Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Side 24
Helgarblað 25.–28. nóvember 20162 Brot af því besta - Kynningarblað Miðdepill fjölda ástarsagna Héraðsskólinn á Laugarvatni Á stin hefur svo sannarlega feng­ ið að blómstra í gegnum árin í Héraðsskólan­ um á Laugarvatni. Árin 1928–1996 var þar starf­ rækt hótel á sumrin og menntaskóli á veturna og var þar vafalaust til ófárra ástarsambanda stofnað. Okkar ást­ kæri rithöfundur, Hall­ dór Laxness, á svo meðal annars Héraðsskólanum að þakka að hafa kynnst henni Auði sinni þar sem hún vann þar við hótelstörf á sumrin. Því má segja að þetta glæsilega hús, sem hannað var af arkitekti Ís­ lands, Guðjóni Samúelssyni, hafi ósjaldan verið miðdepillinn í fjöl­ mörgum ástarsögum. Vinirnir Sverrir Steinn Sverris­ son og Sveinn Pálsson opnuðu húsið á nýjan leik árið 2013 og reka þar svokallað Boutique Hostel með veitingastað og ráðstefnuhaldi allan ársins hring. Veitingastaðnum er stjórnað af styrkri hönd franska kokksins Christophe Perrin, sem eldar gómsætan mat úr fyrsta flokks íslensku hráefni. Stefnan er að hafa lítinn og einfaldan matseð­ il þar sem hráefnið fær að njóta sín, auk þess bragðast allt svo miklu betur í sveitinni. „Það er alltaf notalegt að kom­ ast úr borginni og heimsækja Bláskógabyggð. Hið fullkomna stefnumót hæfist á klassískum gullhring með stoppi í ísbúðinni í Efstadal og hádegisverði í Frið­ heimum. Eftir það væri dýrlegt að baða sig í laugunum í Fontana Spa. Ævintýragjarnir kjósa kannski frekar að kafa í Silfru á Þingvöllum eða skella sér í snjósleðahasar. En það er alltaf gott að enda góð­ an dag með ljúffengum kvöldverði hér í gömlu skólastofunum í Héró, með gullfallegt útsýnið yfir vatnið og Heklu. Einhvers staðar verður maður svo að sofa og í Héraðs­ skólanum bjóðum við gestum upp á virkilega notaleg herbergi með glæsilegu útsýni,“ segir Sverrir. Í réttum skilyrðum dansa norður­ ljósin svo rómantískan polka fyrir áhorfendur eins og þeim einum er lagið. Nánari upplýsingar um bók­ anir og fleira má nálgast á vefsíðu hostelsins, heradsskolinn.is. n Héraðsskólinn er einnig áber- andi á öllum samfélagsmiðlum svo sem Facebook, Instagram, Twitter, Pinterest, Youtube og Google+.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.