Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Blaðsíða 42
Helgarblað 25.–28. nóvember 201630 Heilsa
K O L R E S T A U R A N T · S K Ó L A V Ö R Ð U S T Í G U R 4 0 · S Í M I 5 1 7 7 4 7 4 · K O L R E S T A U R A N T . I S
JÓLASTEMNINGIN
HEFST 23. NÓV
…og matseðillinn fer í léttan jólabúning
VILLIBRÁÐARSÚPA,
TVÍREYKT HANGIKJÖT,
TÚNFISKUR,
DJÚPSTEIKT ANDAR-CONFIT,
GRAFIÐ HREINDÝR,
HANGIREYKTUR LAX,
KRÓNHJÖRTUR OG PURUSTEIK eða KOLAÐUR LAX,
MÖNDLUKAKA
Verð 8.990 kr. á mann
Borðapantanir í síma 517 7474 eða kolrestaurant.is
KVÖLD
JÓLAMATSEÐILL
Asperger-heilkenni:
Einkenni, greining og orsakir
Yfirleitt er talað um sex megineinkenni Asperger-heilkennis
T
alað er um heilkenni
þegar ákveðið samansafn
einkenna er til staðar hjá
einstaklingi. Asperger-
heilkenni er gagntæk
truflun á þroska (PDD), sem
flokkast með einhverfu. Megin-
einkenni þessarar truflunar koma
í ljós snemma í bernsku og hald-
ast síðan óbreytt, þótt aðlögun
og stig raunverulegrar fötlun-
ar séu breytileg. Truflunin grein-
ist sjaldnast fyrr en við þriggja ára
aldur eða síðar og virðast börnin
þroskast eðlilega sem ungbörn.
Þau eru gjarnan talin meðfærileg
og sjálfum sér nóg. Þegar betur er
að gáð er þó ýmislegt sem bendir
snemma til þess að eitthvað sé að,
t.d. hjala þau lítið, rétta ekki fram
hendur til að láta taka sig upp og
virðist oft standa á sama þótt for-
eldrar þeirra séu ekki nálægir.
Einkennin eru mörg hin sömu
og í einhverfu en taka til færri
hegðunarþátta og eru sjald-
an eins sterk. Ólíkt flestum ein-
hverfum hafa einstaklingar með
Asperger-heilkenni í flestum til-
fellum ekki alvarlega skertan mál-
og vitsmunaþroska. Talið er að
allt að 5–7 af hverjum 1.000 séu
með Asperger-heilkenni og að;
það sé 5–10 sinnum algengara hjá
drengjum en stúlkum. n
„Einstaklingur með Asperger kann að upplifa
ákveðna erfiðleika í að skilja mælt mál, eink-
um þegar það felur í sér háð, glettni eða aðra óhlut-
stæða merkingu.
1 Skortur á hæfni til gagnkvæmra, félagslegra samskipta Þetta er
höfuðeinkenni Asperger-heilkennis.
Einstaklingana virðist skorta það sem
kalla mætti félagslegt innsæi. Þeir eiga
erfitt með að skilja samskipti sem ekki
felast í orðum heldur svipbrigðum,
augnaráði, bendingum og líkamsstöðu.
Það vefst einnig fyrir þeim að setja sig í
spor annarra og að gefa öðrum hlutdeild í
eigin tilfinningum. Þeim gengur illa að
eignast vini og sérstaða þeirra getur m.a.
valdið því að þeir verði frekar en aðrir fyrir
stríðni, einelti og öðru neikvæðu viðmóti.
2 Sérkennileg áhugamál og áráttukennd hegðun Þetta er annað
megineinkenni Asperger-heilkennis.
Algengast er að fá yfirþyrmandi
þráhyggjukenndan áhuga á þröngt
afmörkuðu sviði. Áhugamálin eru oft
óvenjuleg og illa til þess fallin að deila
með öðrum. Áhugamálið getur breyst á
nokkurra mánaða eða ára fresti, en eðli
þess er hið sama og það verður gjarnan
yfirdrifið. Dæmi um áhugamál eru
risaeðlur, strætisvagnaáætlanir og
flugvélategundir. Oft er um að ræða þörf
fyrir að strjúka vissa fleti með höndum og
fótum eða að notaðar eru síendurteknar
hreyfingar s.s. að hreyfa stöðugt höfuð,
ræskja sig eða láta braka í hnúum.
3 Tilbreytingarlaus og oft klifandi talandi Þessi talandi snýst gjarnan
um áhugasviðin. Barnið vill oft þröngva
séráhugamálinu upp á aðra og að
umhverfið snúist um hið sérstaka
áhugamál eða ávana.
4 Málfar er sérkennilegt Málþroski er ekki undir meðallagi en málið er
sérkennilegt. Það er oft gallalaust á
yfirborðinu en formlegt. Málhrynjandi er
afbrigðilegur og röddin tilbreytingarlaus,
hvell og þreytandi. Almennt kemur
málþroskinn seint, en þegar börn byrja að
tala við 2–4 ára aldur, kemur hann oft
mjög hratt. Á unga aldri er bergmálstal
algengt, þar sem börnin endurtaka
síðustu orðin í setningum og hafa jafnvel
eftir heilu setningarnar án þess að skilja
merkingu þeirra. Þau eiga oft mjög erfitt
með að skilja óhlutbundið og myndrænt
mál og misskilja ýmis orðatiltæki og taka
þau bókstaflega.
5 Líkamstjáningu er ábótavant Þessir einstaklingar sýna tilbreytingarlaus
svipbrigði, t.d. að stara, brosa stöðugt og
sýna litlar handa- eða líkamshreyfingar
máli sínu til stuðnings. Takmarkað
látbragð er notað á tilbreytingarlausan
máta.
6 Klunnalegar hreyfingar með óvenjulegu göngulagi Algengt er að
fólk með Asperger-heilkenni sé klunnalegt
í hreyfingum þótt það sé ekki föst regla.
Börnum veitist erfitt að læra hermileiki og
íþróttir, standa gjarnan til hliðar við
barnahópinn og horfa á án þess að taka
þátt í félagsskapnum. Göngulag er oft og
tíðum óvenjulegt. Í nýlega út kominni
skýrslu um könnun á 23 börnum með
Asperger-heilkenni og jafnmörgum með
einhverf einkenni kom í ljós að 18 af
þessum 23 börnum með Asperger-heil-
kenni höfðu lélegar fínhreyfingar en aðeins
5 af 23 einhverfum börnum.
Gagntækar þroskatruflanir (PDD, per-
vasive developmental disorders) birtast
yfirleitt á fyrstu æviárunum. Þótt það
ástand tengist oft seinþroska einstak-
lingum, greinist það stundum einnig hjá
þeim, sem eru með eðlilega greind. Jafnvel
þegar þetta einkenni tengist seinþroska,
er þroska- og hegðunarferlið, sem því
er samfara, greinilegt. Ýmis sameigin-
leg einkenni eru fyrir hendi, einkum
vanhæfni í félagslegum samskiptum,
tjáskiptum, áhugasviðum og athöfnum.
Það sem á milli skilur, felst einkum í því,
í hversu ríkum mæli þessi vanhæfni er
til staðar. T.d. að á meðan einhverfur
einstaklingur lærir seint eða alls ekki að
tala, sýnir einstaklingur með Asperger
ekki „klínískt mælanlegan seinþroska“ í
þeim efnum. Einstaklingur með Asperger
kann hins vegar að upplifa ákveðna
erfiðleika í að skilja mælt mál, einkum
þegar það felur í sér háð, glettni eða
aðrar óhlutstæðar merkingar. Einhverfa
og Asperger eru þekktustu dæmin um
slíkar þroskatruflanir og mynda, ásamt
öðrum svipuðum þroskaágöllum, flokk
sem ber heitið gagntækar þroskatruflanir
(PDD). Samkvæmt ICD-10 (International
Classification of Diseases) staðli eru einnig
innan þess flokks:
n Barnaeinhverfa (Childhood
Disintegrative Disorder).
n Ódæmigerð einhverfa.
n Rett-heilkenni (Rett’s Disorder).
n Aðrar upplausnartruflanir sem koma
fram í bernsku.
n Ofvirkniástand tengt þroskahömlun og
stegldum hreyfingum.
n Allar þessar þroskatruflanir hafa ein-
hver séreinkenni en sameiginleg einkenni
eru það sterk að þær eru flokkaðar saman.
Gagntækar þroskatruflanir
Sex megineinkenni
Asperger-heilkennis: