Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Síða 40
Helgarblað 25.–28. nóvember 201628 Sport
Áfengi og dóp eftir
misnotkun þjÁlfara
Knattspyrnumenn stíga fram og lýsa afleiðingum kynferðislegrar misnotkunar af hálfu þjálfara sinna
H
ann sagðist ætla að drepa
móður mína, föður minn
og tvo bræður ef ég segði
eitt orð um þetta,“ segir
Paul Stewart, fyrrverandi
landsliðsmaður Englands í fótbolta.
Paul er einn nokkurra fyrrverandi
knattspyrnumanna sem undan-
farna daga hafa stigið fram og lýst
því hvernig þeir voru misnotaðir af
þjálfurum sínum í barnæsku.
Alræmdur barnaníðingur
Fyrstur til að stíga fram var Andy
Woodward sem í dag er 43 ára. Wood-
ward þótti afar efnilegur á sínum tíma
en hann var aðeins ellefu ára þegar
þáverandi þjálfari hans hjá Crewe,
Barry Bennell, misnotaði hann. Barry
þessi var dæmdur í níu ára fangelsi
árið 1998 fyrir að misnota drengi á
aldrinum 9 til 15 ára. Andy var einn
þeirra. Í viðtali við breska blaðið The
Guardian í síðustu viku sagðist hann
telja að frásögn hans væri aðeins
toppurinn á ísjakanum; fórnarlömb-
in væru að líkindum miklu fleiri.
Gerði sér upp meiðsli
Woodward lagði skóna á hilluna að-
eins 29 ára gamall, eftir að hafa leik-
ið með liðum á borð við Sheffield
United, Bury og Halifax í neðri deild-
um Englands. Woodward sagði sjálf-
ur að hann hefði hætt í fótbolta því
hann þjáðist af kvíða og þunglyndi
sem hann reki til misnotkunarinnar.
Rifjaði hann upp að eitt sinn hafi hann
gert sér upp meiðsli til að fá skiptingu
í miðjum leik því hann fékk skyndilegt
kvíðakast. Eftir að hann hætti í fótbolta
hefur hann glímt við sjálfsvígshugs-
anir og sektarkennd, en hann neitar
að þjást lengur. „Hversu margir eru
þarna úti í sömu sporum? Ég er að tala
um hundruð börn sem Barry Bennell
handvaldi fyrir fjölmörg fótboltalið.
Þetta eru einstaklingar sem, mögu-
lega, lifa enn í skelfilegum ótta.“
Einnig misnotaður af Bennell
Eftir að Woodward rauf þögnina hafa
fleiri stigið fram og sagt svipaða sögu.
Steve Walters ólst einnig upp í her-
búðum Crewe og þar kynntist hann
Barry Bennell. Walters þótti, eins og
Woodward, efnilegur knattspyrnu-
maður og árið 1988 varð hann yngsti
leikmaðurinn til að spila leik fyrir að-
allið félagsins, rétt rúmlega sextán
ára, og stendur met hans enn.
Hann hefur aldrei áður tjáð sig
opin berlega um reynslu sína af Benn-
ell. „Í öll þessi ár hef ég burðast með
þetta leyndarmál. En nú er kominn
tími til að segja frá,“ sagði Walters við
The Guardian í vikunni. Misnotkunin
hófst árið 1984, þegar Walters var tólf
ára, en þá hafði hann unnið keppni
þar sem verðlaunin voru að fá að æfa
með drengjaliði Manchester United.
Bennell, sem þá var nýkominn til
Crewe, var á hliðarlínunni og hreifst
af hæfileikum Walters og fór svo að
hann bauð honum að koma til Crewe
og æfa með liðinu. „Mér fannst hann
frábær þjálfari og hann hafði gott lag
á að láta manni líða eins og maður
væri sérstakur. Hann lofaði mér að
hann myndi gera mig að stórkostleg-
um leikmanni,“ sagði hann en í kjöl-
farið hófst misnotkunin.
Dofinn tilfinningalega
Þriðji knattspyrnumaðurinn sem
steig fram á dögunum er fyrrnefndur
Paul Stewart sem á sínum tíma lék
þrjá landsleiki fyrir England auk þess
að leika með Liverpool og Totten-
ham. Ekki kemur fram í umfjöllun
Mirror hvaða þjálfari það var sem
misnotaði hann en Paul, sem í dag er
52 ára, segir að þetta hafi gerst þegar
hann var 11 til 15 ára. Paul segir að
í 40 ár hafi hann þagað yfir þessu
leyndarmáli og ekki sagt nokkrum
manni frá, ekki einu sinni sínum nán-
ustu. Hann vonast þó til þess að frá-
sögn hans verði til þess að aðrir stígi
fram og opni sig.
Stewart segir að umræddur
þjálfari hafi vingast við foreldra hans
og fundið ýmsar afsakanir til að taka
hann afsíðis þar sem misnotkunin
fór fram, ýmist í bíl þjálfarans eða á
heimili hans. Paul sagði við Mirror
að afleiðingarnar hefðu verið skelfi-
legar fyrir hann og leitaði hann á
náðir Bakkusar og jafnvel fíkniefna
á fullorðinsárum sínum. Og enn
þann dag í dag glímir Paul við af-
leiðingarnar. Hann kveðst ekki get-
að faðmað eiginkonu sína eða börn
sín og eigi erfitt með að segjast elska
þau. Hann sé í raun dofinn tilfinn-
ingalega. „Ég verð afi fljótlega og vil
breytast og geta sýnt væntumþykju.
Það er ein versta afleiðingin, að hafa
ekki getað hleypt neinum nálægt
mér.“
Miðað við þann fjölda sem hef-
ur stigið fram að undanförnu þyk-
ir líklegt að fleiri munu stíga fram
og segja sína sögu á næstunni.
Enska knattspyrnusambandið hef-
ur brugðist við og komið upp þjón-
ustugátt sem knattspyrnumenn geta
leitað til. „Ég er sannfærður um að
það eru margir þarna úti sem hafa
þjáðst í þögn. Ég vil að þeir viti að
þeir eru ekki einir og hafa ekkert til
að skammast sín fyrir. Sökin er ekki
þeirra,“ sagði Stewart. n
Alræmdur
níðingur Barry
Bennell var
dæmdur í níu ára
fangelsi árið 1998
fyrir að misnota
fjölda drengja.
Misnotkun Paul Stewart lék á sínum tíma
þrjá landsleiki fyrir England. Hann opnaði
sig í viðtali við Mirror.
Andy Wood-
ward Steig fyrstur
fram og lýsti
misnotkun í viðtali
við Guardian.
Með frásögn hans
hefur ákveðin
flóðgátt opnast og
ljóst að fleiri mál
eiga að líkindum
eftir að skjóta upp
kollinum.
Retor Fræðsla
Íslenskukennsla fyrir innflytjendur
Vorönn 2017
hefst 9. janúar.
Skráning hafin
á retor.is eða í
síma 519 4800.
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is