Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Blaðsíða 31
Helgarblað 25.–28. nóvember 2016 Kynningarblað - Brot af því besta 9
Gjafabréf í dekur og
vellíðan er góð gjöf
H
úðslípun er afar öflug og
örugg húðmeðferð sem
Abaco Heilsulind á Akur
eyri býður upp á. Með
ferðin er framkvæmd með
Silk Peelhúðslípunartæki. Þetta er
heildræn húðmeðferð þar sem ysta
lag húðarinnar er fjarlægt með notk
un örsmárra kristalla og demanta.
Árangurinn er sléttari, mýkri og þétt
ari húð, auk þess sem áferð húðar
innar verður fallegri. Húðslípun er
meðferð sem hentar fólki á öllum
aldri og er örugg fyrir allar húðgerð
ir. Strax eftir fyrstu meðferð fær húð
in ferskan blæ, verður þéttari, mýkri,
hreinni og unglegri.
Þessi einstaka húðmeðferð lætur
húðina líta betur út og endurheimta
ljóma sinn. Dauðar húðfrumur
eru fjarlægðar, blóðflæði örvað og
vöxtur nýrra fruma og bandvefur
örvast. Meðferðin bætir áferð og
vinnur gegn öldrun húðarinnar.
Eldri húð sem farin er að þynnast
styrkist og þéttist. Meðferðin veitir
örugga hreinsun á yfirborði húðar
innar, dregur úr húðstíflum og opn
ar húðholur dragast saman. Sjáan
legur munur á húðinni er eftir hvert
skipti og verða stöðugar framfarir á
ástandi hennar.
Húðslípun vinnur meðal annars
á eftirtöldum vandamálum:
n Ótímabær öldrun
n Fínar línur og hrukkur
n Ör eftir skurði og bólur
n Hörundslýti og húðþykkildi
n Unglingabólur og óhrein húð
n Exemhúð
n Húðslit
Mælt er með að taka þrjár með
ferðir með u.þ.b. tveggja vikna milli
bili til að ná sem bestum árangri.
Fjöldi meðferða fer þó alltaf eftir á
hvaða vandamáli er verið að vinna.
Eitt skipti frískar verulega upp á
húðina og gefur ljóma og gott útlit.
Fyrir óhreina og bólótta húð er mælt
með að lágmarki 6 meðferðum með
tveggja til þriggja vikna millibili til að
ná sem bestum árangri. Sama á við
um meðferðir við húðsliti.
Eftirmeðferð
Bera skal rakakrem á meðferðar
svæði og nota rakamaska fyrstu dag
ana eftir meðferð. Forðast ber sól og
ljósabekki í a.m.k. þrjá sólarhringa
eftir meðferð. Forðast jafnframt sund
og heita potta í a.m.k. þrjá sólar
hringa. Sleppa skal líkamsrækt sama
dag og meðferð á sér stað. Nota á SPF
30sólarvörn eða sterkari í viku eftir
meðferð.
Um Abaco Heilsulind
Abaco Heilsulind er staðsett að
Hrísalundi 1 á Akureyri. Þetta er
ein best búna heilsulind landsins,
einstakur staður til að slaka á, endur
nærast og njóta lífsins. Abaco býður
viðskiptavinum sínum upp á herða
nudd og kaldsteinanudd ofan í heit
um potti. Steinanuddið er einstakt
og mjög sérstök upplifun: Herðar,
háls, bringa og andlit eru nudduð
með köldum steinum, sem vekur
mikla vellíðan. Þetta hentar fyrir pör
og hópa. Einnig er boðið upp á and
litsmaska í pottinum.
Viðskiptavinir Abaco eru hvattir
til að nýta sér aðgang að baðstofunni
þegar komið er í nudd eða snyrti
meðferðir, en aðgangur er innifalinn
í öllum meðferðum. Vínveitingaleyfi
er á staðnum og gestir geta hresst sig
á víni, bjór eða gosdrykkjum. Í Abaco
Heilsulind er boðið upp á allar
helstu snyrtimeðferðir, eins og litun
og plokkun, hand og fótsnyrtingu,
vaxmeðferðir, Guinotandlitsmeð
ferðir og demantshúðslípun. Abaco
Heilsulind er eina stofan á Akur
eyri sem býður upp á St.Tropez
brúnkumeðferðir. Auk þess eru í
boði lasermeðferðir til háreyðingar
og til að vinna á háræðasliti. Enn
fremur er til staðar frystipenni sem
virkar á húðflipa og vörtur.
Boðið er upp á flestar tegundir af
nuddi, eins og slökunarnudd, heils
unudd, íþróttanudd, ilmolíunudd og
heit og kaldsteinanudd. Einnig er í
boði meðgöngunudd en á stofunni
er sérstakur meðgöngubekkur.
Í Abaco starfa hjúkrunarfræðing
ur, snyrtifræðingar og nuddarar. Í
Abaco er auk þess glæsileg ljósastofa
og eru fjórir Ergolineljósabekkir.
Hægt er að kaupa gjafabréf í Abaco
Heilsulind og eru þau afar vinsæl gjöf.
Þá má geta þess að á staðnum er
til sölu úrval húðsnyrtivara, meðal
annars frá Guinot, Sothys, Alessandro,
St. Tropez og margt fleira. n
Síminn í Abaco Heilsulind er 462-
3200 og netfangið er abaco@abaco.
is. Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni abaco.is