Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Blaðsíða 48
Helgarblað 25.–28. nóvember 201636 Menning
Í
mars verða öll þrjú leiksvið og
anddyri Borgarleikhússins nýtt
samtímis í risaviðburðinn og
listasamkomuna Fórn, þar sem
boðið verður upp á heimsfræga
listamenn, dans, leikhús, mynd-
bönd, innsetningar og sölumarkað.
Aldrei áður hefur allt leikhúsið verið
notað undir einn og sama listvið-
burðinn.
Vinnsla verksins hefur tekið
fjögur ár og nokkrar opinberar upp-
ákomur verið haldnar í undirbún-
ingsferlinu. Sú næsta, Hugleiðing
um menningarlega fátækt í umsjón
Ernu Ómarsdóttur og Valdimars
Jóhannssonar, sem eru heilarnir á
bak við Fórn, fer fram í Tjarnarbíói í
dag, föstudaginn 25. nóvember. Við-
burðurinn er hluti af nóvemberhrinu
Reykjavík Dance Festival sem hefur
undirtitilinn „Unglingurinn.“
Manndómsvígsla, gifting,
sálumessa
Fórn átti upphaflega að fara fram
í byrjun Listahátíðar í Reykjavík árið
2016, en var frestað um tæpt ár vegna
ófullnægðs listræns metnaðar þátt-
takendanna. „Þetta er stórt og viða-
mikið verkefni og við sáum hreinlega
ekki fram á að geta skilað því af okk-
ur eins góðu og við vildum. Við höfð-
um unnið að þessu of lengi til að láta
þetta bara hálfpartinn sleppa og því
ákváðum við að fresta þessu,“ segir
Valdimar. Meðal þeirra sem koma að
verkefninu auk Ernu og Valdimars
eru dansarar Íslenska dansflokksins,
Ragnar Kjartansson, Margrét Bjarna-
dóttir, Gabríela Friðriksdóttir,
Matthew Barney og Bryce Dessner
úr hljómsveitinni The National.
Þrjú leiksvið Borgarleikhússins
verða samtímis tekin undir sýningar
sem vinna með tilteknar athafnir eða
helgisiði sem hafa þróast í mann-
legum samfélögum til að marka hin
ýmsu tímamót. Þetta eru seremóníur
og vígslur sem manneskjur ganga í
gegnum til að umbreytast og öðlast
nýtt hlutverk í mannlegu sam félagi,
breytast úr börnum í fullorðnar
manneskjur, einhleypum í kvæntar,
úr veraldlegum í andlegar.
„Þetta verður í raun eins og lítið
festival með fjórum verkum. Við
erum að vinna með þrjár helstu
helgiathafnir mannkyns, mann-
dómsvígsluna, giftinguna og sálu-
messuna. Í forsalnum setjum við svo
upp markað, sem verður einhvers
staðar á milli Sjávarútvegssýningar-
innar og útimarkaðar í Marrakech.
Þar verða básar sem munu bjóða
upp á mismunandi lífsskoðanir,“
segir Valdimar.
List sem trúarbrögð
Erna og Valdimar segjast oft hafa
notað trúarbrögð og trúarathafnir
sem innblástur í listsköpunina, en
smám saman hafi þau farið að gera
sér grein fyrir að það hafi verið sköp-
unarkrafturinn sjálfur sem var þeirra
trúarskoðun.
„Einu sinni vorum við að spá í að
gifta okkur og þá fórum við að skoða
hin og þessi trúarbrögð, en okkur
fannst við ekki passa neins staðar
inn. Þegar við fórum að pæla í þessu
komumst við að því að við trúum
eiginlega bara á það sem við gerum,
sköpunargleðina og sköpunarkraft-
inn. Það er það sem við lifum fyrir.
Okkur fannst áhugavert að skapa
nýjar helgiathafnir út frá þessari
hreinu hugmynd. Ef við ætluðum
að gifta okkur þá gætum við hannað
okkar eigin „ritjúala“,“ segir Valdimar.
„Þetta eru hugleiðingar um
hátíðir og helgisiði í samtímanum,
hvaða merkingu þeir hafi og hvort
þeir séu nauðsynlegir. Mér sýnist að
þótt þjóðin sé ekkert sérstaklega trú-
uð í dag þá höfum við samt þörf fyrir
helgisiði og hátíðir, við sjáum þetta
til dæmis með jólin. Þetta er eitthvað
sem heldur fólki saman og okkur
finnst mikilvægur hluti af lífinu. En
það eru líka alltaf að verða til nýjar
hátíðir, Reykjavík Dance Festival er
til dæmis á margan hátt eins og jólin
fyrir mig og fólk með áhuga á sviðs-
listum og tilraunaskap,“ segir Erna.
Yfirleitt er talið að listsköpun
hafi fyrst komið fram hjá fólki sem
hluti af trúariðkun, en síðar hafa
slíkar athafnir fjarlægst andlegu
tenginguna og orðið að sjálfstæðu
sviði í mannlegu samfélagi. Hins
vegar heyrast reglulega vangaveltur
um hinn andlega kjarna í listinni og
slíkar hugmyndir enduróma í orðum
Ernu og Valdimars.
„Eftir góða sýningu eða tónleika
líður manni á svipaðan hátt og
fólki sem kemur út af góðri trúar-
samkomu,“ segir Valdimar og Erna
grípur orðin á lofti: „Maður er frels-
aður í smá tíma. Að vera í góðum
hóp að skapa eitthvað í sameiningu
getur gert mann svo hamingjusam-
an. Það er auðvitað alltaf eitthvert
vesen. Ef það er góður hópur og góð
orka þá heldur það manni gangandi.
Þetta er svolítið sama hóporka
og þegar ég mætti einhvern tímann
á samkomu hjá eþíópískum heilara
í Austurbæjarbíói. Þegar ég gekk
inn var það bara eins og að ganga á
vegg, orkan var svo víruð, fólk öskr-
andi og grátandi. Þetta var allt svo
vel gert, þegar hann lagði hönd á
mann þá hækkaði tónlistin og ljósin
breyttust. Þetta var fullkomið leikhús
en með bestu áhorfendur í heimi –
sama hvað hann gerði, þeir dýrkuðu
hann. Svona tilfinningu fær maður á
sviði, maður er í samfélagi með fólki,
í sama heimi, í samstillingu.“
Þessi lífsskoðun listafólksins
verður í boði á einum básnum í and-
dyri leikhússins en þar mun fólk
reyna að selja öðrum hugmyndirn-
ar sem það lifir fyrir. Þannig verður
boðið upp á hinar ólíkustu lífsskoð-
anir, andlegar og efnislegar, hefð-
bundnar og óhefðbundnar, kerfis-
bundnar og kaotískar.
Unglingar án líkama
Hugleiðingar um menningarlega
fátækt, sem fara fram á föstudag,
kalla þau ekki „sýningu“ heldur
frekar menningarlega uppákomu
eða viðburð. „Þetta verður bara
samansafn af atriðum og eitthvert
gott blaður inni á milli, næstum því
eins og spjallþátturinn hans Gísla
Marteins á föstudagskvöldum. Það
verður formið! Við héldum annan
svona viðburð á Kjarvalsstöðum í
ágúst. Þetta er bara hrátt efni sem við
erum að vinna í og finnum eitthvert
form fyrir, þetta er ekki sýningin sjálf,
en mögulega birtast einhverjir þættir
þarna sem verða í Fórn,“ segir Erna.
Í þetta skiptið verða Friðgeir
Einarsson sviðslistamaður og Sig-
tryggur Berg myndlistarmaður með
þeim í þættinum auk dansara úr Ís-
lenska dansflokknum, þeim Höllu
Þórðardóttur, Hannesi Þór Egilssyni
og Viktori Leifssyni nema.
Þau segja að það hafi verið sér-
staklega spennandi að tengja efni
Fórnar við þema nóvemberhrinu
Reykjavík Dance Festival sem er
„unglingurinn“. Á unglingsárunum
ganga einstaklingar jú í gegnum
manndómsvígslu og eiga að komast
í fullorðinna manna tölu, en ung-
lingsárin eru einnig áhugaverð þar
sem einstaklingar eru sérstaklega
hrifnæmir og má til dæmis nefna að
upplifun þeirra af tónlist er oft og tíð-
um nánast trúarleg.
Hins vegar óttast þau að í tækni-
og snjallsímavæddu samfélagi
samtímans geti fólk auðveldlega
gleymt líkamanum og mikilvægi
hans og sogast inn í innihaldsrýran
stafrænan veruleika: „Einn drifkraft-
urinn á bak við það sem við erum að
gera er áherslan á að vera líkamleg-
ur, finna fyrir og gera eitthvað með
líkamann – dansa, syngja, öskra. Við
megum ekki gleyma líkamanum.
Leikhúsið er mikilvægur staður í dag
því þar kemur fólk saman í eigin lík-
ama og upplifir eitthvað í samein-
ingu,“ segir Erna. n
„ Í forsalnum
setjum við
svo upp markað,
sem verður einhvers
staðar á milli Sjávar
útvegssýningarinnar og
útimarkaðar í Marra
kech. Þar verða básar sem
munu bjóða upp á mis
munandi lífsskoðanir.
Í átt að fórninni Valdimar Jóhannsson
og Erna Ómarsdóttir standa fyrir uppá-
komu sem er hluti af undirbúningsferli
fyrir risalistviðburðinn Fórn sem tekur yfir
Borgarleikhúsið í mars. Mynd SigtryggUr Ari
Sálumessa Úr verki eftir Gabríelu Friðriks-
dóttur en hún er á meðal þeirra sem taka þátt
í Fórn í mars Mynd HrAfnHiLdUr HóLMgeirSdóttir
Kristján guðjónsson
kristjan@dv.is
Dans, dans
Það er nóg um að vera í
íslensku danslífi þessa dagana.
n Síðasta sýning Íslenska dansflokksins
á Da Da Dans fer fram 27. nóvember.
n Dansflokkurinn heldur einnig
aukasýningar á barnasýningunni Óður
og Flexa halda afmæli í lok nóvember og
byrjun desember.
n GRRRRLS eftir Ásrúnu Magnúsdóttur
er sýnt 25. og 26. nóvember sem hluti af
Reykjavík Dance Festival.
n Steinunn Ketilsdóttir sýnir Oversta-
tement/Oversteinunn: Expressions of
Expectations 25. og 26. nóvember.
n Katrín Gunnarsdóttir sýnir Shades of
History þann 26. nóvember.
Nánari upplýsingar um sýningarnar má
finna á vefsíðu Íslenska dansflokksins
(www.id.is) og Reykjavík Dance Festival
(www.reykjavikdancefestival.com/).
Undirbúa
stærsta
listviðburð
í sögu
Borgar-
leikhússins
n Erna og Valdimar vinna að Fórn n Uppákoma á
nóvemberútgáfu RDF er liður í undirbúningsferlinu