verið
því fráhverf. „ Valkostum fækkaði
fremur en hitt. Ég hef fengið það
staðfest að fimm flokka stjórn með
þátttöku Framsóknarflokksins er
ekki valkostur, bæði af þeirra hálfu
og af hálfu annarra. Fimm flokka
stjórn er því út úr myndinni,“ sagði
Katrín
Útiloka ekki viðræður
við Sjálfstæðisflokk
Katrín á því ekki nema einn leik
í stöðunni, að ræða við Sjálf-
stæðisflokkinn. Innan þingflokks
Vinstri grænna munu vera skiptar
skoðanir um hvort yfirhöfuð sé
gerlegt að hefja slíkt samtal. Hluti
þingflokksins leggst algjörlega
gegn slíkum hugmyndum á með-
an einhver hluti hans vill ekki loka
á viðræður. Yrði farið í þær má
hins vegar fullyrða að Vinstri græn
gengju að borðinu með óbragð í
munni. Hins vegar yrði það aldrei
stjórn með Framsóknarflokknum,
það útiloka Vinstri græn algjörlega.
Katrín ræddi við Bjarna Bene-
diktsson í gær en gaf ekkert upp um
hvað hefði farið þeim á milli.
Er einhver annar valkostur í
stöðunni fyrir Vinstri græn annar
en að ræða við Sjálfstæðisflokkinn
um stjórnarmyndun?
„Það er nokkuð ljóst að svo er
ekki, ef maður kann tölfræði.“
Telur þú þá ástæðu til að láta á
það reyna?
„Ég bara hef ekki tekið neina af-
stöðu til þess. Það liggur fyrir að
við reyndum okkar, þá leið sem við
vildum fara. Það gekk ekki og við
munum fara yfir stöðuna á þing-
flokksfundi í fyrramálið [í dag,
föstudag]. Það er því engin niður-
staða sem liggur fyrir en það er ljóst
að staðan er bara mjög þröng.“
Muntu þá skila stjórnarmynd-
unarumboðinu á morgun [í dag,
föstudag]? „Ég mun fara yfir það
með þingflokknum.“
Spurð hvort þetta svar Katrínar, að
hún hafi ekki þegar ákveðið að skila
umboðinu, þýði ekki einmitt að hún
hafi hug á að hefja viðræður við Sjálf-
stæðisflokkinn vildi hún ekki svara því.
Innan Sjálfstæðisflokksins mun
vera vilji til þess að reyna á nýjan
leik að mynda ríkisstjórn með
Viðreisn og Bjartri framtíð, og þá
gjarnan með Framsóknarflokknum
einnig. Þeirri skoðun lýsti Brynjar
Níelsson meðal annars í samtali
við DV og sagði að hann teldi ekki
meinbugi á því að ná samkomulagi
um þá málaflokka sem helst bæri í
milli í. n
Katrín útilokar ekki viðræður
við Sjálfstæðisflokkinn
n Píratar hafna samstarfi við Framsóknarflokkinn n Fimm flokka stjórn ekki inni í myndinni
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Allt enn óljóst Katrín útilokar ekki viðræður við Sjálfstæðisflokkinn. Mynd SiGtRyGGuR ARi
„Fimm flokka
stjórn er því út úr
myndinni.
Píratar Fulltrúar Pírata telja að Viðreisn hafi ekki komið fram af heilindum. Mynd SiGtRyGGuR ARi
Bjarni Ben Vilji mun vera fyrir því innan
Sjálfstæðisflokksins að láta aftur reyna
á stjórnarmyndun með Bjartri framtíð og
Viðreisn. Mynd SiGtRyGGuR ARi