Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Blaðsíða 56
Helgarblað 25.–28. nóvember 2016
93. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Vatnagörðum 24-26 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is
Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985 • Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535
Honda HR-V
kostar frá kr. 3.840.000
MEÐ SJÁLFSKIPTINGU
Öruggur, fullkomið skipulag, nákvæmur frágangur
og betri í alla staði. Honda HR-V er ekki bara fimm
stjörnu bíll hvað varðar öryggi, í HR-V á hver hlutur
sinn stað og hlutverk. Við hönnuðum nýjan Honda
HR-V með þetta að leiðarljósi. Útkoman er fallegur
borgarjeppi, með frábæra eiginleika innan sem utan.
Nýr Honda HR-V, fullkominn fyrir þig.
ALLT Á SÍNUM
FULLKOMNA STAÐ
Opið laugardaga milli kl. 12:00 og 16:00
Það hengir
enginn rakara
fyrir smið!
Sakamál og
tedrykkja
n Þingkonan fyrrverandi Katrín
Júlíusdóttir segir það fljótt geta
komist upp í vana að drekka te og
horfa á sakamálasjónvarpsstöðina
Investigation Discovery á daginn
þegar börn hennar eru farin í
skóla. Þetta viðurkennir hún á
Twitter-síðu sinni og bendir þar
á að hún eigi eftir eina viku af fríi.
Katrín hætti á þingi fyrir síðustu
alþingiskosningar í lok október og
byrjar fljótlega í nýju starfi fram-
kvæmdastjóra Samtaka fjármála-
fyrirtækja. Ekki
kom fram
í Twitter-
færslunni
hvort hún
taki teboll-
ann með í
vinnuna.
Björt skálaði
í Leifsstöð
n Björt Ólafsdóttir, þingkona
Bjartrar framtíðar, skellti sér í
skemmtiferð til New York- borgar
á fimmtudag eða á sama tíma og
upp úr stjórnarmyndunarvið-
ræður hennar flokks, Viðreisnar,
Pírata, Samfylkingar og Vinstri
grænna voru að slitna. Þingkon-
an fór með stórum vinkvenna-
hópi og á Facebook mátti sjá þær
skála í bjór og kampavíni í Leifs-
stöð. Slapp hún því við hasarinn
á Alþingi en hún er einn
af aðeins tveimur
þingmönnum
Bjartrar fram-
tíðar sem
eru með
þing-
reynslu.
Leggur skærunum eftir hálfa öld á Klapparstíg
n Sigurpáll setur rekstur og húsnæði Rakarastofunnar Klapparstíg á sölu n Vonar að einhver taki við keflinu
É
g mun sakna viðskiptavinanna
og félagsskaparins en þetta mun
allt lifa. Bæði einstaklingarnir
og ýmis skemmtileg atvik sem
komu upp á þessum tíma,“ segir
hárskerameistarinn Sigurpáll Gríms-
son á Rakarastofunni Klapparstíg.
Sigurpáll og stofan standa nú á tíma-
mótum þar sem hann hyggst setjast
í helgan stein næsta vor og hefur sett
stofuna og húsnæðið á sölu.
Þegar Sigurpáll gengur frá rak-
arastólnum í vor verða 50 ár síðan
hann tók við rekstri Rakarastofunnar
Klappar stíg. Það var árið 1967. Þá var
stofan á öðrum stað á Klapparstíg en
hún hafði verið stofnuð árið 1918 og
er að sögn Sigurpáls eitt elsta fyrirtæki
landsins. Ef enginn kaupir rekstur-
inn og húsnæðið og heldur áfram að
skerða hár á þessum stað gæti því farið
svo að ásjóna Klapparstígs síðustu ára-
tuga breytist verulega og rakarastofan
leggist af á 99 ára afmæli sínu. Sigur-
páll er þó vongóður um að einhver
taki við keflinu og fylli öldina og rúm-
lega það.
„Við skulum bara vona að það ger-
ist ekki þetta leggist. Vonandi tekur
einhver við keflinu.“
Sigurpáll, sem orðinn er 71 árs,
segir að hann sé kominn á tíma og
þetta sé komið gott að sinni. Hann seg-
ir að hann eigi erfitt með að setja sig í
þau spor sem hann er í, að vera að láta
af störfum eftir að hafa klippt hár og
rakað skegg í hálfa öld.
„Þetta verður mikil breyting. En
þegar maður er búinn að standa vakt-
ina í 50 ár og vel það þá er maður bú-
inn að skila sínu til þjóðfélagsins, ef
svo má segja. Reka fyrirtæki og skaffa
vinnu, þetta hefur verið mjög gott.“
Í dag starfa sjö manns á stofunni
en þegar mest var störfuðu þar ríflega
30 að sögn Sigurpáls. „Líklega helm-
ingur voru nemendur sem komu ofan
úr skóla þannig að við tókum hálfan
bekkinn og mikill fjöldi sem útskrif-
aðist hjá okkur á þessu tímabili. Fjórði
hver fór og setti upp stofu, bæði úti á
landi og hérna, þannig að þetta hefur
smitað út frá sér.“
Alltaf hefur Sigurpáll átt sína
fastakúnna og hann hefur mátt tileinka
sér og aðlagast ótal tískustraumum og
stefnum síðastliðin 50 ár. Rakarastofur
verða oft eins og félagsmiðstöðvar þar
sem fólk kemur saman, ræðir málin og
vinabönd verða til. Þegar hann gengur
sáttur frá stólnum
eftir hálfa öld á
Klapparstígnum
segir Sigurpáll að
hann muni taka
minningarnar og
vinskapinn með
sér. n
Kveður af Klapparstíg Sigurpáll Gríms-
son hefur ákveðið að setjast í helgan stein
næsta vor og vonast til að einhver góður
aðili taki við keflinu, kaupi rekstur stofunnar
og húsnæði og haldi áfram þar sem hann
hefur staðið vaktina í hálfa öld.