Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Blaðsíða 12
Helgarblað 25.–28. nóvember 201612 Fréttir
Skipum Havila lagt og
sjómönnum sagt upp
n Reyna að forða norska skipafélaginu frá þroti n Þurfa samþykki Arion og Íslandsbanka
Þ
remur olíuþjónustuskipum
norska skipafélagsins
Havila Shipping ASA var
lagt á þriðjudag og 70
starfsmönnum sagt upp
störfum. Eigendur fyrirtækisins
vinna nú að sinni þriðju tillögu að
fjárhagslegri endurskipulagningu
í von um að óánægðir kröfuhafar
samþykki hana og fyrirtækinu verði
forðað frá gjaldþroti. Arion banki
og Íslandsbanki þyrftu að sam
þykkja nýja tillögu en þeir lánuðu
skipa félaginu jafnvirði 5,7 milljarða
króna árin 2013 og 2014.
Höfnuðu með 71%
Hópur óveðtryggðra skuldabréfa
eigenda Havila hafnaði tillögu fyrir
tækisins um fjárhagslega endur
skipulagningu þann 11. nóvember
síðastliðinn líkt og DV greindi frá.
Stjórnendur fyrirtækisins sögðu
þá gjaldþrot blasa við en þeir
höfðu tveimur dögum áður, sigri
hrósandi, sent tilkynningu til norsku
kauphallarinnar (Oslo Børs) um
samkomulag við lánveitendur og
stærsta hluthafa fyrirtækisins. Þess
hafði þá verið beðið síðan í febrúar
þegar óveðtryggðir skuldabréfa
eigendur félagsins höfnuðu fyrri
tillögu um endurskipulagningu.
Samningurinn í byrjun nóvember
átti að tryggja áframhaldandi rekstur
skipaflota Havila, sem telur 27 fley,
og sigla félaginu út úr þeim ólgusjó
sem skapaðist þegar olíuverð fór að
hrynja seinni hluta árs 2014. Ósáttu
skuldabréfaeigendurnir lögðu aftur
á móti fram sína eigin áætlun um að
þeir breyti kröfum sínum í hlutafé og
eignist meirihluta í skipafélaginu.
Þeir höfnuðu svo formlega tillögu
Havila á miðvikudag með 71 pró
senti atkvæða.
Arion banki studdi tillögu Havila
eins og kom fram í frétt DV þann 15.
nóvember. Haraldur Guðni Eiðsson,
upplýsingafulltrúi bankans, sagði
hana tryggja Arion kauprétt á hlutafé
skipafélagsins og 15 prósenta endur
heimtu af láni hans til Havila sum
arið 2014 sem nam 300 milljónum
norskra króna eða fjórum milljörð
um króna. Íslandsbanki vildi ekki
svara spurningum blaðsins en fyr
irtækið lánaði Havila jafnvirði 1,7
milljarða króna í árslok 2013. Bank
arnir vildu í janúar síðastliðnum
ekki svara DV því hvort farið hefði
verið fram á að floti eða aðrar eignir
norska skipafélagsins yrðu veðsett
ar sem trygging fyrir endurgreiðsl
um. Havila hefur ekki greitt vexti
né afborganir af höfuðstól lána síð
an vinna að fjárhagslegri endur
skipulagningu þess hófst í fyrra.
Mannar skip Fáfnis
Havila tilkynnti á miðvikudag að skip
um þess Borg, Fortune og Mercury
hefði verið lagt og 70 starfsmönnum
verið sagt upp. Norska skipafélagið
var stofnað árið 2003 og stærsti hlut
hafinn Havila Holding AS er í eigu
stjórnarformannsins Per Sævik
og fjölskyldu hans. Samkvæmt til
lögunni sem kröfuhafarnir höfnuðu
átti Havila Holding að halda
meirihluta sínum í fyrirtækinu og
í staðinn leggja fram 118 milljónir
norskra króna í nýtt hlutafé og víkj
andi lán upp á 46,2 milljónir.
Sævikfjölskyldan er einnig
meirihlutaeigandi í norsku skipa
smíðastöðinni Havyard sem á sex
prósenta hlut í íslenska olíuþjón
ustufyrirtækinu Fáfni Offshore. Nýtt
fimm milljarða króna skip Fáfn
is er í smíðum hjá Havyard en af
hendingu þess var í október síðast
liðnum seinkað í annað sinn eða um
tvö ár. Ástæðan er verkefnaskortur
hjá fyrirtækjum sem þjónusta olíu
iðnaðinn eða sú sama og hefur
leitt til vandræða Havila. Eldra skip
Fáfnis, Polarsyssel, sinnir verkefnum
fyrir Sýslumanninn á Svalbarða í
níu mánuði á ári. Samkvæmt upp
lýsingum DV hefur Havila séð um
að manna Polarsyssel og daglegan
rekstur skipsins. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Reyna að forða gjaldþroti Rekstrarörðugleikar Havila Shipping ASA hófust með lækk-
un olíuverðs sem leiddi til verkefnaskorts hjá fyrirtækjum sem þjónusta olíuiðnaðinn. Lán
Arion banka og Íslandsbanka til Havila hafa verið niðurfærð að stóru leyti í bókum þeirra.
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
ER EKKI KOMINN TÍMI
TIL AÐ GERA EITTHVAÐ
Fjölbreytt námskeið
framundan
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is