Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Síða 28
Helgarblað 25.–28. nóvember 20166 Brot af því besta - Kynningarblað
Mikil og jákvæð breyting á lífi
fólks eftir laseraugnaðgerð
F
ólki líður eins og það eigi
heiminn og því kemur á
óvart hvað það er ótrúlega
mikil breyting að sjá skyndi-
lega mjög vel og þurfa hvorki
að nota gleraugu né linsur framar.
Margir segja að þetta sé einn af þeim
atburðum sem hafi haft mest áhrif á
líf þess,“ segir Jóhannes Kári Kristins-
son, augnlæknir og sérfræðingur í
hornhimnu- og sjónlagslækningum
með laser. Jóhannes starfar hjá fyrir-
tækinu Augljós, sem staðsett er á 2.
hæð í Glæsibæ, Álfheimum 74.
Jóhannes gekkst sjálfur undir
svona aðgerð fyrir 13 árum eftir að
hafa þá þegar framkvæmt margar
laseraðgerðir á öðrum. Segir hann
að það hafi jafnvel komið honum
sjálfum í opna skjöldu hversu
mikið lífsgæði hans jukust við þessa
breytingu. Gefum Jóhannesi orðið
um laser aðgerðir á augum:
„Þetta er aðgerð sem breytir
miklu fyrir þá sem gangast undir
hana. Um þriðjungur landsmanna er
háður gleraugum eða linsum meira
eða minna og þetta getur hjálpað
þeim verulega. En þetta er þó ekki
fyrir alla. Um það bil 20 prósent
þeirra sem koma í forskoðun til okk-
ar eru af einum eða öðrum ástæðum
ekki í stakk búin fyrir svona aðgerð.
Það getur verið vegna einhverra
ágalla á augunum og svo þurfa horn-
himnurnar að vera nægilega þykkar
og eðlilega kúptar því hornhimnan
er sá vefur framan á auganu sem er
meðhöndlaður, við erum í rauninni
að breyta ljósbrotshæfni augans, að
breyta lögun fremri linsu augans,
hornhimnunni (augasteinninn er
aftari linsan), til að myndin komist á
réttan stað í fókus á sjónhimnu aftast
í auganu. Fyrir þessa aðgerð þurfa
augun að vera heil og við pössum
alltaf afar vel upp á að við séum ekki
að taka óþarfa áhættu í aðgerðinni.
Allar aðgerðir hafa ákveðna áhættu í
för með sér en til að lágmarka hana
þurfum við að skoða augun vel fyrir
aðgerð.“
Í Augljós er þeirri reglu fylgt að
augnlæknir fylgir sjúklingi alla leið,
þ.e.a.s. Jóhannes forskoðar og sjón-
mælir sjálfur alla þá sjúklinga sem
hann framkvæmir aðgerðir á, en
hann telur mikilvægt að sami augn-
læknir framkvæmi sjónmælingu,
skoðun, aðgerð og eftirfylgni með
sjúklingi í a.m.k. sex mánuði eftir að-
gerð.
Afar góður árangur af laser-
augnaðgerðum hjá Augljós
Daníel Alexandersson, læknanemi
við læknadeild Háskóla Íslands,
framkvæmdi í fyrra heildstæða rann-
sókn á árangri af augnaðgerðum
með laser hjá Augljós. Niðurstað-
an er að um og yfir 98 prósent þeirra
sem fara í nærsýnisaðgerð fá 100
prósent sjón (6/6) án glers og eru því
meira og minna lausir við gleraugu
eða linsur. Er þetta afar gott hlutfall
í alþjóðlegum samanburði. Niður-
stöður rannsóknarinnar hafa verið
kynntar á málþingi og verða birtar á
næstunni í Læknablaðinu.
Jóhannes segir að varðandi þau
tæpu tvö prósent sem út af standa
þá sé um að ræða sjúklinga sem fá
sjónlagsbreytingar vegna breytinga
í augasteininum, sem sé óviðkom-
andi laseraðgerðinni. Jafnframt get-
ur augnþurrkur að lokinni aðgerð í
einstaka tilviki tafið ferlið en reynt er
að minnka áhrif hans eins og kostur
er og oftast tekst það með ágætum.
Nær allir sem gangast undir sjón-
lagsaðgerð með laser verða miklu
minna háðir hjálpartækjum en áður
og í mörgum tilvikum óháðir þeim
með öllu. Margir þurfi þó lesgler-
augu eftir fertugt en þó er nýlega far-
ið að bjóða upp á nýja gerð laser-
aðgerða sem gerir fólk í mörgum
tilvikum óháð lesgleraugum líka.
Varðandi áhættu við að fara í
augnaðgerð með laser þá tekur Jó-
hannes skýrt fram að engin aðgerð
sé algjörlega án fylgikvilla. „ Öryggið
hefur þó aukist stórum á undan-
förnum árum og með bættri tækni
má nær útrýma fylgikvillum. Við
kappkostum að bjóða upp á nýjustu
tæki á þessu sviði og vorum m.a.
fyrsta laseraðgerðastöðin til að bjóða
upp á snertilausar laseraðgerðir.“
Jóhannes bendir á að fæstir hugsi til
þess að notkun gleraugna og snertil-
insa sé ekki fylgikvillalaus:
„Ég hef sjálfur fengið til mín
fólk þar sem gleraugu hafa brotnað
og augu skorist illa. Einnig hafa
slæm hornhimnusár hlotist af
snertilinsum og í slæmum tilvikum
hafa þau valdið óbætanlegum sjón-
skaða.“
Uppruni aðferðarinnar
– umfangslítil aðgerð
„Þessi aðgerð á rætur sínar í tölvu-
byltingunni sem varð í kringum 1980
þegar tölvurnar urðu almennings-
eign. Einum verkfræðingnum hjá
IBM datt í hug hvort ekki mætti nota
þennan laser sem var notaður til að
útbúa rásir í kísilflögur í tölvurnar
á mannslíkamann. Það voru gerðar
rannsóknir á því og það kom í ljós að
hornhimnan var ákjósanlegur vett-
vangur fyrir þessa tegund af laser
vegna þess að hann virkar þannig að
hann bókstaflega leysir upp á meðan
aðrar tegundir af laser eru brennandi
eða gefa höggbylgjur. Vefurinn sem
lasernum er beint að hreinlega gufar
upp. Hugmyndin er að móta horn-
himnuna án þess að skemma hana og
án þess að auka hitann í henni,“ út-
skýrir Jóhannes, en það kemur fólki
oft á óvart hve aðgerðin sjálf er um-
fangslítil:
„Viðkomandi kemur í forskoðun
og ef hann er kandídat í aðgerðina
þá kemur hann að morgni dags og
er gefin valíumtafla fyrir aðgerð til
að róa hann því það er stressandi til-
hugsun að fara í augnaðgerð. Ekki
þarf að svæfa því mikilvægt er að við-
komandi geti fylgst með aðgerðinni
en hann horfir í grænt ljós meðan á
henni stendur. Aðgerðin tekur 10–15
mínútur fyrir bæði augu. Útbúinn
er sérstakur flipi með hjör á horn-
himnuna, hann settur til hliðar og
hornhimnan síðan endurmótuð og
flipinn settur aftur á. Sjúklingur fær
dropadeyfingu en það eru engar
sprautur eða neitt þess háttar. Sjúk-
lingur finnur varla fyrir neinu. Til-
hugsunin er stórt mál en aðgerðin
sjálf ótrúlega lítið mál.“
Jóhannes segir að mælt sé með því
að fólk leggi sig í tvo til þrjá tíma eftir
aðgerðina. Fólk getur fundið fyrir dá-
litlum sviða í augunum en ekki verkj-
um. Að kvöldi aðgerðardags getur
fólk horft á sjónvarp og sér bara býsna
vel. Daginn eftir kemur það í skoðun.
„Fólk tekur því rólega daginn eftir
aðgerðina en þar næsta dag getur
það farið í vinnuna, farið að hlaupa,
hjóla, í ræktina. Það má þó ekki
nudda augun í viku – það er stærsta
málið. Og ekki stunda vinnu þar sem
er mikið ryk næstu daga á eftir. Bíða
líka í eina viku með íþróttir sem kalla
á bein átök við aðra, og maskarinn
þarf líka að bíða í viku. Að öðru leyti
er fólk ótrúlega fljótt að jafna sig.“ n
Nánari upplýsingar um laseraugn-
aðgerðir er að finna á heimasíðu Aug-
ljós, augljos.is
mynd SigtryggUr Ari