Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2016, Qupperneq 20
Helgarblað 25.–28. nóvember 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
20 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Söguskoðun Benedikts
Gustað hefur rækilega um Bene-
dikt Jóhannesson síðustu daga
og vikur en Benedikt hefur tekið
þátt í tveimur stjórnarmyndunar-
viðræðum sem báðar hafa siglt í
strand. Benedikt greindi meðal
annars frá því að eitt af því sem
ekki hefði náðst samkomulag um
í viðræðum flokkanna fimm, sem
síðast ræddu saman undir for-
ystu Katrínar Jakobsdóttur, hefðu
verið landbúnaðarmál. Þessu
höfnuðu talsmenn Pírata alfarið.
Smári McCarthy sagði í fréttum á
miðvikudag að það væri beinlínis
ósatt að svo væri og í sama streng
tók Birgitta Jónsdóttir.
Benedikt sagði svo í grein sem
hann birti á heimasíðu Viðreisn-
ar í gær að Viðreisnarþingmenn
hefðu fyrst heyrt af skattahækk-
unarhugmyndum Vinstri grænna
í Fréttablaðinu en þær ekki verið
kynntar á fundum flokkanna. Við
þetta kannast hins vegar fulltrúar
annarra flokka ekki, auk þess
sem Benedikt þarf að vera ansi
bláeygður til að kannast ekki við
stefnu Vinstri grænna í skatta-
málum. Það er því farið að vekja
töluverða athygli fólks hversu oft
söguskoðun Benedikts er á skjön
við upplifun annarra. H
illary Clinton hafði lengi haft
augastað á embætti forseta
Bandaríkjanna. Framboð
hennar var vandlega undir-
búið, hún virtist hafa sterkt bakland
og naut velvilja almennings víða
um heim. Hún virtist sköpuð til að
verða fyrsti kvenforseti Bandaríkj-
anna. Óvæntur ósigur gegn Don-
ald Trump var gríðarlegt áfall fyr-
ir hana, eins og hún hefur síðan
fúslega viðurkennt. Og hvað gerir
metnaðarfull afburðakona eftir svo
sáran ósigur? Hillary Clinton sagði
að sig hefði mest langað til að kúra
heima yfir góðri bók og ekki fara út
úr húsi. Clinton hefur þó vissulega
farið út úr húsi eftir ósigurinn og
á dögunum sást til hennar og fjöl-
skyldu hennar í bókabúð þar sem
frúin keypti nokkrar bækur.
Bækur veita ánægju og huggun,
það vitum við flest ósköp vel, rétt
eins og Hillary Clinton. Þegar fólk
les er það á einum stað meðan hug-
urinn leiðir það á alls kyns slóðir
þar sem það kynnist nýju fólki og
ýmiss konar viðhorfum, sumum alls
ólíkum þess eigin.
Það er aldrei lögð nægilega rík
áhersla á það að lestur góðra bóka
á sinn þátt í að kenna fólki að setja
sig í spor annarra, um leið eykst
samkennd þeirra og víðsýni. Hér
skal því haldið fram að það sé bæði
hollt og þroskandi að gleðjast og
gráta vegna örlaga annarra, hvort
sem um er að ræða raunverulegar
manneskjur eða skáldaðar. Lestur
góðra bóka á sinn þátt í að efla ná-
ungakærleika manna á meðal.
Við höfum dæmi um það í nútím-
anum hversu ríkulega lesendur geta
lifað sig inn í bækur. Heimsbyggðin
beið fyrir ekki ýkja mörgum árum
eftir því með öndina í hálsinum hver
yrðu örlög Harry Potter. Lesendur
máttu ekki til þess hugsa að hann
myndi deyja í síðustu Potter-
bókinni. J.K. Rowling gekk þannig
frá málum að hann fékk blessunar-
lega að lifa. Á 19. öld voru fjölmargir
Englendingar og Bandaríkjamenn
harmi slegnir vegna þess að Charles
Dickens deyddi Nell litlu á síðustu
blaðsíðum skáldsögu sinnar The
Old Curiosity Shop. Írski stjórn-
málamaðurinn Daniel O‘Connell
brast í grát þegar hann las kaflann
um dauða Nell og henti bókinni út
um glugga lestarinnar sem hann var
farþegi í.
Undanfarnar vikur hafa nýjar
bækur streymt í bókabúðir lands-
ins og þaðan liggur leið þeirra inn
á heimili landsmanna. Þar verða
þær lesnar og vekja alls kyns við-
brögð lesenda sem margir hverjir
telja það tilheyra jólunum að kúra
undir sæng með góða bók í hönd-
um. Það er lesandans sjálfs að skil-
greina hvað honum finnst vera góð
bók. Þar á hann ekki að fylgja öðr-
um í blindni heldur treysta á eigin
smekk – og leyfa sér að hrífast. n
Í félagsskap góðra bóka
Ómerkilegar dylgjur
og lágkúra
Benedikt Jóhannesson um ummæli Frosta Logasonar sem dylgjaði um fund.
jólagjöfin í ár!
Þráðlausu Touch heyrnartólin fást www.mytouch.rocks
Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki.
Einnig er hægt að svara í símann með þeim.
fæst á www.mytouch.rocks
Að kæra er að gefast
upp fyrir umræðunni
Halldór Auðar borgarfulltrúi um ákæru á hendur Pétri Gunnlaugssyni. – Facebook
Enda á ruslahaugum sögunnar eins
og annar hrærigrautur af þessu tagi
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um Pírata. – Facebook
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Það er lesandans
sjálfs að skilgreina
hvað honum finnst vera
góð bók.
Myndin Borgin og Sundin Það hefur verið umhleypingasamt á landinu að undanförnu og ekki er útilokað að rofi til um helgina áður en úrkoman hefst á nýjan leik. En það
getur verið fallegt um að litast í kuldaköstunum. MyNd Sigtryggur Ari