Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Síða 38
Helgarblað 25.–28. nóvember 201626 Skrýtið Sakamál
„Mér þykir þetta leitt“
n Talinn hafa myrt allt að sex manns n Fékk þrefaldan lífstíðardóm
Þ
að var ekki hátt á Richard
White risið þar sem hann
sat fyrir framan ættingja
fórnar lamba sinna í réttarsal
í Denver í Bandaríkjunum,
mánudaginn 29. nóvember 2004.
„Mér þykir þetta leitt,“ sagði hann
svo vart heyrðist. Fleira sagði hann
ekki þegar hann var dæmdur í tvöfalt
lífstíðarfangelsi fyrir morð á tveimur
konum; Annaletiu Mariu Gonzales,
27 ára, og Victoriu Turpin, 34 ára.
Líkamsleifar kvennanna fundust í
bakgarði heimilis Richards. Auk tvö-
falds lífstíðardóms fékk Richard 144
ára dóm fyrir kynferðislegar árásir
á þrjár konur sem þó sluppu með
skrekkinn.
Rándýr
Saksóknarinn í málinu, Kerri
Lombardi, fór ekki í launkofa með
álit sitt á Richard White. „Hann hefur
skelft ótal aðrar konur,“ sagði hún.
„Richard White er rándýr. Að veiða,
nauðga, kvelja og drepa þessar kon-
ur var sport í hans huga. Konur sem
klukkustundum, dögum saman, sár-
bændu hann að þyrma lífi þeirra.
Hann naut þessa pyntingaleiks sem
hann hafði búið til.“
Richard hrelldi þær konur sem
hann náði inn á heimili sitt við Al-
bion-stræti 2885 í Denver. Hann sagði
þeim af líkunum sem grafin voru
í bakgarðinum og sagði að senni-
lega myndu þær einnig enda þar.
Hann stakk byssuhlaupi upp í munn
kvennanna á meðan hann nauðgaði
þeim. Að lokum, eftir að hafa kvalið
konurnar svo tímunum skipti, kyrkti
Richard þær með snúru eða belti.
Þriðja líkið
„Herra White mun ekki nokkurn tím-
ann framar líta dagsins ljós sem frjáls
maður,“ sagði dómarinn, R. Michael
Mullins, þegar hann kvað upp dóm
yfir Richard.
Með því að semja við ákæru-
valdið tókst Richard að bjarga líf-
tórunni. Hann samþykkti að vísa lög-
reglunni á lík þriðju konunnar, sem
hann hafði grafið í Costilla-sýslu í
Colorado.
Richard hafði, í janúar 2002, tekið
upp þessa konu – hávaxna, „dökka
á hörund“ og blinda á hægra auga –
við strætóstöð í Denver. Hún hafði,
að sögn Richards, nýlega farið í hár-
lagningu, var með fallegar tennur og
ör á öðrum framhandleggnum – og
átti börn.
Richard sagði að honum hafi verið
ætlað að myrða þessa konu því hann
hafði húðflúr af konu sem svipaði til
hennar.
Fleiri morð
Ekki tókst að bera kennsl á þetta
fórnarlamb fyrr en um ári síðar
þegar skrifstofa saksóknara í Denver
lét útbúa skissu af andliti þess. Þá
kom í ljós að konan hafði verið vitni
í máli sem Jon nokkur Priest rann-
sóknarlögreglumaður hafði haft á
sinni könnu.
Um var að ræða Torrey Marie
Foster og var það staðfest með því
að bera saman lífsýni úr líkinu og
lífsýni úr níu ára dóttur Torrey.
En ekki voru öll kurl komin til
grafar enn því Richard játaði að hafa
myrt tvær konur að auki. Þær hefði
hann hitt í Aurora í Colorado, myrt
og fleygt líkum þeirra í á skammt frá
La Junta í Otero-sýslu. Líkamsleifar
þeirra hafa aldrei fundist.
Lengi von á einum
Richard White játaði einnig að hafa
myrt vin sinn og vinnufélaga, Jason
Reichardt, og var það morð reyndar
ástæða þess að hann var gripinn.
Richard var handtekinn í september
2003 vegna morðsins á Jason Reic-
hardt og játaði í kjölfarið á sig hin
morðin, en fyrir morðið á vini sínum
fékk hann enn einn lífstíðardóminn.
Verjandi Richards, Sharlene
Reynolds, sagði skjólstæðing
sinn geðveikan og að hann hefði
svo árum skipti glímt við andleg
veikindi sem ekki hefði verið tekið
á. Enn fremur sagði hún að Richard
væri fórnarlamb „hryllilegrar“ með-
ferðar í æsku – stundum hreinlega
óskaði hann þess að fá dauðadóm.
Richard White varð ekki að þeirri
ósk sinni, samdi enda við ákæru-
valdið og mun dúsa á bak við lás og
slá það sem eftir er ævinnar. n
Torrey Marie Foster Kennsl voru borin á lík hennar um ári eftir að það fannst.
Richard White Mun aldrei framar geta um frjálst höfuð strokið, að sögn dómara. „Að veiða, nauðga,
kvelja og drepa
þessar konur var sport í
hans huga.
Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322
CNC renniverkstæði